Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 23
TAFLA VII
IÍTGJÖLD SVEITARFÉLAGA TIL
HEILBRIGÐISMÁLA
Reykjavík 1967:
Framkv. og heilbr.eftirlit . . . 4.298
Sjúkrahúsrekstur .............. 39.004
Heilsuvernd .................... 4.552
Samtals 47.854; kr. 600 á íbúa
Allvr lireppar 1965
Heilbrigðismál .............. 5.699
Þar af Árnessýsla ........ 1.982; kr. 250 á íbúa
Þar af Strandasýsla ...... 0.020; kr. 15 á íbúa
Hlutfall heilbrigðismála
af heildarútgjöldum:
Reykjavík ................................ 4.5%
Aðrir kaupstaðir.......................... 4.0%
Hreppar .................................. 1.5%
Taflan sýnir ennfremur hreppa landsins í hnot-
skurn og hvaða útgjaldamunur verður í hreppi,
ef hann er þátttakandi í sjúkrahúsrekstri.
SuinanbMiriYur viiY hin .Vei'diirlöndin.
Ég læt nú útrætt í bili um þessi atriði en sný
að samanburði við aðrar þjóðir. Slíkur saman-
burður er ávallt erfiður en gefur þó nokkrar hug-
myndir um, hvar við stöndum í samanburði við
aðra.
Eins og ég sagði fyrr, hef ég ekki handbærar
töflur um heilbrigðismál eingöngu, en birti hér
töflu um útgjöld til félagsmála á Norðurlöndum
1964. Sjá töflu VIII neðst á bls. 86.
Taflan er í 4 liðum, sjúkdómar, elli og örorka,
fjölskylda og börn og önnur félagsmál og tölurn-
ar í gjaldmiðli hvers lands.
I töflunni eru svo útgjöld til félagsmála reikn-
uð sem hundraðshluti hreinna þjóðartekna og út-
gjöld á hvern íbúa og er það ef til vill sá útreikn-
ingurinn, sem mestar upplýsingar gefur í saman-
burði.
Hér að framan hefur á ýmsan hátt verið gerð
grein fyrir, hvaðan féð er tekið, sem til heilbrigð-
ismála gengur. Næsta tafla er samanburðartafla
um það, hvernig Norðurlandaþjóðirnar hafa val-
ið að leggja útgjaldabyrðar vegna félagsmála á
greiðsluaðila.
TAFLA IX: HIUTFALLSLEG SKIPTING
FRAMLAGA TIL FÉLAGSMÁLA 1964
Ríki Svettar- fél. Atv.rek. Hinir tryggðu
% % % %
Uanmörk .... 63.1 18.7 3.0 15.2
Pinnland 35.2 20.5 35.8 8.5
ísland .... 49.3 23.8 9.1 17.8
Noregur .... 24.9 27.6 22.0 25.5
Svíþjóð .... 37.2 24.8 21.1 16.9
Hér eru það ríki, sveitarfélög, atvinnurekend-
ur og þeir tryggðu, sem í mismunandi hlutföll-
um greiða kostnaðinn.
Danmörk hefur hlutfall ríkisins langhæst og
sama er hér og í Svíþjóð, Finnland gerir hlut at-
vinnurekanda hæstan, en Noregur hlut sveitar-
félaganna, enda þótt þar sé skiptingin jöfnust.
Svona samanburður sýnir, að vandi er að taka
fyrirkomulag frá einu landi og heimfæra það á
annað. Aðstæður í hverju landi hafa að sjálf-
sögðu valdið því, hvaða leið var valin að aðstæð-
um könnuðum.
Eiiifaldura kvrfi.
Síðasta taflan, sem hér birtist, sýnir, hvernig
það kerfi, sem ég hef reynt að lýsa, kemur mér
fyrir sjónir. Sjá yfirlit á bls. 93.
Hér eru ritaðir upp í flatarmynd greiðsluaðil-
arnir 4, ríkissjóður, sjúkratryggingar, sveitar-
sjóðir og einstaklingar og þar í kring helzta starf-
semi, sem hér um ræðir, og hvernig þeir greiða
til hennar.
Ég sagði í byrjun, að ég mundi ekki koma með
breytingartillögur að neinu marki, en aðeins
benda á leiðir til einföldunar.
Ég held, að það sé rétt lausn milli þessara
þriggja aðila að stofna sameiginlegan sjóð til
þessara greiðslna. Ég tel því, að sjúkratryggingin
eigi að haldast, en ekki í núverandi formi með
220 sjúkrasamlögum, heldur með færri sjúkra-
samlögum og jafnvel einni heildar sjúkratrygg-
ingu fyrir landið. Vísir að þessari tryggingu er
þegar kominn með nýskipan sjúkratrygginga-
deildar Tryggingastofnunar ríkisins, sem í fram-
kvæmd komst í byrjun þessa árs.
Sj úkratryggingin á síðan að greiða allan kostn-
að vegna sjúkrahúsvistar, og þann kostnað vegna
sjúkrahjálpar utan sjúkrahúsa, sem einstakling-
ar greiða ekki. Þar undir að sjálfsögðu kostnað
vegna heilsugæzlu og heilsuverndar. Ég tel, að
hluti sveitarfélaga í framlagi til sj úkratrygginga
eigi að stækka, þar á móti komi, að ríkissjóður
sjái um allan kostnað vegna bygginga sjúkra-
húsa, læknisbústaða, lækningastöðva og heilsu-
verndarstöðva, hvort heldur er í dreifbýli eða
þéttbýli.
lAnnað, sem til greina kemur, er, að ríkið hætti
algerlega sjúkrahúsrekstri, en fengi sjúkrahús-
rekstur sinn í hendur sveitarfélaga, þar sem
sjúkrahúsin eru staðsett. Við það mundi vinnast
betri heildarstjórn og betri heildarnýting ýmissa
þátta sjúkrahússtarfanna en nú er og draga úr
hættu á togstreitu og óskynsamlegri samkeppni.
Þótt ekki kæmi til þessara breytinga, mundu
þær breytingar, sem ég hef þegar á minnst, gera
kerfið einfaldara, fækka rásunum í teikningunni
og minnka þannig starfið, sem liggur á bak við
það að ýta milljónunum í hring.
Framh. á bls. 93.
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 87