Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Blaðsíða 13

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Blaðsíða 13
.» Elín Eggerz-Stefánsson. hún sjálfstætt, skiptir á sár- um, gefur flestar sprautur, sér um alla sótthreinsun og sér um ýmsar einfaldari rannsóknir. 4. Læknamiðstöðvar, sem liggja fjarri stórum rannsóknar- stofum, þurfa að geta annast slíka þjónustu og hafa því á að skipa sérþjálfuðum aðila í þessum efnum (Laborant) og tækjabúnaði við hæfi. I stuttu máli má segja að þannig er heimilislæknum búin lík vinnuskilyrði og sjúkrahús- læknar hafa. örn skýrði frá væntanlegu fyrirkomulagi í Vestmannaeyj- um, þar sem gert er ráð fyrir 3 heimilislæknum og auk þess 2 sérfræðingum, lyflækni og skurðlækni. Læknamiðstöðin þar mun fá húsnæði í sjúkrahús- byggingu þeirri, sem nú er ver- ið að reisa og þar verður einnig heilsuverndarstöðin. Hópsam- vinna verður þar um sjúkdóma- varnir, heilsuverndarstarfsemi, heilbrigðiseftirlit og lækninga- starfsemi. Sjúkrahúsið verður °pið, þ.e. að allir læknarnir starfa á sjúkrahúsinu, sérfræð- ingarnir munu hafa sjúkrahús- starfið að aðalstarfi, en heim- ilislæknarnir hafa þaðsemauka- starf, en aðalstarf þeirra verð- ureðlilega í heilsugæzlustöðinni. Til þess að losna við alla þá só- un á tíma sjúklinga, sem nú tíðkast, verður viðhöfð tíma- pöntun. Sé upppantað hjá þeim lækni, sem sjúklingurinn kýs lielzt að tala við og viðkomandi læknir getur ekki skotið honum inn á milli, á sjúklingurinn þess völ að bíða þar til læknirinn get- ur sinnt honum, t.d. næsta dag eða annar læknir úr hópnum tekur að sér að leysa vanda hans. Varðandi spjaldskrá verða all- ar upplýsingar um sjúklinga skráðar á sérstök eyðublöð og þeim fylgja bréf frá sjúkrahús- um, álit sérfræðinga, vottorð og skýrslur. Eru þannig á einum stað að finna allar upplýsingar um sjúklinginn, en þessi spjald- skrá er sameiginleg spjaldskrá sjúkrahússins og verður þannig komizt hjá allri óþarfa skrif- finsku. Flytji sjúklingur burt, eru plöggin send til viðkomandi heilsugæzlustöðvar. í lokin lagði Örn áherzlu á, að ekki væri nóg að reisa stöðvarn- ar. Hann sagði: „Vísir að starfs- hóp verður að vera kominn, áð- ur en stöðin rís. Hlutverk opin- berra aðila er að stuðla að því, að fjármagn sé fyrir liendi til framkvæmda og síðan aS líta eftir því, að stöðvarnar verði reknar í samræmi við þau fyrir- heit, sem gefin eru.“ 1 þessu sambandi fagnaði Örn þeirri ný- fengnu frétt frá heilbrigðis- málaráðherra, að bráðlega yrði sú tillaga lögð fyrir Alþingi, að ríkissjóður skuli greiða stofn- kostnað læknamiðstöðva. Gísli G. Auðunsson hafði lát- ið fjölrita erindi sitt líkt og örn og fylgdu því ýmis gögntilskýr- ingar, m.a. meðfylgjandi yfirlit yfir læknaskortinn eftir lands- hlutum. Gísli sagði að af 57 læknishéruðum landsins væru aðeins 31 skipuð héraðslæknum og 12 héruð læknislaus, en bráð- lega mætti búast við að læknis- laust yrði miklu víðar, m.a. vegna þess að aldur færist yfir menn nú í starfi, svo að aðeins í 23 læknishéruðum virðist ríkja nokkurn veginn tryggt ástand. Um ávinning við uppbyggingu læknamiðstöðva og heilsugæzlu- stöðva í strjálbýli vísaði Gísli mjög til þess, sem Örn hafði sagt og ítrekaði nauðsyn slíkra framkvæmda, en taldi að öll þessi starfsemi hlyti að verða nokkru minni í sniðum í dreif- býlinu en í þéttbýli, þótt um liliðstæður væri að ræða. Sér- staklega gerði Gísli grein fyrir liugsanlegu fyrirkomulagi í Húsavíkurhéraði. Erindi þeirra Ólafíu Sveins- dóttur og Auðar Angantýsdótt- ur um „starf héraðshjúkrunar- konu“ voru frásagnir af störf- um þeirra við heilsuvernd og sjúkrahjálp í Grindavík, í Bol- ungavík og á Flateyri. Með tilliti til hversu nýlegt starfsheitið „héraðshj úkrunar- kona“ er meðal okkar og e.t.v. ókunnugt í margra eyrum, vil TÍMARIT II.IÚKRUNARFÉI.AGS ÍSLANDS 89

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.