Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Blaðsíða 7

Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Blaðsíða 7
- 7 - eftir nokkrar mínútur. Eddy er uppáhalds gamanleikarinn hans, en hann vissi ekki að ]það ætti að útvarpa leik hans í þetta sinn. Þvílík hjúkrunarkona. Það er ekki að furða þó sjúklingarnir taki á móti henni með bros á vörum. Það eru margar framúrskarandi hæfar og fullkomnar hjúkrunarkonur til, og sjúkling- arnir læra fljótt að gera greinarmun á þeim og hinum ábyrgðarlausu og ófullkomnu hjúkr- unarkonum. Sjúklingurinn metur mikils alla viðleitni hjúkrunarkonunnar til þess að bæta líðan hans og gleðja hann á einn eða annan hátt. Hann veit að hún elskar starf sitt, og það er sú hjúkrunarkona, sem á skilið að heita eftirmaður Florence Nightingale. En hinar, látum okkur hætta að telja þær sem meðlimi hjúkrunarkvenna- stéttarinnar. JOHN GARDNER, Dr. NAMSSTYRKUR. Samvinna hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum veitir einni íslenskri hjú'kr- unarkonu námsstyrk að upphæð sænskar krónur 500,oo, til þess að sækja fram- haldsnámskeið á Norðurlöndum eða í Eng- landi, á komandi hausti eða vetri. Styrkurinn verður veittur af stjórn F. X. H. Umsóknir sendist fyrir 1. júlí n.k. til formanns F. X. H., er gefur frekari upplýsingar, só þess óskað. —0O0— HJÚKRUNARKONUR þær, sem lokið hafa námi, en óska eftir að fá framhaldsnám (Supplering) í geðveikrahjúkrun, eru beðnar að senda stjórn F. X. H. umsóknir um nám þetta. X umsókninni skal tilgreindur fyrverandi námstími hjúkrunarkvennanna og einnig frá hvaða tíma þær óska að fá framhaldsnámið, sem stendur yfir í 6 mánuði á Klepps- spítala. Norrænt hjúkrunarkvennamót verður haldið í Kaupmannahöfn 18. - 21. ágúst n.k. Samvinna hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum veitir F. X. H. kr. 450,oo, sem ákveðið hefir verið að skifta í 5 ferðastýrki á kr. 150,oo hver, til handa íslenzkum hjúkrunarkonum, sem hafa í hyggju að sækja mótið. Umsóknir um ofangreinda ferðastyrki sendist til stjórnar F. X. H. fyrir apríllok n.k. —oOo— STJORN FEL.XSL. HJUKRUNARKVENM mælist til þess, að þær hjúkrunarkonur, sem hafa í hyggju að sækja hjúkrunarmótið í Kaupmanna- höfn í sumar, tilkynni stjórninni það fyr- ir l..maí, svo hægt verði að senda Dansk Sygeplejeraad, nokkurnvegin nákvæma skýr- slu um þátttöku íslenskra hjúkrunarkvenna í mótinu. —oOo— HJONABAND: Gefin hafa verið saman í hjóna- band ungfrú Katrín Kristjánsdóttir, hjúkr- unarkona og Jósep Einarsson, ungfrú Sigrún Pálsdóttir, bæjarhjúkrunarkona og Andrés Straumland, ungfrú Anna Guðmundsdóttir, hjúkrunarkona og Sigurður Magnússon,kennari —oOo — Allar nánari upplýsingar gefur for- maður F. X. H. frú Sigríður Eiríksdóttir, ásvallagötu 79, Reykjavík (venjulega heima milli 1-2 síðdegis. —oOo— MUNIÐ MINNINGARGJAFASJOÐ Guðrúnar Gísla- dóttur Björns. —oOo— Hjúkrunarkona óskast á sjúkrahús HVÍTABAHDSIHS til að leysa af í sumarfríura. n331^11 'X/_ Sömuleiðis vantar/íijukrunarkonu frá 1. júní næstkomandi. Umsóknir sendist til yfirlæknis sjúkrahússins fyrir 25. apríl næstkomandi.

x

Hjúkrunarkvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrunarkvennablaðið
https://timarit.is/publication/1238

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.