Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Síða 12
fer með atkvæði fyrir hönd fé-
lags síns í fulltrúaráðinu. Full-
trúaráðið er æðsta vald samtak-
anna og kemur saman til funda
annað hvert ár. Ritari hvers
félags sækja fundina með for-
manni. Ritarar hafa málfrelsi,
en hafa ekki rétt til að flytja
tillögu eða greiða atkvæði.
Stjórnina skipa forseti og þrír
varaforsetar. Þeim til aðstoð-
ar eru valdir ellefu formenn að-
ildarfélaga. Þetta er fram-
kvæmdaráðið (Board of Direc-
tors). Þessir ellefu formenn sem
eru kosnir í framkvæmdaráð-
inu hafa ekki lengur rétt til setu
í fulltrúaráðinu. Verða aðildar-
félög þeirra því að tilnefna til
dæmis varaformann í fulltrúa-
ráðið. Framkvæmdaráð og
nefndir eru kosnar til fjögurra
ára.
Alice Girard forseti I.C.N.
(jAlþjóðasamband hjúkrunar-
kvenna) setti fundinn og bauð
alla velkomna. Sheila Quinn
framkvæmdastjóri tók síðan til
máls. En á henni hvíldi mest
undirbúningur að þinginu og
störfum þess. Ræddi hún um
störf og rekstur félagsins. Að
því loknu máttu formenn bera
fram spurningar. Tvær mínútur
voru til umráða fyrir hvern for-
mann, sem þótti heldur stuttur
tími. Fóru því sumar fram yfir
ákveðinn tíma, þrátt fyrir harð-
ar og líflegar umræður. Á eftir,
frá kl. 19.30—20.30, var mót-
taka haldin af forseta I.C.N.,
Alice Girard og hjúkrunarkon-
um Quebec, á Chateau Chain-
plin Hotel, sem er glæsilegt
hótel.
Þar sem við vorum þreyttar
eftir fyrsta fundardag og mátt-
um búast við erfiðum degi fram-
undan fórum við snemma í hátt-
inn.
Sunnudagur 22. júní.
Við stöllurnar fjórar byrjuð-
um daginn snemma. (Frú Guð-
rún Marteinsson var ekki kom-
in). Við gengum um nágrenni
hótelsins þar sem við bjuggum.
Við horfðum á gamla franska
byggingarstílinn um leið og við
nutum sólarhitans. En Montreal
er stærsta borg Kanada og var
upphaflega byggð af Frökkum
og ber enn merki þess. Við
skoðuðum meðal annars St. Jos-
ephs kirkju, sem við vorum all-
ar heillaðar af. Er göngu okk-
ar var lokið, bjuggum við okk-
ur til opnunar mótsins, sem
byrjaði kl. 14.30 við hátíðlega
athöfn í Notre Dame kirkju.
Paul Gi-egoire erkibiskup Mon-
treal og systir Marie Falicitas
formaður Hjúkrunarfélags Kan-
ada (C.N/A.) héldu stutt ávörp.
Bænir voru sagðar af fulltrú-
um hindúatrúar, Buddhatrúar,
Múhameðstrúar og kristinnar
trúar. Einnig var lesið upp úr
Torah og Gamla testamentinu
af Rabbi H. Richard White. I
lok guðsþjónustunnar var blóm-
sveigur lagður við minningar-
töflu fyrstu kanadisku hjúkr-
unarkonunnar, Jeanne Mance.
Heiðursgestur við guðþjónust-
una var Roland Michener, land-
stjóri Kanada.
Kl. 18.30 var setningarathöfn,
sem fram fór á Place Bonaven-
tui'e. Athöfnin fór mjög vel
fi-am frá byi-jun til enda. Þetta
er í fyrsto sinn sem ég er
viðstödd athöfn sem þessa
og þótti mér mikið til hennar
koma. Hvílík sjón, þúsundir
kvenna í mismunandi skrautleg-
um þjóðbúningum. Islenzki
þjóðbúningurinn virtist ekki
síður vekja athygli en hinir
þjóðbúningarnir. Sá hluti at-
hafnarinnar er hafði einna
sterkust áhrif á mig var göngu-
marzinn við byi’jun athafnar-
innar. Hjúkrunai’nemar frá
hjúkrunai’skólum í Montreal,
klæddar sínum skólabúningum,
héldu hver fyrir sig á fána mis-
munandi landa með viðeigandi
formann aðildai’félags og ritara
marzei’andi á eftir. Það var
gengið á í’auðum di’egli frá svöl-
um, er voru í kringum fundai’-
salinn, sem var geysilega stór
niður að upphækkuðu sviði í
miðjum salnum. Þar skyldu leið-
ir formanna og ritara. Foi’menn
fengu sæti ögrum megin við
sviðið, ritarar hinum megin.
Hjúkrunai’nemarnir stilltu sér
hins vegar upp með fánana í
kringum sviðið, sem myndaði
eins konar mai’glitt blóm. — Því
næst gengu formaður I.C.N.,
stjói’nin og heiðursgestir upp á
sviðið, þar sem hver hafði sitt
ákveðið sæti. Sviðið var á hægri
hringhreyfingu á meðan í’æðu-
höld fóru fram, þannig að fjöld-
inn gat betur fylgzt með hvað
fram fór. Alice Gii’ard, foi’seti
I.C.N. setti fundinn og bauð
fundargesti velkomna. Einnig
minntist hún á 70 ára afmæli
sambandsins á þessu ári. Sheila
Quinn, framkvæmdastjóri, var
annar í’æðumaður. Síðan tók
systir Mary Falicitas til máls.
Þakkaði hún meðal annai’s góða
samvinnu hjúkrunai’kvenna um
heim allan og lét í Ijósi von um
aukin samskipti í fi’amtíðinni.
Heiðursgestir voru Jean-Jac-
ques Berti’and, landstjói’i Que-
bec, Jean Di-apeau, borgai’stjóri
Montreal, og Dr. Robei’t K. Mer-
ton, er bar kveðju fi’á foi’sætis-
ráðherra Kanada, Pierre-Elli-
ott Trudeau. Hver fyrir sig hélt
stutt ávarp.
Ljósmyndai-ar og blaðamenn
létu ljós sitt skína að athöfn
lokinni.
Mánudagur 23. júní.
Alice Gii’ard, forseti, setti
fundinn. Hún skýrði hvernig
samþykktir síðasta þings höfðu
reynzt í framkvæmd og hvað
annað hafði gerzt milli þinga.
Einnig kom hún með uppástung-
ur er mætti hugleiða á þessu
þingi eins og t. d. að koma á
fi-amfæri alþjóðastai’fsskíi’teini
(International service card)
fyrir hjúkrunai’konur til aðstoð-
ar annai’S staðar en í heima-
landi. Reyna að komast að nið-
urstöðu fyrri umi’æðna um
76 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS