Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 26

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.10.1969, Side 26
sem þurfa að hreyfa sig og hitapokarnir illa séðir. Ein konan sagði mér, að henni hefði verið kalt á fótunum síðan hún kom. Ég gæti trúað að hún hafi ekki verið sú eina. Hún hafði hrein- lega aldrei hugsað út í að segja hjúkrunarliðinu frá því. Þegar mikið veikir sjúklingar liggja allt í kring, virðast þeir frískari gleymast. Svo gjörsamlega fellur maður inn í umhverfið, að ekki einu sinni ég gat fengið af mér að segja: „Því ekki að segja hjúkr- unarkonunni frá því“. Hins vegar stakk ég upp á, að hún fengi sokka af manninum sínum. Stuttu seinna tók ég eftir, að hún var komin í þá. Hann hlýtur að hafa farið heim sokkalaus það kvöldið. >fSá veit bezt, sem reynir'*. Það var á matartímum, sem mest bar á kenningunni „bara botn- langinn“. Eg man eftir einu sinni, þegar ég var að læra, að ég fór með vel úti látinn matarskammt til sjúklings, sem ýtti bakk- anum til hliðar og sagði: „Borðaðu það sjálf, hjúkrunarkona". 1 hvert skipti sem komið var með kúfaðan disk til mín minntist ég þessa atviks. „Sá veit bezt, sem reynir“. Þótt margt megi segja um „bara botnlangann“, ber eins að geta. Ólíkt öðrum sjúklingum er hann ekki kvíðinn og hræddur um framtíð sína. Hann veit, að batinn er öruggur og sjúkrahús- dvölin verður ekki löng. Satt er, að sælla er að gefa en þiggja og þiggjandinn á oft erfitt. Ég fyllist nýrri aðdáun á þeim, sem eru hugrakkir í mikl- um veikindum. Ég dáðist að ættingjunum, sem með glöðu geði eyddu löngum tíma í sjúkraheimsóknirnar. Hver leit eftir börn- unum, og hvenær fengju þeir kvöldmat? Ég hafði alveg gleymt, hvað læknirinn gefur sjúklingi sínum mikið, og hvað hann vinn- ur mikið. Stolt fylgdist ég með, hvort nútíma hjúkrunartækni, umhyggja og góð almenn hjúkrun hefðu sigur í alvarlegustu til- fellunum. Að lokum varð mér hugsað til þarfa sjúklinganna, sem eru næstum heilbrigðir. Líf þeirra getur verið hart. Lauslega þýtt af tveim nemum H.S.Í. Ritstjórnarþáttur — Framh. af bls. 67. mörku, til forseta ICN næstu 4 árin. Páll Sigurðsson, trygginga- yfirlæknir, ritar um Fjármögnun heilbrigðismála. Er þar að finna forvitnilegar upplýsingar um útgjöld til heilbrigðismála á ís- landi, eins og t. d. að 1967 námu þau á ríkisreikningi 13.5% af heildarútgjöldum. THl þakkar Páli greinina, sem á væntanlega erindi til þeirra hjúkrunarkvenna, sem starfa við stjórnun. RacLdir hjúkrunarnema segir á gamansaman hátt frá hjúkrunarkonu, sem fékk botnlangakast eftir 40 ár í starfi, og lærði hún þá enn ýmis- legt um hjúkrun og viðhorf sjúklinga til hjúkrunarfólks. Betra seint en aldrei. Að lokum eru þættirnir ný lyf, fréttir og tilkynn- ingar, áherzla er lögð á afmælishátíð HFl í nóv. 1969 og borgun félagsgjalda, og Pósthólfiö, sem hefur göngu sína. Einnig segir frá pressufundi SSN í Kaupmannahöfn vegna þingsins á Islandi 1970, en þá verður minnst 50 ára afmælis sam- takanna. Gert er ráð fyrir að um 800 norrænar hjúkrunarkonur sæki þingið svo það er um að gera að spjara sig og njóta þessa þings til eflingar stétt okkar, kjörum og hugsjónum í þágu hjúkr- unarmála á Islandi. 90 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.