Hjúkrunarkvennablaðið - 01.02.1935, Side 3
I
- 3 -
hefði sagt af sjer störfum, og ljeti hún
þaráfleiðandi af störfnm sínum sem ritari
S.S.N. Fulltrúaráðið samþykti að senda
systir Berthu Wellin skeyti, mfeð |)ökk fyr-
-ir áhrifamikið og vel unnið starf í þágu
hinnar norrænu hjúkrunarkvennastjettar.
Gjaldkerinn, systir Greta Mueller las
upp fjárhagsskýrslu fyrir árin 1932 og
1933 og var hún samþykt í einu hljóði.
Þá var tekin fyrir stjórnarkosning.
Fyrsti varaformaður, systir Bergljót Lars-
son, kvaðst ekki vilja taka við formensku
og var stjórn S.S.N. síðan kosin sem hjer
segir: Formaður, systir Anna Vogel, Sví-
þjóð, 1. varaformaður systir Bergljót Lars-
son, Noregi, 2. varaformaður frk. Hedvig
Post, Danmörku. Skrifari systir Rachel
Edgarn, Finnlandi, gjaldkeri systir Greta
Mueller, Svíþjóð. Meðstjórnendur, systir
Elísatet Lind, Svíþjóð, systir Lulli Lous,
Noregi, frk. Lyyli Hagan, Finnlandi, frk.
Johanne Fenger, Danmörku og frú Sigríður
Þorvaldsson, fslandi.
Af því, sem rætt var um á fundinum, má
nefna umræður um vinnumiðlunar-skrifs.tofur
fyrir hjúkrunarkonur, vakti máls systir
Elísahet Lind. í Svíþjóð hafði verið stung-
ið upp á að sameina þær öðrum ráðningastof-
um, en Svensk Sjuksköterskeforening áleit
að þetta væri mál, sem heyrði heint undir
heilhrigðisstjórnina og undir hennar eftir-
liti væru hagsmunir bæði almennings og
hjúkrunarkvenna best trygðir. Frk. Lyyli
Hagan lýsti fyrirkomulági þessara mála í
Finnlandi. Samkvæmt lögum frá 1926 um vinnu-
miðlun þar í landi, höfðu hjúkrunarkvenna-
fjelögin fengið leyfi til að hafa ráðning-
arskrifstofur til þriggja ára, en að þeim
tíma liðnum skyldi sótt um framlengingu á
því leyfi, ennfremur skyldu fjelögin gefa
skýrslu um þessa starfsemi sína til viðkom-
andi ráðuneytis, mánaðarlega. Eftir fyrstu
3 árin sóttu fjelögin ekki aftur um rjett
til að annast vinnumiðlun hjúkrunarkvenna.
Ráðningarstofur hjúkrunarkvenna eru þó enn
til í Finnlandi, en ráða ekki í fastar stöð-
ur, heldur s'já næstum eingöngu um útvegun
hjúkrunarkvenna til heimahjúkrunar, og hafa
stjórnarvöldin látið þetta afskiftalaust.
Systir Bergljót Larsson skýrði frá, að
vinnumiðlun hjúkrunarkvenna í Noregi stæði
undir lögreglueftirliti. Skrifstofa Norsk
Sykepleierskeforbund rjeði hjúkrunarkonur
hæði til heimilishjúkrunar og í fastar
stöður, og hefir lögreglueftirlitið rjett
til að fylgjast með skrifstofunni. Auk
þessarar skrifstofu, eru nokkrar fleiri,
sem fást við ráðningu hjúkrunarkvenna.
Frk. Elsa Kaltoft, Danmörku, sagði að
þar heyrðu ráðningarskrifstofur hjúkrunar-
kvenna ekki undir hinar almennu vinnu-
miðlunarskrifstofur. Gat hún þess að í
sambandi við löggilding hjúkrunarkvenna,
væri það ákvæði, að hver, sem veitti for-
stöðu hjúkrunarkvennaskrifstofu yrði að
hafa til þess persónulegt leyfi frá heil-
hrigðisstjórninni. Slíkt leyfi hefir nú
nýlega verið veitt formönnum skrifstofum
D.S.R. til 5 ára. Því miður höfðu ýmsir
aðrir, sem standa fyrir vinnumiðlunar-
skrifstofum hjúkrunarkvenna, og ekki eru
hjúkrunarkonur, einnig fengið leyfi, en
því ætlar heilbrigðisstjórnin og D.S.R.
að reyna að kippa £ lag að 5 árum liðnum,
þegar endurnýja þarf leyfið.
Þetta vinnumiðlunarmál var mikið rætt
á fundinum. Lögð var áhersla á að hjúkr-
unarkonur hefðu vegna starfs síns, sjer-
stöðu, hæði hvað snertir vinnumiðlun og
eftirlit. Menn voru sammála um að heppi-
legast væri að þessi mál hjúkrunarkvenna
heyrðu undir viðkomandi heilhrigðisstjórn.
Frh.
—0O0 —
ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
ff SVEFN- OG STILLANDI- MEBUL. ||
Það væri ekki vanþörf að fræða almenning
meira en gjört hefir verið, um það gagn og
ógagn, sem stafað getur af eiturlyfjum, eða
hinum svokölluðu svefn- og stillandi- með-
ulum. Þar sem hjúkrunarkonan fær oft ríku-
legt tækifæri til þess að fræða menn um
slíka hluti, datt mer í hug að þýða útdrátt
úr grein, sem ég rakst á um þetta efni.
Þeir tímar, sem við lifum á, eru að ýmsu
leyti athyglisverðir. Þar sem allt atvinnu-
líf manna gengur eftir vissum hraða, og
enginn má nó vill dragast aftur úr, verður
mönnum oft þrifið til hinna ýmsu lyfja,
til þess að koma í veg fyrir að þeir lötri
á eftir eða falli saman. Nútíma verkamaður-
inn þjáist oft af svefnleysi. Hann verður