Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 18

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 18
* Utbreiðslu- og kynningarnefnd SSN Fundur haldinn í Kaupmannahöfn Ritstjóri Tímarits Hjúkrun- arfélags íslands átti þess kost að sækja fund í útbreiðslu- og kynningarnefnd eða „pressu- nefnd“ SSN í Kaupmannahöfn dagana 8. og 9. maí s.l. Fundinn sátu: Nefndarkonur: Marjatta Katajamáki, Finnlandi, formaður. Elsabeth Engesland, Noregi. Kerstin Hesselström, Svíþjóð. Vera Brock, Danmörku. Varamenn: Ingrid Reinan, Noregi. Marianne Lundquist, Sví- þjóð. Helga Josephsen, Dan- mörku. Ritstjórar: Gisela Juselius, Finnlandi. Elísabeth P. Malmberg, Islandi. Susanne Stubbendorff, Svíðþjóð. Áheyrnarfulltrúar: Kristen Brink, Danmörku. Solvejg Torbensen, Dan- mörku. Dansk sygeplejerád var gest- gjafi okkar og var fundurinn haldinn í húsakynnum þess í Vimmelskaftet eða „á Strik- inu“ eins og við köllum það. Móttökurnar voru frábærar og hver mínúta skipulögð fyrir okkur þessa tvo daga. Umræðuefni fundarins að þessu sinni var aðallega: 1. Upplýsingaþjónusta á SSN þingi á íslandi 1970. 2. Hátiöarit, sem gefið verður út í tilefni af 50 ára afmæli SSN 1970. 3. Samvinna ritstjóranna við hin norrænu hjúkrunartíma- rit o. fl. Á SSN þinginu á Islcmdi, sem haldið verður í júlí 1970, koma til landsins um það bil 800 hjúkrunarkonur frá hinum Norðurlöndunum. Eins og gef- ur að skilja er áhugi almenn- ings mikill fyrir svo fjölmennu þingi og því mokið atriði að dagblöð, hljóðvarp og sjónvarp á Islandi fái góðar upplýsingar um hvað sé á döfinni á þingi þessu. Ekki nægir að hefjast handa um upplýsingar þessar þegar mótið hefst, heldur verður með fyrirvara að kynna hjúkrunar- stéttina, bæði hér og á hinum Norðurlöndunum. Vandamál okkar verða að koma fram, til- lögur til úrbóta og ýmsar ný- ungar í starfi og félagsmálum, Ritstjórarnir Stisanne Stubbendorff, Svíþjóð og Elisabeth Engesland, Noregi. viðhorf til heilbrigðismála, hjúkrunarnáms o. fl. Einnig þurfum við að senda h j úkrunartímaritum N orður- landa greinar um ísland, íslenzk hjúkrunarmál og íslenzku h j úkrunarstéttina. Geysilegur áhugi er fyrir þingi þessu meðal hjúkrunar- kvenna á Norðurlöndum og margar hafa í hyggju að dvelj- ast hér lengur en þingið stend- ur yfir. Er því mikið atriði að búa vel að þessum stóra hópi og reyna að gera dvölina hér eftirminnilega. Fulltrúi Islands á fundinum í Kaupmannahöfn gerði grein fyrir undirbúningi okkar í sam- bandi við þingið og afhenti rit- stj órum h j úkr unartímaritanna á hinum Norðurlöndunum fyrstu greinarnar frá Islandi til birtingar. Voru það „Sygepleje i Island“ eftir Maríu Pétursdóttur, formann HFl. „Nogle fakta om Island“ eftir Guðmund Þorláksson, cand. mag., og grein um Samtök heilbrigðisstétta eða „Sundhedsgrupper i Island danner forbund“. Greinar þessar verða birtar á næstunni ásamt fjölda mynda, sem þeim fylgdi. Eitt aðalumræðuefni á fund- inum var um „motto“ eða lykil- orð SSN þingsins á Islandi. Er það á skandinavisku málunum fyrst um sinn „VURDERING“, sem þýða má stranglega sem MAT og frjálslega sem IHUG- UN. Ut frá lykilorðinu væri hægt að ræða ýmis hjúkrunarmál sem 82 TÍMAKIT HJÚKRUNAKFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.