Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Page 8
Gylfi Ásmundsson, sálfræöingur:
Sálfræðileg próf fyrir starfsfólk sjúkrahúsa
Allar stofnanir og fyrirtæld
vilja hafa í þjónustu sinni bezta
starfslið, sem völ er á. Góður
starfskraftur á réttum stað er
stofnun eða fyrirtæki til meiri
ávinnings en nokkuð annað í
starfsemi þess. Á sama hátt get-
ur óhæfur starfskraftur orðið
þeirri sömu stofnun eða fyrir-
tæki til meira tjóns en nokkuð
annað. Því skiptir ráðning
starfsfólks meginmáli í vel-
gengni hverrar stofnunar, og á
það ekki síður við um sjúkra-
hús en aðrar stofnanir. Þeir,
sem þar hafa mannaforráð, gera
sér góða grein fyrir þessu og
eyða oft miklum tíma til þess
að vanda val starfsfólks síns
sem bezt. Þrátt fyrir reynslu
og oft góða mannþekkingu þess-
ara aðila getur stundum slæðst
inn í störf á sjúkrahúsum fólk,
sem af einhverjum ástæðum er
ekki starfi sínu vaxið, og kem-
ur það þá sjaldan í Ijós fyrr en
eftir nokkurn tíma. Er þá sá
tími, sem starfsmanni var ætl-
aður til þess að komast inn í
starfið, orðinn spítalanum til
lítilla nota og e. t. v. fremur til
ógagns. Þá verður að vinna það
lítt öfundsverða verk að segja
manninum upp og ráða nýjan
í hans stað. Ef liægt er að meta
íyrirfram, hvort umsækjandi
um starf hafi til að bera nauð-
synlega eiginleika til þess að
rækja það vel, er það spítalan-
um beinn og óbeinn fjárhags-
legur ávinningur fyrir utan öll
þau vandamál, sem hægt er að
sneiða hjá með slíku mati. Enn-
fremur er það mikilsvert fyrir
starfsmanninn að vita um það
fyrirfram, að hann muni geta
leyst starfið vel af hendi, og þá
ekki síður að fyrirbyggja þau
vonbrigði og óþægindi, sem
hann kann að verða fyrir, þeg-
ar starfið reynist honum of-
vaxið.
Sálfræðileg próf má nota á
tvennan hátt við val á starfs-
fólki: 1) til að velja hæfasta
starfskraftinn úr hópi margra
umsækjenda, 2) til að tína úr
þá umsækjendur, sem tvímæla-
laust eru miður hæfir til starfs-
ins, en láta aðra mælikvarða
ráða vali á þeim, sem eftir
standa. Þegar um aðeins einn
umsækjanda er að ræða eða
mjög fáa, og enginn stenzt þær
kröfur, sem gerðar eru við próf-
unina, getur verið hagkvæmara
að halda stöðunni ófylltri um
sinn fremur en að sitja uppi með
óhæfan mann um lengri eða
skemmri tíma, sem gerir e. t. v.
meira ógagn en gagn. Þessi síð-
artalda notkun sálfræðilegra
prófa er miklum mun vanda-
minni en hin fyrri, þar sem ekki
er reynt að greina á milli þeirra,
sem á annað borð teljast hæfir,
enda koma venjulega ýmis önn-
ur sjónarmið til greina í endan-
legu vali, sem sálfræðiprófið
sem slíkt getur ekki metið, svo
sem menntun, reynsla o. fl.
Þessi aðferð hefur nú verið
notuð um skeið á Kleppsspítal-
anum í tilraunaskyni og gefið
góða raun. Það gefur auga leið,
að starfslið á geðsjúkrahúsi,
Kleppsspítalinn.
72 TÍMARIT H.IÚICRUNARFÉLAGS ÍSLANDS