Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 24

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Qupperneq 24
Ritnefnd: RADDIR HJUKRUNARNEMA Margrét Pétursdóttir. I>óra G. Sigurðardóttir. Ásrún Hauksdóttir. BARA BOTNLANGINN! Eftir brezka sjúka hjúkrunarkonu. NURSING TIMES, 12. tbl. 64. árg. Jafnvel hjúkrunarkona með 40 starfsár að baki getur fengið botnlangabólgu! Botnlangaskurðir eru heldur hversdagslegir í heimi skurðlækn- inganna. Líklega hefur það verið öðru vísi, þegar fyrstu botn- langaskurðirnir voru gerðir. Árum saman hafa þeir þótt fremur lítilfjörlegar aðgerðir, einkum í augum yngri hjúkrunarkvenna. Þegar ég var að læra, sáu hjúkrunarkonurnar um uppþvott- inn. Ef við höfðum botnlangabólgusjúkling í rúminu, færðum við honum þurrku og áhöld á bakka til að þurrka. Meira að segja man ég eftir einum, sem var að vísu kominn á fætur, er þvoði alveg upp fyrir okkur einn daginn, þegar við höfðum hvað mest að gera. Þess vegna varð ég meira en lítið undrandi, þegar ókunnugi iækn- irinn, sem stóð álútur við rúmið mitt á hótelinu, sagði: „Ég held, að þér hafið fengið botnlangabólgu“. — Eins og mér fannst ég mikið veik. Mennirnir á sjúkrabílnum voru mjög góðir. Sjúklingur með uppköst var engin nýjung fyrir þá. Þeir stungu myndarlegum bréfpoka í hægri hönd mína og bunka af bréfþurrkum í þá vinstri. Einn þeirra greip handtöskuna mína með þessum orðum: „Þér munuð þurfa þetta“, og svo var lagt af stað. .1») 40 nnim liðnuin. Mín fyrstu kynni af stórum slysadeildum, voru fyrir nærri 40 árum. Ég fékk skarlatssótt. Þess vegna voru allar persónu- legar eigur mínar fjarlægðar, jafnvel vasaklúturinn minn, og mér fannst ég vera skilin eftir klukkustundum saman ein og yfirgefin. Nú horfði öðru vísi við. Allir önnuðust mig af einstakri alúð. Ég komst árekstralaust stig af stigi og vaknaði loks í hvítu ljósi uppvakningaherbergisins. f lefjn. Næsta sólarhring fékk ég hina beztu aðhlynningu með einni undantekningu þó. Einhvern tímann um morguninn setti ung hjúkrunarkona tvo stóla aftan við rúmið mitt. Hún dró tjöldin frá, fjarlægði sængina, breiddi yfir mig lak, skellti þvottafati á náttborðið og sagði mér að fara að þvo mér sjálf, hún myndi koma aftur seinna. „Bara botnlanga“-kenningin var enn í fullu gildi. — Það ætti að vera hægt að komast úr nælonnáttfötum, sem loða við rúmfötin, þó maður hafi verið skorinn upp daginn 88 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.