Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 15

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 15
Fyrrverandi: Ethel Alice Girard, forseti, Alice Clamageran, 1. varafor- eti, Ruth Elster, 2. varaforseti, Kofoworola Pratt, 3. varafor- seti. Núverandi: Margrethe Kruse (Danmörku) Dorothy A. Cornelius (U.S.A.) Ethel Alice Girard (Kanada) Ruth Elster (Þýzkalandi). Mikið lófatak og húrrahróp gall við er hinn kjörni forseti gekk fram. Voru þær glæsileg- ar ásýndum forsetarnir tveir, sá sem var að hætta og sá sem var að taka við, er þær þökk- uðu hvor annari fyrir með inni- legu faðmlagi. — Þá hélt E. A. Girard stutt lokaávarp og þakk- aði gott samstarf liðinna ára og bauð nýju stjórnina vel- komna til starfs. Margrethe Kruse flutti ávarp og þakkaði það traust er þingið hafði sýnt henni. Ávarp hennar hafði sterk áhrif á fundargesti. Er athöfninni var lokið þeystu ljósmyndarar og fund- argestir að sviðinu af svo mik- illi ákefð, að bæði A. Girard og M. Kruse urðu að fá lög- regluvernd út úr fundarsalnum. Kirsten Stallknecht, formaður Danska hjúkrunarfélagsins, hafði móttöku fyrir hinn ný- kjörna forseta á Hotel Bona- venture. Og á eftir bauð hún persónulega nokkrum hjúkrun- arkonum, þar á meðal okkur Islendingunum til híbýla sinna, þar sem við skáluðum í kampa- víni henni til heiðurs. Þrátt fyrir mikið annríki var séð fyrir ferðum um borgina, þar sem helztu byggingar voru skoðaðar. Einnig var kostur á lengri ferðum eftir fundina fyr- ir þær hjúkrunarkonur, er höfðu áhuga. Laugardaginn notuðum við til þess að skoða heimssýning- una (Expo), sem við höfðum mikið gaman að. Því miður gátu systir Thaddeus og systir Ger- trude ekki verið með okkur á heimssýningunni. Fyrir utan fundina sjálfa voru alls kyns fræðslufyrir- lestrar úti í bæ, sem stóðu okk- ur til boða. Má nefna notkun reikningsheila (computers) við h j úkrunarkennslu, h j úkr unar- blaðamennsku, hjúkrun sjúkl- inga eftir nýrnaflutninga og hjartaaðgerðir, geðsjúkdóma og hjúkrun geðveikra, hjúkrunar- rannsóknir, Space Age Nurs- ing (þýðing?) o. fl. Þessir fáu dagar í Montreal liðu fljótt, en verða okkur, er þar vorum, ógleymanlegir. Næsta alþjóðaþing mun verða í Mexico 1973. Vonandi geta fleiri íslenzkar hjúkrunarkonur sótt það þing, en í ár. Sá tími og það fé, sem eytt er í það, svarar kostnaði. NÝ I..YF KYNNT ESBATOL - REGULIN „Nú duga ekki svefntöflur lengur, ég VERÐ að borga félagsgjaldið". Stöðugt er leitað nýrra lyfja gegn háþrýstingi. Flest þau sem völ er á hafa í för með sér óþægi- legar aukaverkanir fyrir sjúkl- inginn. Nýlega kom á markaðinn lyf, bethainidin, sem hér á landi fæst undir nöfnunum Esbatal og Regulin. Það verkar á svipaðan hátt og Ismelin, sem lengi hef- ur verið notað hér, þ. e. hefur áhrif á taugaenda og samskeyti í ósjálfráða taugakerfinu og kemur í veg fyrir verkun nor adrenalins á þessum stöðum. Hins vegar verkar það hraðar og er því auðveldara að ákveða skammtastærð og það sem kannske er mest um vert hefur færri aukaverkanir og fátíðari en flest önnur kröftug blóð- þrýstingslækkandi lyf. Þar við bætist svo, að verðið á þessu lyfi er mjög skikkanlegt miðað við það, sem tíðkast um slík lyf. Töflustærðin er 10 og 50 mg og byrjunarskammtur 5 mgX2 á dag. Síðan er skammturinn auk- inn um 5 mg á dag, unz tilætluð- um árangri er náð, venjulega með 50—100 mg á dag. Sé um að ræða alvarlegan háþrýsting má gefa stærri skammta í byrj- un og þá jafnvel dæla lyfinu í æð. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 79

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.