Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Page 19
Marjatta Katajamiiki, formaður
„pressunefndar“ SSN og ritstj. THÍ.
eru ofarlega á baugi. Ekki voru
fundarkonur ánægðar með orð-
ið „vurdering“ og reyndu án ár-
angurs að finna annað liprara
orð, sem „dekkaði" sama hug-
tak og gengi betur í eyru al-
mennings.
Komu fram margar tillögur
svo sem „Sygeplejen i sögelys-
et“, „Sygeplejen under lup“,
„Udvikling og framgang“,
„Forske, finde, formá“, o. s.
frv. Að lokum var samþykkt
að íslenzka orðið „lhugun“ væri
ágætt orð, það hefur hljóm-
grunn í hinum þremur skani-
navisku málum, svo samþykkt
var að bera fram þá tillögu við
stjórn SSN að það yrði notað
sem lykilorð á þinginu.
Um hátíSarit vegna 50 ára
afmæli SSN er það að segja að
Hjúkrunarfélag Tslands hefur
þegar sent ritstjóra ritsins,
Veru Brock, nokkur gögn þar
að lútandi, greinar, athuga-
semdir og myndir.
Rætt var um samvinnu nor-
rænu ritstjóranna og mikilvægi
þess að hittast árlega. Væri það
til mikils gagns að skiptast á
skoðunum, viðhorfum og
reynslu. Þess má geta að rit-
stjórar norska og sænska hjúkr-
unarblaðsins eru ekki hjúkrun-
arkonur heldur blaðakonur og
þykir þeim það bæði gott og illt.
Að kvöldi fyrri fundardags-
ins bauð frk. Vera Brock okk-
ur til kvöldverðar og sýndi þar
nýja hæfileikahlið á sviði mat-
argerðar og garðræktar.
Seinni dagurinn var fræSslu-
dagur og var hann mjög vel
skipulagður frá hendi Veru
Brock.
Við hittumst í Gutenberghús-
inu, en þar er Tímarit danska
hjúkrunarfélagsins prentað, og
sáum hvernig það verður til,
allt frá þeirri stundu að rit-
stjóri fær handritið í hendurnar
þangað til áskrifendur fá blað-
ið í póstinum. Var mjög ánægju-
legt og fróðlegt að fylgja þessu
stig af stigi og bera saman við
okkar hagi. Fyrirspurnum okk-
ar var fúslega svarað varðandi
ýmisleg tæknileg atriði um blað-
ið, sérstaklega í sambandi við
upplímingu þess.
Helzt hefðum við viljað vera
í Gutenberghúsi allan daginn,
en eigi vannst tíma til þess því
tvær stofnanir biðu okkar.
Næsti áfangi var Sygehus-
foreningen i Danmark, sem eru
samtök stofnuð vegna vaxandi
stafylokokkinfektiona, en sam-
tökin hófu starf sitt 1960.
Starfsfólk þessarar stofnunar
ferðast um landið og heimsækir
sjúkrahús, hefur eftirlit með
hreinlæti og sótthreinsun og
leiðbeinir um þessi efni. Við
stofnunina starfa 3 bakteriolog-
ar, 4 hjúkrunarkonur og ritari.
1 Sygehusforeningen beið
okkar hádegisverður að afloknu
mjög fróðlegu erindi, sem yfir-
hjúkrunarkonan, frk. Lis Lar-
sen hélt. Verður nánar sagt frá
starfsemi þessarar stofnunar í
blaðinu seinna.
Næst lá leið okkar í John F.
Kennedy Instituttet í Glostrup.
Er það stofnun sem er í senn
rannsóknastöð og hæli fyrir
börn sem þjást af sjúkdómi
þeim er nefnist Föllings sjúk-
dómur eða Phenylketonuri.
Einnig verður sagt nánar frá
þessari stofnun í blaðinu.
Yfirlæknir John F. Kennedy
stofnunarinnar, dr. med. Erik
Wamberg, flutti fyrirlestur um
stofnunina og sjúkdóm þann
sem hún fæst við. Einnig skoð-
uðum við húsakynnin undir
leiðsögn yfirhjúkrunarkonu,
frk. Elisabeth Möller.
Þessum ánægjulega fræðslu-
degi lauk svo með kvöldverði
í boði Dansk Sygeplejerád og
leikhúsferð á eftir, sáum við
„Kátu ekkjuna". Næsta morg-
un hélt svo hver til síns heima-
lands.
Undirbúningur undir SSN
þing á Islandi er þannig í full-
um gangi og verður næsti fund-
ur í pressunefndinni haldinn í
Stokkhólmi í marz 1970.
E. P. M.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 83