Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1968, Blaðsíða 28
talningu. Ræktuðust við þá rannsókn colibakteríur, og’ var sjúklingur settur
á meðferð við því, caps. penbritin.
Sólarhringsþvag fyrir protein var aftur sent þann 20/8. Reyndist
þá vera 110 mg% í því.
Bedside" röntgenmynd var tekin af bjarta og lungum tveim dögum
eftir komu sjúklings, og sáust á þeirri mynd stasar í lungum, og e. t. v.
einhverjar bólgubreytingar.
Intravenust pyelogram var tekið, þegar sjúklingurinn var kominn á
bataveg, í þeim tilgangi að reyna að leiða í ljós orsökina fyrir hinni miklu
proteinuri, sem hann hafði. Fyrir þessa myndatöku þarf sjúklingur að
iaxera, fá stólpípu, og fasta frá kl. 24 kvöldið fyrir rannsóknina. Nýrna-
myndirnar sýndu alveg eðlileg nýru, svo að álitið var, að próteinútskiln-
aðurinn hefði stafað af því, að maðurinn var mjög dekompenseraður.
Starfshæfni nýrna var reynd með því að gera koncentrationspróf hjá
sjúklingnum. Þetta próf er framkvæmt þannig, að eftir kl. 18 að kvöldi fær
sjúklingur aðeins þurrkost. Klukkan 20 er þvagsöfnun hafin, og þvagi
safnað til kl. 8 næsta morgun, magn mælt, svo og eðlisþyngd. Þá er þvagi
safnað áfram frá kl. 8 til 10, og það mælt eins og áður. Eftir þennan tíma
má sjúklingur drekka eðlilega. Þvagmagn frá kl. 22 til 8 mældist 275 ml
og eðlisþyngd þess 1020, og frá 8—10 75 ml og eðlisþyngd 1020. Er
niðurstöður þessa prófs lágu fyrir, þótti sýnt, að nýru störfuðu eðlilega.
Röntgenmynd, sem tekin var af hjarta og lungum rúmlega mánuði
eftir innlagningu, sýndi lítið eitt stækkað hjarta, svo og þykknun á pleura
(post myocardiinfarctions syndrom).
Lyfjameðferð.
Eins og fyrr var getið, var sjúklingi við komu á deildina gefið inj.
morphine 15 mg i. v. Þar sem sjúklingur var dekompenseraður, og bjúgur
hafði safnast í lungu, var honum gefið inj. lasix 40 mg i. v., en þetta lyf
hefur kröftuga diuretiska verkun. Inj. cedilanid 0,8 mg i. v. fékk sjúkling-
ur einnig fljótlega eftir komu. Þetta lyf af digitalisflokknum hefur þau
áhrif, að hjartsláttur hægist, kraftur hjartavöðvans eykst, dregur úr blóð-
magni í bláæðakerfi, og léttir með því á starfi hjartans.
Heparingjöf var þegar hafin, en þetta lyf hindrar eða seinkar sega-
myndun í blóði. Fékk sjúklingur inj. heparin 100 mg i. v. x4 á sólarhring.
Þá var hafið að gefa heparin 1 ml subcutant, og jafnframt hafið að gefa
tabl. dicumaroli, sem hafa svipaða verkun, í samræmi við niðurstöður P. P.
mælinga, sem gerðar voru tvisvar í viku. (Þetta er mæling á prothrombin
og proconvertin, sem eru mikilvægir faktorar í storknun blóðsins.) Heparini
var svo seponerað þrem dögum síðar.
Jafnframt áðumefndum lyfjum fékk sjúklingur tabl. acylanid (digitalis),
1 töflu þrisvar á dag, tabl. lasix 40 mg tvisvar á dag. Tabl. meprobamat
fékk sjúklingur 1 töflu þrisvar á dag, en nauðsynlegt er að gefa sjúkling-
um með infarct einhvers konar róandi lyf, vegna hinnar miklu hræðslu og
spennu, sem þjakar þá oft og einatt, svo og vegna þeirrar nauðsynjar að
slíkir sjúklingar séu í algjörri ró og hvíld. Caps. penbritin 250 mg x 4 fékk
þessi sjúklingur einnig vegna meintrar bólgu í lungum, svo og sem með-
ferð gegn bakteríum í þvagi.
Dagleg umhirða og hjúkrun.
Hjúkrun slíkra sjúklinga verður að öllu leyti að vera mjög nákvæm
og góð. Minnsta áreynsla, sem sjúklingurinn verður fyrir getur valdið því, að
hann fái nýjan infarct. Þessir sjúklingar eru nær undantekningarlaust settir
á svokallaða infarct-meðferð. Sú meðferð er í því fólgin, að sjúklingurinn
er á strangri legu, á rólegri stofu, hann mataður, þveginn, og þess gætt, að
hann verði alls ekki fyrir neinu hnjaski. Slika meðferð fékk sjúklingur sá,
er hér um ræðir.
Umbúnað hjá þessum sjúklingi önnuðust alltaf tvær, og var umbúnaður
framkvæmdur eins og venja er hjá sjúklingum með infarct.
Sjúklingur þessi svitnaði mjög mikið, og þurfti oft að þvo af honum
svitann og færa hann í hrein föt. Neðanþvottur var framkvæmdur tvisvar
á dag, og var sjúklingur þá nuddaður vel um leið. Er þessi hreinlætisaðgerð
mjög mikilvæg vegna þess hve sjúklingar með infarct liggja þungt, og alltaf
í sömu skorðum, auk þess virtist þessi sjúklingui* vera sérstaklega við-
kvæmur. Þess var og gætt mjög vel, að hafa lök ávallt vel strengd og þurr,
því vanræksla í þeim efnum eykur mjög hættuna á legusárum.
Fyrstu fjóra dagana var maðurinn hafður í monitor, sem auðveldaði
104 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS