Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 16
NYR FORSETI ICN
Ritari danska hj úkrunarfé-
lagsins, Margrethe Kruse, var
kosin forseti Alþjóðasambands
hjúkrunarkvenna til næstu fjög-
urra ára, á síðasta alþjóðaþingi,
sem haldið var dagana 22.—28.
júní 1969, í borginni Montreal
í Kanada. Af þessu tilefni lagði
ritstjórnin fáeinar spurningar
fyrir formann HFl, Maríu Pét-
ursdóttur.
Hvað finnst þér um Icjör Mar-
grethe Kruse?
Það var mörgum fagnaðar-
efni að hún var kosin, ekki sízt
dönskum og raunar okkur öll-
um Norðurlandahjúkrunarkon-
unum. Margrethe Kruse er
þekkt vegna verkefna, sem hún
hefur fengist við undanfarin ár,
sem fulltrúi hjúkrunarstéttar-
innar, á vegum Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar (ILO), sbr.
Tímarit Hj úkrunarfélags Is-
lands 1. tbl. 1968. Einnig er hún
þekkt meðal hjúkrunarkvenna
víða um heim fyrir nefndarstörf
hjá ICN, og var hún síðastliðin
4 ár formaður þeirrar nefndar,
sem fjallar um menntun, starfs-
skilyrði, þjóðfélagsleg og fjár-
hagsleg velferðamál hjúkrunar-
kvenna, en sú nefnd lagði fram
mjög athyglisverða starfs-
skýrslu og tillögur. M. a. kom
nefndin með uppkast að laga-
frumvarpi til fyrirmyndar og
leiðbeiningar hj úkrunarf élög-
um, sem annaðhvort liafa ekki
fengið starfsréttindi lagalega
viðurkennd, í sínu landi, eða þar
sem slík lög þarfnast endurbóta.
Átti Hjúkrunarfélag íslands
nokkum þátt í framboði M. Kr.
og kjöri?
Á síðasta formannamóti ICN
í júlí 1967 í Evian í Frakklandi
var í einkasímtölum farið að
ræða um næsta forsetakjör. Þá-
verandi formaður hjúkrunar-
félagsins í Panama hafði orð
á því við formann finnska
hjúkrunarfélagsins og mig, að
hjúkrunarkonur frá Mið- og
SuðurnAmeríku mundu hafa
áhuga á að velja Margrethe
Kruse til forseta. Við nánari
athugun kom í ljós að fleiri voru
sama sinnis og var þá fært í
tal við Margrethe Kruse hvort
hún yrði fáanleg. Tók hún þess-
um tilmælum vinsamlega. Á
stjórnarfundi í HFl var sam-
þykkt að fara þess á leit við
Dansk Sygeplejerád að tilnefna
Margrethe Kruse til forseta-
kjörs, svo okkur gæfist kostur
á að styðja hana í framboði.
Til þess að framboð teljist gilt,
verður fyrst viðkomandi félag
í heimalandi og svo síðan minnst
tvö önnur félög að standa að
tilnefningu. Þegar þessum
grundvallaratriðum hafði verið
fullnægt, leyfði ég mér í nafni
félagsins, að fenginni stjórnar-
samþykkt, að senda öllum for-
mönnum aðildarfélaga ICN
bréf til að afla málinu stuðn-
ings.
Bættust nokkur ný félög í
sambandið að þessu sinni?
Aðildarfélögin voru 63, 59
sendu fulltrúa. Vitanlega eru
félögin misjafnlega fjársterk,
og sum þeirra hafa ekki bol-
magn til að greiða kostnað full-
trúa, en flest félögin senda for-
mann, eða staðgengil fyrir
hann, sem er þá fulltrúi félags-
ins, með tillögu og atkvæðarétt,
og honum til aðstoðar ritara.
Sá mikli fjöldi víðs vegar að
úr heiminum, sem tekur þátt í
þessum þingfundum, gerir það
á eigin kostnað, af áhuga fyrir
félagsmálum og sem skemmti-
ferð um leið.
Þátttakendur munu hafa ver-
ið um 10.000, og frá 70 löndum,
en félög sem eru að sækja um
aðild mega senda áheyrnarfull-
trúa.
Að þessu sinni voru 11 félög
tekin í sambandið. Nokkur fleiri
höfðu sótt um, en hafa ekki enn
fengið meðmæli nefndar þeirr-
ar, er á vegum sambandsins
fjallar um aðildarhæfni um-
sækjanda.
Þessi 11 félög voru frá eft-
irtöldum löndum, Argentínu,
Bermuda, Bolivíu, Costa Rica,
Equador, Libanon, Marocco,
Nepal, Portúgal, Salvador og
Uganda. Frá Júgóslavíu hafði
nefndinni borizt úrsögn, þar
sem félagið hafði verið lagt
niður.
Kostaði HFÍ nokkurn fulltrúa
að þessu sinni?
Okkur í stjórn félagsins
fannst að félagið hefði í svo
mörg horn að líta, að við gæt-
um ekki ætlast til að það greiddi
ferða- og dvalarkostnað, þótt við
teljum mjög mikils virði, á ýms-
an hátt, að taka þát í þessu al-
þjóðlega samstarfi. Samþykkt
var þó að greiða þátttökugjald-
ið: 40 dollara fyrir formann fé-
lagsins.
80 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS