Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Page 8

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Page 8
■^JJfín (junnaridóttir: Heimsókn á farsóttarhús í Englandi Fyrir nokkrum mánuðum síðan, er ég var á ferð erlendis, heimsótti ég farsótt- arsjúkrahús í einni af stæi'stu iðnaðarborg- um Englands. Var þessi heimsókn mér mjög minnisstæð, því svo sérstakkga vel var tekið á móti mér. Held ég að hjúkr- unarliði spítalans hafi einnig þótt fróð- legt að hitta hjúkrunarkonu frá íslandi, því margar spurr.ingar voru lagðar fyrir mig og reyndi ég að svara þeim eins greið- lega og mér var unnt. Birmingham Citv Fever Hospital er sér- stæð bygging, sem stendur í fögrum garði. Hver deiid er í sérstöku eins hæða húsi, sem inniheldur 12—24 smá herbergi og er innangengt í þau af svölum. Aðeins einn sjúklingur er í herbergi hverju, sem gerir smitun á milli sjúklinga næstum óþekkt fyrirbæri. Deildir sjúkrahússins eru 14 að tölu og mátti þar finna flestallar farsóttir, en sú deild sem mest vakti athygli mína var taugaveikisdeildin, var sú deild þétt skip- uð, þar sem ný afstaðin var taugaveikis- epidemía í litlu þorpi rétt fyrir utan Birm- ingham. Þetta var 24 manna deild og var hverjum sjúklingi hjúkrað út af fyrir sig. Hver sjúklingur hafði merkta þvottaskál og bekken. Við dyr herbergisins héngu hlífðarsloppar og fer lækna- og hjúkrun- arlið aldrei inn í herbergið án þess að fara í þessa sloppa. Hjúkrunarkonurnar íklædd- ust, afklæddust og hengdu sloppana upp á alveg sérstakan hátt. Áður en þær af- klæddust sloppnum þvoðu þær sér um hendur með sótthreinsandi sápu (hand- laug var við hverjar herbergisdyr), síðan, án þess að þerra hendurnar, afklæddust þær sloppnum og brutu hann saman, svo burstuðu þær og þvoðu aftur á sér hend- urnar og þerruðu. Notuð voru smá hand- klæði og pappírsþurrkur; var hvert hand- klæði aðeins notað einu sinni. öll ílát og aðrir hlutir, sem nálægt sjúklingnum komu, voru sótthreinsuð af mikilli varúð, t. d. matarílát voru látin liggja í bleyti í sótthreinsandi vökva í sólarhring, síðan þvegin í góðu sápuvatni, skoluð og soðin í 30—40 mínútur. Allar matarleifar, þvag og saur lá í sótthreinsandi efni í 8 klst. áður en því var fleygt. Óhreinn þvottur lá í bleyti í 24 klst. Þá skolaður og sendur í þvott. Eftir að yfirhjúkrunarkonan hafði út- skýrt fyrir mér, hvernig þessum sjúkling- um er hjúkrað, bauð hún mér að vera við- stödd fyrirlestur um taugaveiki, sem yfir- læknir sjúkrahússins, Dr. Ker ætlaði að

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.