Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Blaðsíða 9

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Blaðsíða 9
Gylfi Ásmundsson. einkum þeir, sem bein afskipti hafa af sjúklingum, þurfa að hafa til að bera ýmsa eiginleika, svo sem vel þroskaðan persónu- ieika, hlýlegt viðmót, samúð og tillitssemi, svo eitthvað sé nefnt. Þö er meira um vert, að þeir séu lausir við ýmsa þá van- hanta, sem líklegir eru til að koma niður á sjúklingum eða samstarfsfólki, svo ekki sé ftiinnst á, að starfið geti orðið beim sjálfum til tjóns, vegna Þess að þeir geti ekki tekið hinu nndlega álagi, sem það hefur i för með sér. Þannig getur mað- ui' með verulega skapgerðar- galla valdið meiru tjóni á and- iegri heilsu sjúklinga þeirra, sem hann umgengst, heldur en uemur gagni því, sem hann kann að gera í störfum sínum, uuk þess sem hann er líklegur til að valda árekstrum meðal samstarfsfólks síns og skapa slæman anda. Slæmur sam- starfsandi kemur ætíð í ríkum ^useli niður á sjúklingunum. Hófleg taugaveiklun þarf hins vegar ekki að gera mann óhæf- an til starfa með geðsjúkum, svo fremi hann hafi nægilegan Persónuleikastyrk til að halda vandamálum sínum aðskildum frá vandamálum sjúklinganna. Þá fyrst er taugaveiklun til verulegrar óþurftar í stai'fi, þegar stai’fsþrek lamast vegna of mikils kvíða eða stai’fsmað- urinn lifir sig svo inn í vanda- mál sjúklinganna, að það valdi honum þjáningum í stai’fi og utan þess. Sjaldan fer það á milli mála, ef umsækjandi um stai’f er með vii’ka geðveiki, og þarf ekki prófun til. Sjúkling- ur með alvai’legan geðsjúkdóm er að sjálfsögðu ekki ráðinn til starfa á geðsjúki’ahúsi. Stund- um getur þó alvai’legur geð- sjúkdómur leynzt undir niðri, en brotist aðeins upp á yfir- borðið við sérstakt andlegt álag. Slíkt álag getur skapast í starfi með geðsjúkum, og væi’i illa farið, ef sjúkrahúsið yrði til þess að kalla fram geðsjúkdóm, einkum ef auðvelt er að fyrir- byggja slíkt með réttu vali á starfsfólki. Einstaklingar eru mjög misjafnlega sterkbyggðir andlega. Sumir eru lítt fallnir til að starfa innan um sjúkt fólk, þótt alvarlegur geðsjúk- dómur liggi ekki til grundvallar. Enn aðrir, þótt heilbrigðir telj- ist, eru með svo afbrigðilegan persónuleika á einhvern hátt, að tæpast þykir heppilegt, að þeir hafi veruleg afskipti af veiku fólki, sem er að í’eyna að kom- ast til eðlilegs lífs á ný. 1 stuttu máli er því tilgang- ur með sálfræðiprófum, sem lögð eru fyrir umsækjendur um störf á sjúki-ahúsum, sá að ganga úr skugga um, að vænt- anlegir starfskraftar spítalans séu í sæmilegu andlegu jafn- vægi, með ti’austa og ógallaða skapgerð og með tiltölulega eðli- legan persónuleika. Auk þess verður að ganga úr skugga um, að starfskrafturinn hafi nægi- lega dómgreind til að gegna því starfi, sem honum er ætlað. Þegar ákveðið var að gera til- í’aun með sálfræðiprófanir á starfsfólki Kleppsspítalans, urðu fyrir valinu 2 próf: Raven Progi’essive Matrices 1938, sem metur m. a. dómgreind og sjálf- stæða röki'étta hugsun einstakl- ingsins, og MMPI (Minnesota Multiphasic Personality Inven- toi’y), sem er persónuleikapróf. Þau hafa bæði þann kost, að leggja má þau fyrir hóp manna í einu. Sá, sem prófin eru lögð fyrir, vinnur sjálfstætt að þeim og skriflega, og sá sem leggur þau fýrir, getur sinnt öðrum stöi’fum á meðan hann situr yfir. Síðast en ekki sízt eru þau einföld til þeirrar úrvinnslu, sem hér um ræðir. Raven-prófið er samsett af 60 myndum eða mynztrum, sem öll hafa það sameiginlegt, að hluta úr mynztrinu vantar. Hlutann, sem fullgerir mynzti’- ið, á síðan að velja úr nokki'- um möguleikum, sem birtast undir mynzti’inu, og skrifa númer þess sem valinn er á þar til gei’t eyðublað. Pi’ófinu ljúka flestir á 30—60 mín., en tíma- takmöi’k eru engin. Eitt stig er gefið fyrir hverja rétta lausn, og stigafjöldinn er síðan borinn saman við töflur, sem byggjast á stöðlunum á hinum ýmsu ald- urshópum. Prófið kemur fyrst TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 73

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.