Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Page 1

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Page 1
S ' K r R N. Á síðasta ftmdi ’ F. I. H. var samþykt tillaga frá ritstjórninni um að breyta nafni ■blaðsins. Þotti henni nafnið "Tímarit fjelags ísl. hjúkrunarkvenna" of langt og reynsl- an hefir synt, að í daglegu tali er það ekki notað, þegar talað er um blaðið er það nefnt "Hjúkrunarkvennablaðið". Samkvæmt þessu var því nafnbreytingar-tillagan borin upp og samþykt. Vonar ritstjórnin að hjúkrunarkonum líki vel nýja nafnið, og að blað- ið megni í framtíðinni að starfa vel og dyggilega að öllum þeim málum, sem hjúkrunar- stjettin kann að beita sjer fyrir, sjálfri sjer og öðrum til heilla. Á síðasta fundi Fjelags ísl. hjúkrunar- kvenna var í einu hljóði samþykt, að flýta sem unt væri framkvæmd þess, að koma upp sumarbústað fyrir hjúkrunarkonur. Málið er skammt á veg komið, en hálfnað er verk þá hafið er, og þar sem almennur, lifandi áhugi ríkir innan stjettarinnar, um að húsið skuli rísa á sumri komanda, er mikið fengið. Því skyldum við ekki líka allar, undantekningarlaust, leggja fram okkar skerf? Ef hver hjúkrunarkona legði -segjum ca. kr. 20.oo- af næsta mánaðar- kaupi í húsið sitt, væri þegar komin upp- hæð, sem um munaði. Mun húsnefndin: Frk. Kristín Thoroddsen, Landspítalanum, frk. Bjarney Samúelsdóttir, Pósthússtr. 17 og frú Salóme Pálmadóttir, Kleppi, taka við samskotunum. Hjúkrunarkonur og nemar mega heldur ekki skerast úr leik, ef nefndin æskir eftir hjálp þeirra á einhvern annan hátt. Jeg er þess fullviss að engin lætur sitt eftir liggja. Þeim hjúkrunarkonum, sem búa úti um land' ið, finnst máske fátt um, og hugsa sem svo, að ekki geti þær, eins og við hinar, sem búum í Reykjavík eða nágrenni, skotist á frídögum, með "strætó", til að njóta góðs af sinni eigin eign, sumarhúsinu og svæð- inu í kring. En þær eiga mánaðar sumarfrí, og þá skjótast þær oft til Reykjavíkur, og mundi eflaust ánægja í að skreppa upp að Reykjum um leið, og svo eru hjúkrunarkon- ur ekki það staðbundnar, að gera má rá'ð fyrir að þær sem nú eru úti á landi, eigi e.t.v. eftir að eiga heima í Reykjavík. Það sem þegar er búið að gera £ þessu máli er, að nefndin hefir athugað hvar heppilegt væri að byggja. Lagði hún undir álit síðasta fundar, uppástungu um að fá landspildu hjá Reykjum í Mosfellssveit, þar sem hægt væri að nota hveravatnið til hit- unar. Það er ekki lengra frá Reykjavík en svo, að fastar áætlunarferðir ganga upp- eftir. álafoss með sundlauginni er rjett hjá. Við bæjarvegginn fengjum við dálít- inn læk, sem upp í fjallshlíðinni fellur £ suðandi foss. Þaðan er skammt til berja. Reykir hafa úrval af þeim jarðargróða, sera hægt er að rækta hjer á landi.. Æskilegt væri að við fengjum jafnframt dálftinn landsskika, sem skifta mætti milli spftalanna, þannig, að hjúkrunarkonurnar

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.