Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Síða 7
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
5
skýrði ameríska kvikmynd um lífgunarað-
ferðir.
Félagskonur eru 507 og hefur ein fé-
lagskona sagt sig úr félaginu á árinu. Þar
af eru um 251 í föstu starfi, auk fjölda,
sem taka að sér afleysingar. Ca. 15 út-
lendar hjúkrunarkonur hafa starfað hér
á árinu.
Heiðursfélagar H.F.Í. eru 13.
Lífeyrissjódur hjúkrunarlcvenna. 10
hjúkrunarkonur hafa fengið lán úr sjóðn-
um á árinu, en alls munu 61 hjúkrunar-
kona hafa fengið lán til íbúðarbyggingar.
Sjóöir í eigu Hjúlcrunarf'élags Islands:
Félagssjóður (í árslok 1956) Kr. 38,861,05
Náms- og ferðasjóður ......... — 37,495,42
Hússjóður .................... — 51,913,90
Sumarhússjóður ............... — 33,92
Minningarsjóður Guðrúnar G.
Björns ................... — 22,588,74
Spjaldhappdrættissjóður .... — 6,826,00
Jólagjafasjóður Ingibjargar
Sigurðardóttur ........... — 10,000,00
Hlutabréf, Kvennaheimilið
Hallveigarstaðir ......... — 200,00
Hlutabréf, Loftleiðir h.f. ... — 3,000,00
33 skuldabr. í Happdr. ríkisins — 3,300,00
Stjórnin skiptir með sér verkum eins
og að undanförnu og þakkar starfsnefnd-
um og fulltrúum félagsins fyrir ágæta
samvinnu.
Reykjavík, 9. des. 1959.
Sigríður Eiríksdóttir
formaður
Danska Hjúkrwnarfélagið (Dansk Sygeplejerád)
tilkynnir:
Eftirleiðis verða ekki skipulagðar fræðslu- eða
kynnisferðir á sjúkrahús eða aðrar stofnanir í
Danmörku, á tímabilinu 24. júní—10. ágúst, því
að sá tími er sérlega óhentugur vegna sumar-
leyfa hjúkrunarkvenna og skorts á starfsfólki
yfirleitt. Það er skoðun okkar, að þessi ákvörðun
sé í beggja þágu, stofnana vorra og hinna erlendu
gesta; þeir munu hafa meira gagn af heimsókn-
um á öðrum tímum árs, þegar þjálfað fólk getur
verið þeim til aðstoðar.
Vegna danska Hjúkrunarfélagsins.
Else K. Andersen, námstj&ri.
Leiðrétting:
Misritað var í afmælisblaði félagsins um stofn-
anda Heimilissjóðsins. Anna Ólafsdóttir, sem þá
var yfirhjúkrunarkona á Vífilsstaðahælinu, stofn-
aði hann með kr. 1.000,00 og voru þá laun yfir-
hjúkrunarkvenna aðeins kr. 200,00 á mán., en
aftur á móti gáfu þau hjónin Anna og Gísli J.
Johnsen á næsta merkisafmæli félagsins heimilis-
sjóðnum góða gjöf, sem þau svo endurkeyptu á
kr. 5.000,00. Gjöf þessi var hugsuð sem hvatning
til eflingar sjóðsins og mundu fleiri góðar gjafir
á eftir koma. Anna Ó. Johnsen hefur tekið á móti
gjöfum til Heimilissjóðs ísl. hjúkrunarkvenna:
í okt. 1958: kr. 500,00 — fimm hundruð krón-
ur — frá hr. og frú Soffonias Thorkelsson, Vic-
toria, B.C. — og aftur frá sama í nóv. 1959, $ 10
— tíu dollara.
í jan. 1960 frá vinafólki S. Thorkelssonar, frú
G. E. Johnson, til minningar um foreldra: Jósep
og Guðrúnu M. Stephensen, kr. 2.000,00 —• tvö
þúsund krónur.
Sjóðstjórnin þakkar gefendum kærlega fyrir.
Hjúkrunarkonur eru vinsamlegast
áminntar um að tilkynna bústaðaskipti
sem allra fyrst til formanns Hjúkrunar-
félags íslands, frú Sigriðar Eiriksdóttur,
Aragötu 2, Reykjavík.
Félagsnr. _________________________
Heimilisfang ......................
Sími ______________________________
<$>-----------------------------------^
<S>-----------------------------------a
Hjúkrunarkonur
geta fengið atvinnu á Kleppsspítalanum,
einnig við að leysa af vetrarfrí. Upplýs-
ingar hjá forstöðukonunni.