Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Blaðsíða 2
2
af hverjum spítala hefðu sitt blómsturbeð,
sem þær mættu rækta. Gæti það orðið skemmt:
legt. En um það má ræða nánar síðar.
Þessar lfnur eru aðeins ritaðar til að
vekja athygli á, að það er undir okkur
sjálfum komið, hvort við fáum á sumrinu
indælan, friðsælan stað, þar sem við get-
um reglulega vel notið hvíldar og hressing-
ar á frídögunum. Slíkt mundi hjálpa okkur
til að byrja hverja nýja starfsviku með
nýjum og margfölduðum kröftum.
Stígum því á stokk og strengjum þess
heit að húsið skuli fullgert á næsta sumri,
Reykjavík, 23/2. '35.
Sigurlaug árnadóttir.
—oOo—
Útdráttur úr fundargerð F. f. H. 2l/2.'35»
Fundur var haldinn í K. R. húsinu fimtu-
daginn 2l/2 '35» Formaður setti fundinn og
gaf síðan orðið frk. Ölafíu Jónsdóttir.
Lagði hún fram reikningsskil yfir sjóð
Guðrúnar Gísladóttur Björns, og voru þau
samþykt með öllum atkvæðum. Því næst tólc
formaður til máls, kvað sjóðinn vaxa of
hægt, og bað fjelagskonur að stinga upp á
nýjum leiðum, sem greiddu betur fyrir sölu
minningarspjaldanna, sem sjóðurinn aðal-
lega byggist á. Fundurinn áleit að betur
þyrfti að auglýsa spjöldin, t.d. hafa sölu
á þeim í einhverri búð í miðbænum. Tók
formaður að sjer að tala við frú Katrínu
Viðar þessu viðvíkjandi.
Frk. María Maack afhenti formanni banka-
bók, með kr. 200.- ágóða af 15 ára afmælis-
fagnaði fjelagsins, sagði hún að skemmti-
nefndin legði til, að þessu yrði varið til
að minnast starfsemi Fjelags ísl. hjkv.
á 25 ára afmæli fjelagsins. Var það samþ.
Næst v«.r á dagskrá sumarhúsmálið. Gaf
formaður orðið frk. Kristínu Thoroddsen,
sem fyrir hönd nefndarinnar skýrði frá að
skoðaður hefði verið staður fyrir sumar-
hús, og hefði nefndin fundið bestan stað
hjá Reykjum í Mosfellssveit fyrir lóð und-
-ir húsið. þar sem væri hverahiti. Samþykt
með öllum atkvæðum að fá þá lóð ef mögu-
legt væri.
Frk. Sigurlaug Árnadóttir bar fram til-
lögu um breyting á nafni Tímarits fjelags
— ís1. hjúkrunarkvenna, fannst nafnið bæði
langt og stirt. Stakk upp'á, fyrir hönd
ritnefndar, að því yrði breytt í Hjúkrunar-
kvennablaðið. Samþykt að breyta nafninu
þannig. Að lokinni sameiginlegri kaffi-
drykkju var síðan fundi slitið.
Fundur starfsnefndar Samvinnu hjúkrunar-
kvenna á norðurlöndum í Kaupmannahöfn,
26.-29. júní 1934.
Fulltrúar frá Banmörku voru varaformaður
D.S.R.frk. Gustava Hjort, frk. Hedvig Post,
frk. Johanne Fenger og frk. Else Kaltoft.
Frá Finnlandi voru mættir fulltrúarnir
Venny Snellmann formaður þjóðarbandalags
finskra hjúkrunarkvenna, frk. Lyyli Hagan
og systir Rachel Edgren. Island sendi eng-
an fulltrúa að þessu sinni en frk. Valgerði
Helgadóttur var boðið að sitja fundinn, og
gefa skýrslu til F.X.H., ef óskað væri eftir
því. Frá Noregi mættu fulltrúarnir systir
Bergljót Larsson, formaður í Norsk Syke-
pleierskeforbund, systir Lulli Lous og
systir Karen v. Tengen Brynildsen. Frá Sví-
þjóð mættu fulltrúarnir systir Elísabet
Lind, formaður í Svensk Sjuksköterskefor-
ening, systir Anna Vogel og systir Greta
Mueller.
Tekið var á móti fulltrúunum af forstöðu-
konu vinnumiðstöðvar D.S.R., frk. Elsu Kal-
toft og var þeim þar boðið til morgunverð-
ar. Aðalmóttökuhátíðin fór fram úti á veit-
ingahúsi Löngulínu um kvöldið. Frk. Gustava
Hjort bauð fulltrúana velkomna og systir
Bergljót Larsson þakkaði fyrir hönd nefnd-
arinnar.
Aðalfundarhöldin hófust daginn eftir,
miðvikudag 27. júní, og setti systir Berg-
ljót fundinn um leið og hún minntist hins
látna foringja norrænu samvinnunnar, frk.
C. Munck með nokkrtim hlýjum orðum. Systir
B.L. notaði um leið tækifærið til þess að
minnast frú Henny Tscherning og frk. Emmu
Áström. Hinir viðstöddu fulltrúar stóðu
upp úr sætum sfhum á meðan.
Systir Bergljót skýrði því næst frá því,
að fyrverandi formaður í Svensk Sjuksköterske-
forening av 1910, og systir Bertha Wellin,