Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 10

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 10
og fremst að notum við val á ósérlærðu starfsliði, þar sem námsstig og skólaeinkunnir gefa litla hugmynd um dómgreind einstaklingsins. Gerðar eru ákveðnar lágmarkskröfur um frammistöðu í prófinu, og eru þær ekki strangari en svo, að hver sæmilega greindur maður stenzt þær auðveldlega. Áf eðli- legum ástæðum er reynt að forð- ast að ráða mjög illa greint fólk að spítalanum. Sérhæft starfs- lið, sem lokið hefur prófum í grein sinni, hefur vafalaust allt nægilega almenna greind, en dómgreind getur þó skerzt af ýmsum orsökum og er sjálfsagt að ganga úr skugga um það. Þá er mikilsvert að vita um þá einstaklinga, sem eru líklegir til að hafa mjög góða dóm- greind, til þess að geta fremur valið þá til ábyrgðarmeiri starfa. MMPI-prófið samanstendur af 550 staðhæfingum, sem lýsa hugsunum, tilfinningum, atferli og almennu heilsufari einstakl- ingsins. Sá sem prófið tekur, á einfaldlega að merkja við á þar til gert eyðublað, hvort stað- hæfingin sé rétt eða röng varð- andi hann sjálfan, hvort hún eigi við hann eða ekki. Atriðin eru upphaflega valin þannig, að tekin eru mest einkennandi lýsingar ákveðinna sj úkdóms- hópa á einkennum sínum, per- sónuleika, skoðunum o. fl. Nið- urstöður prófsins sýna, að hve miklu leyti hinn prófaði líkist sjúklingum með tiltekna sjúk- dóma eða sjúkdómseinkenni. Prófið hefur að sjálfsögðu verið vandlega staðlað í mörgum lönd- um. Hér á landi hefur verið gerð minniháttar stöðlun, sem þó er nægileg til að sýna, að prófið er nothæft hér á landi með lítils háttar breytingum, sem gerðar hafa verið. Með úrvinnslu á prófinu má finna út, hvort og þá hve mikið einstaklingurinn víkur frá hinu normala í hverj- um þætti. Sömuleiðis hafa verið gerðar rannsóknir á hlutföllum innbyrðis á milli þátta, þannig að lokaniðurstaðan felur í sér alhliða lýsingu á persónuleikan- um. Sjúkdómsþættirnir eða klinisku þættirnir eru 8: hypo- chondria, depression, hysteria, psykopatia, paranoia, psykas- thenia, schizofrenia og mania. Auk þess eru nokkrir aðrir þætt- ir venjulega metnir, svo sem innhverfa/úthverfa og styrk- leiki sjálfsins, svo eitthvað sé nefnt. Prófið tekur 1 til 2 klukkustundir og töluleg úr- vinnsla tekur aðeins stutta stund og fæst þá allgott heild- aryfirlit yfir persónuleikann og andlegt ástand einstaklingsins í línuritsformi. Þeir mælikvarð- ar, sem látnir eru gilda í þessu prófi um val á starfsfólki eru tiltölulega einfaldir. Styrkleiki sjálfsins má ekki vera lakari en svo að um 12% fólks sé með minni styrk en viðkomandi ein- staklingur (en það svarar til þess, að einstaklingurinn má ekki víkja meira en einu dreifi- bili niður á við frá meðaltalinu). Reynslan hefur sýnt, að fólk með lélegri persónuleikastyrk á í erfiðleikum með að valda álagi hins daglega lífs, og er því frem- ur ólíklegt til að valda því auka- álagi, sem starf á geðsjúkrahúsi hefur í för með sér. Sjúkdóms- þættirnir mega ekki vera meira áberandi en svo hjá umsækj- anda um starf, að 2—3% fólks sé hærra en hann í hverjum þætti. (Þetta svarar til þess að einstaklingurinn má ekki víkja meira en tveimur dreifibilum upp á við frá meðaltalinu). Þetta er hin almenna regla, en nokkrar undantekningar eru gerðar. Þannig er það ekki tal- ið til skaða, þótt einn þáttur fari upp fyrir mörkin, ef allir hinir eru innan eðlilegra marka, en þó fer það nokkuð eftir því hver þátturinn er. Þunglyndi einstaklingsins má t. d. vera dá- litlu hærra en mörkin og er ekki talið til skaða. Verra er ef ein- staklingurinn fer upp fyrir mörkin í psykopatiu, þótt aðrir þættir séu eðlilegir. Stundum geta komið fram markatilfelli og verður þá að meta þau með frekari prófum eða viðtali. I prófi sem þessu má alltaf gera ráð fyrir matsskekkju. Þeir mælikvarðar, sem notaðir eru hér, miða að því, að skekkj- an verði á þann veg, að engum sæmilega andlega heilbrigðum manni sé neitað um starf á grundvelli prófsins. Aftur á móti er nokkur hætta á, að ein- staka starfsmaður í slæmu and- legu jafnvægi eða með óheppi- lega skapgerð falli innan þeirra marka í prófinu, sem hér eru metin eðlileg. Ef mörkin væru höfð þrengri, mundu hins veg- ar einstaka vel hæfur starfs- kraftur tapast, en minni líkur fyrir því, að óheppilegt starfs- fólk yrði valið. Skekkjur þess- ar eru þó óverulegar miðað við það hagræði og hlutlæga mat, sem fæst með prófunum. Á Kleppsspítalanum er nú allt nýtt starfsfólk, sem hefur bein afskipti af sjúklingum spítalans, prófað með þeim sál- fræðilegu prófum, sem hér hef- ur verið lýst, áður en það hefur starf. Áður hafði mestur hluti stafsliðs spítalans verið prófað- ur til að athuga gildi prófanna til vals á starfsfólki og til að ákveða þá mælikvarða, sem bezt hentuðu. Undantekningalítið hefur starfsfólkið tekið þessum nýmælum vel, og flestir hafa sýnt þeim talsverðan jákvæðan áhuga. Starfsfólk hefur fullviss- að sig um, að farið er með próf- gögnin sem strangasta trúnað- armál, en eins og unnið er úr þeim, koma einkamál starfs- mannsins ekki einu sinni fyrir augu þess sálfræðings, sem vinnur úr þeim, heldur aðeins tölur um ákveðna þætti í per- sónuleika hans. I mörgum löndum eru sál- fræðileg próf notuð í síauknum Framh. á bls. 92. 74 TÍMAIUT IIJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.