Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Side 9

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1960, Side 9
tímarit hjúkrunarfélags íslands halda næsta dag fyrir hjúkrunarkonur sjúkrahússins og þáði ég það boð. Var erindi þetta mjög lærdómsríkt og ætla ég nú í fáum orðum að fara yfir helztu atriði þess. Taugaveiki eða typhus-sýkill- inn berst aðallega milli manna með mat og drykk (food-borne), einnig berast aðr- ir sjúkdómar á þennan hátt, eru það t. d.: a) Matareitrun. b) 1. Blóðsótt (Dysenteria Baciliaris). 2. Blóðkreppusótt (Dysenteria Amboebica). c) Garnabólga (Gastritis). d) Berklar. e) Einnig sjúkdómar af streptococca- ættinni. Þær tegundir matvæla sem virðast vera hættulegastar eru þær sem mikið eru með- höndlaðar áður og eftir að þær ná til neyt- enda. Hakkað kjöt, pylsur, mjólk og rjóma- ís eru afurðir, sem fara í gegnum hendur margra manna áður en þær eru tilbúnar til neyzlu. Verið getur að einhver fram- leiðandinn'sé með streptococci-sýkil í hálsi eða nefi. Getur sýkill þessi fallið yfir matinn. Lélegar geymslur eru stórhættulegar; ef framleiðslan hefur verið smituð og svo sett í lélega geymslu, fá sýklarnir gott tæki- færi til að margfaldast og útbreiðast. Rott- ur og mýs í geymslum eru oft slæmir smit- berar. Framleiðandi getur smitað framleiðslu sína: a) Með höndunum. Framleiðandinn get- ur verið typhus eða dysenteria-smit- beri jafnvel án þess að vita það sjálf- ur, hann þvær ekki hendur sínar nógu vel eftir salernisnotkun og ber þannig sýkilinn á höndum sínum frá anus í framleiðsluna, þar sem sýk- illinn margfaldast og verður neyt- anda stórhættulegur. Sár á fingri 7 geta einnig smitað, þar sem þau eru oft staphylococci inficeruð. b) Eins og ég nefndi áður, ef framleið- andi er með kvef eða hálsbólgu, þá fellur sýkillinn frá hálsi og nefi yfir matinn. Illa þvegin áhöld og ílát, sem notuð eru til að geyma eða framleiða í, eiga sinn þátt í smithættunni. Mörg dýr bera sýkla; eru rottur, mýs og flugur hættulegastar. Bera þau oft sjúkdóma af Samonella- ættinni. Um mjólk og mjólkurafurðir hefur ver- ið mikið rætt sem smitbera. Mjólkin getur smitast á ýmis konar hátt áður en hún nær til neytenda: t. d. sýktar kýr og mjaltarmaður, óhreinindi í fjósi, illa þveg- in ílát o. fl. og mættum við minnast alls þessa hér heima. I sumum löndum, þar sem vatnsveitan er ófullnægjandi, á vatnið oft sök á sjúkdómi sem taugaveiki. Taugaveikissjúklingar eru oft mjög illa haldnir, hár hiti, höfuðverkur, uppköst og niðurgangur. Þurfa þeir góðrar hjúkrun- ar við. Kvaðst dr. Ker hafa fastar reglur á sínu sjúkrahúsi hvernig hjúkra ætti þeim sjúklingum. Fyrstu dagana, þegar hitinn er hæztur, fær sjúklingurinn aðeins fljótandi fæði, 3000—3500 ml. yfir sólarhringinn, sem er gefið í smá skömmtum á 2 tíma fresti, er aðallega gefið rjómabland, rjómaís, hafraseyði og kjötsoð, sem síðan er breytt smám saman í létt fæði, er hitinn hefur fallið. Chloramphenicol er lyfið sem nú er að- lega notað. Er það gefið í stórum skömmt- um 500 mg á 4 tíma fresti, þangað til hit- inn hefur lækkað, síðan 500 mg á 6—8 tíma fresti í 2—3 vikur. En áður en lyf- gjöfin hefst, eru blóð-, þvag- og saurpruf- ur sendar til rannsóknar og síðan er blóð- ið rannsakað tvisvar í viku hverri, þvagið annan hvorn dag, en saurinn daglega. Og

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.