Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Page 14

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Page 14
Miðvikudagur 25. júní. Þennan dag byrjuðu opnir fundir, sem voru einnig fimmtudag og föstudag. Það var skrítið að spennan var horfin, er hafði verið ríkjandi seinustu dagana. Virtust þinggestir ánægðir með ákvarðanir, er gerðar höfðu verið og sátu því rólegir og virtust njóta fyrir- lestra er haldnir voru um mis- munandi málefni hver öðrum skemmtilegri og fullir af fróð- leik. Það er of langt að telja allt upp er fram fór, en svo eitthvað sé nefnt get ég minnzt á tækni- legar breytingar í hjúkrun, breytingar á kennslu, hjúkrun- arlöggjöf, möguleika á fram- haldsmenntun mismunandi greina á sviði hjúkrunarmála. Hvað er framundan? Sjúkling- urinn, sem meðlimur fjölskyldu í framtíðinni o. m. fl. Alice Clamageran fyrsti vara- forseti setti fundinn. Meðal ræðumanna var Hr. Milton Gregg, heilbrigðismálaráðherra Kanada og Dr. John Wallace, Toronto General Hospital. ,A1- mennar umræður voru í lokin, eins og var í lok hvers fundar- dags. Þetta kvöld var öllum þing- gestum boðið á sinfóníuhljóm- leika, er stóðu yfir í 2i/j klst., sem haldnir voru á Forum, bygging, sem tekur um 12.000 gesti. Þarna komu fram þekktir tónlistarmenn. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Franz Paul Ducker. Einleikari á píanó var Ronald Turini og söngkon- an var Glaire Garnier. Yndis- lega falleg verk voru spiluð og sungin. Nutum við þess allar í fyllsta mæli get ég fullvissað. Að hljómleikunum loknum var móttaka, haldin af Alice Girard forseta I.C.N., er fram fór á Salon Westmont Plasa Bona- venture. Þar var tónlistarfólkið meðal gesta. Á fimmtudegi var Philipp Garigue (University of Mont- real Faculty of Social Sciences) Forseti ICN, Alice Girard, undirrit- ar samning um styrk til framhalds- náms hjúkrunarkvenna, er fyrirtæk- ið 3M veitir. Sjá nánar í Fréttir og tilkynningar. einn ræðumanna. Sagði hann meðal annars að þörf væri á að finna leiðir til þess að breyta heimilisvenjum hjá ákveðnum stéttum eða jafnvel heilum þjóð- félögum. Sem dæmi tók hann fram að í sumum löndum væri ki’afist læknisskoðunar fyrir giftingu. Hann sagði að hjúkr- unarkona yrði að skilja mis- munandi hegðun, skilja að fjöl- skyldusiðgæði er grundvöllur- inn til þess að verjast sjúkdóm- um og veita betri endurhæfingu. — Ingrid Hámelin frá Helsinki minntist lauslega á alþjóðaþing- ið 1929. Hún sagði að kennsla í hjúkrunartækni væri ennþá bundin við kennsluáætlanir, sem hafa fastan grundvöll og sem við ekkjum. Hún spurði: ,,Er h j úkrunarmenntun okkar í grundvallaratriðum rétt eins og hún er í dag, hvað þá á morg- un?“ Kl. 12.00 til 14.00 var mót- taka hjá C.N.A. á Chateau Champlin hóteli. Þar var mikið um dýrðir og vel á borð borið eins og á öllum þeim stöðum er við höfum verið. Við klæddumst íslenzka þjóðbúningnum við þetta tækifæri. Eins og áður var lítill friður fyrir ljósmyndur- um og fólki, sem dáðist að bún- ingnum. Kl. 17.00 fór fram stjórnarkosning, en úrslit þeirra voru kunngerð næsta dag. — Kl. 18.30 var enn móttaka hjá hjúkrunarfélagi Bahama á Hot- el Bonaventure. Þar brugðum við okkur til strandar Bahama. Vorum við allar í sólskinsskapi að þeirri ferð lokinni. Föstudagur 27. júní rann upp, seinasti dagur þingsins. Tíminn leið allt of fljótt. Við vorum rétt farnar að kynnast starfssystr- um okkar er þinginu var lokið og leiðir okkar skildu. Við gerð- um okkur þó grein fyrir því að við vildum endurnýja þá kynn- ingu í framtíðinni. Meðal ræðumanna seinasta daginn var Dr. Robert K. Mer- ton, prófessor í þjóðfélagsfræði frá Columbia háskólanum í New York og ræddi hann um stjórn- un (Leadership in action). Skilningur á stjórn frekar en nota vald ætti að ríkja í hjúkr- unarstarfinu (The concept of leadership rather than authori- ty should govern the practise of nursing), sagði Joyse C. Rod- mell, skólastjóri hjúkrunarskól- ans í Sydney í Ástralíu. Kl. 20.00 rann upp sú stund, er allur þingheimur beið eftir. Þá voru úrslit kosninganna kunngerð. Eftirvæntingin var svo mikil að allt skvaldur þagn- aði og heyra hefði mátt nál detta í þessum stóra sal. Byrjað var á inntöku nýrra aðildafélaga, sem voru 11 talsins. Þau voru Argentina, Bermuda, Bolivía, Costa Rica, Ecuador, Líbanon, Marocco, Nepal, Portúgal, Salvador og Uganda. Forseti I.C.N. kallaði upp nöfn nýju að- ildarfélaganna. Gengu formenn viðeigandi félaga upp á svið og þckkuðu með handabandi og héldu síðan smá ávörp. Þær voru klæddar þjóðbúningum síns lands, sem vakti mikla hrifningu. Síðan voru úrslit kosninga lesin upp. Mun ég telja fyrrverandi og núverandi for- seta og varaforseta. 78 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.