Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 6
ORF Líftækni hf., kt. 420201-3540, boðar hér með til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 27. apríl næstkomandi kl. 16:30 í nýjum aðalstöðvum félagsins, Víkurhvarfi 7, í Kópavogi. Fundarefni: 1. Setning fundar, skipun fundarstjóra og fundarritara 2. Venjuleg aðalfundarstörf, m.a. • Skýrsla stjórnar og kynning á starfsemi félagsins • Kynning á reikningum félagsins • Samþykkt ársreiknings • Meðferð rekstrarhagnaðar/taps • Kosning stjórnar og endurskoðanda • Greiðslur til stjórnarmanna og endurskoðanda 3. Lagabreytingar þar sem helstu tillögur til breytinga ’alla um; • Heimild stjórnar til útgáfu nýrra hlutabréfa 4. Kynning forstjóra 5. Kynning framkvæmdastjóra rannsókna- og vöruþróunarsviðs 6. Önnur mál Eftir lok fundar gefst hluthöfum kostur á að skoða nýtt húsnæði félagsins. Stjórn ORF Líftækni hf. Aðalfundur ORF Líftækni hf. 27.aprí l 2017 heilbrigðismál Nú styttist mjög í það að krabbameinsáætlun fyrir Ísland líti dagsins ljós. Hins vegar er það gagnrýnt hversu lengi vinnan hefur velkst um í kerfinu. Strax um mitt ár 2014 var boðað að áætlunin yrði lögð fram fyrir árslok. Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og formaður ráðgjafarhóps­ ins, telur að krabbameinsáætlunin verði send út til umsagnar fljótlega og birt á vef ráðuneytisins – líklega strax eftir páska. „Hún er tilbúin en það er alveg rétt að þetta hefur dregist úr hófi fram. Við skiluðum af okkur í nóvember 2015. Ég tek undir gagnrýni um seinagang í stjórnsýsl­ unni,“ segir Ófeigur. Nefnd gagnrýni hefur ekki síst komið frá félagasamtökum, Krabba­ meinsfélagi Íslands og Reykjavíkur, sem hafa sent ráðuneytinu erindi og ályktað að undanförnu, til að grafast fyrir um stöðu mála. Þeim skrifum hefur ekki verið svarað formlega. Minnt hefur verið á að Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem hefur ekki enn sett heildstæða krabbameins­ áætlun. Mikil vinna hafi verið lögð í áætlunina og hætta sé á að hún verði til lítils ef upplýsingar og gögn úreldast. Krabbameinsfélag Reykjavíkur samþykkti áskorun á heilbrigðisráð­ herra síðast 20. mars síðastliðinn. Engan tíma megi missa. Nú greinist árlega 1.500 manns með krabba­ mein og eftir fimmtán ár megi búast við að tilfellum hafi fjölgað um 30% sem skýrist fyrst og fremst af hækk­ andi meðalaldri og fjölgun íbúa. Ófeigur telur að krabbameins­ áætlunin sé gríðarlega mikilvægt verkefni. „Það eru tæplega 15.000 Íslending­ ar sem eru lifandi með krabbamein í dag. Þetta er orðinn fyrirferðarmikill þáttur í íslenskri heilbrigðisþjón­ ustu, og ekki bara það heldur einnig í félagsþjónustunni,“ segir Ófeigur og bætir við að þessi áætlun sé hluti af stærri heilbrigðisáætlun fyrir Ísland, og það sé á valdi ráðherra að ákveða hvernig farið verður með til­ lögur ráðgjafarhópsins – hvort unnið verði eftir áætluninni eins og hún kemur fyrir eða lögð verði áhersla á ákveðna þætti hennar. Spurður um þær breytingar sem krabbameinsáætluninni gætu fylgt nefnir Ófeigur hvernig megi sam­ hæfa þjónustu innan heilbrigðis­ kerfisins og félagslegan stuðning. „Við tökum á því á heildstæðan hátt hvernig fólk fær stuðning, allt frá því það greinist. Það á bæði við um fullorðna og börn. Þetta er voða­ lega losaralegt og sundurleitt kerfi sem mætir fólki í dag. Full ástæða er til að bæta hér úr því fólk kemur oft mjög laskað út úr meðferð. Þessi skýrsla tekur á þessu frá a til ö,“ segir Ófeigur og nefnir marga fleiri þætti sem ættu að færast til betra horfs, og þar á meðal forvarnir. Mörg vestræn ríki, þar með talin Norðurlöndin, hafa sett fram sínar eigin krabbameinsáætlanir en til samanburðar lauk þessari vinnu árið 1998 í Noregi. svavar@frettabladid.is Hillir loks undir krabbameinsáætlun Krabbameinsáætlun fyrir Ísland verður kynnt eftir páska, ef að líkum lætur. Vinnunni er löngu lokið. Stjórnsýslan hefur verið gagnrýnd fyrir seinagang. Krabbameinsfélög hafa spurt yfirvöld um stöðu málsins en ekki verið svarað. Mótmælt í nafni Ataturk Kona mótmælir fyrirhuguðum stjórnarskrárbreytingum og veifar fána með mynd af föður Tyrklands, Mustafa Kemal Ataturk. Til stendur að kjósa um að færa forseta landsins meira vald á kostnað þingsins þann 16. apríl. Kannanir benda til þess að mjótt gæti orðið á munum og hefur fylgið sveiflast mjög að undanförnu, þótt andstæðingar breytinganna hafi yfirleitt mælst fleiri. Nordicphotos/AFp Full ástæða er til að bæta hér úr því fólk kemur oft mjög laskað út úr meðferð. Þessi skýrsla tekur á þessu frá a til ö. Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, læknir og formaður ráðgjafarhóps um krabbameins­ áætlun Fjögur ár síðan vinnan hófst l Ráðgjafarhópur vegna vinnu við gerð krabbameinsáætlunar var fyrst kallaður saman í febrúar 2013, að frumkvæði Guðbjarts Hannessonar, þáverandi heil­ brigðisráðherra. l Verkefninu var skipt upp í fimm afmarkaða verkþætti sem unnið var að í jafnmörgum vinnu­ hópum. l Þeir fjölluðu um faraldsfræði og skráningu, forvarnir og heilsu­ gæslu, rannsóknir og gæða­ stjórnun, meðferðarþætti og mannafla og loks var hópur um eftirmeðferð og líknandi meðferð. l Þvert á þessa hópa störfuðu tveir rýnihópar fulltrúa full­ orðinna sem greinst hafa með krabbamein og fulltrúar krabbameinsgreindra barna og aðstandenda þeirra. l Gert er ráð fyrir að setja fram markmiðsmælda og tímasetta aðgerðaáætlun til þriggja eða fimm ára. samgöngur Fyrsta flug finnska flugfélagsins Finnair til Helsinki frá Keflavíkurflugvelli er á þriðjudag. Þetta eru talin nokkur tímamót þar sem flug Finnair mun stór­ bæta tengingar Íslands við Asíu og átján áfangastaði flugfélagsins þar. Svo dæmi sé tekið verður hægt að komast milli Íslands og Peking með Finnair í gegnum Helsinki á aðeins þrettán klukkustundum. Kerfi Finnair svipar til þeirra sem Icelandair og WOW styðjast við milli Evrópu og Norður­Ameríku. Á þessu ári munu fjórfalt fleiri flugfélög bjóða upp á áætlunarflug til og frá Keflavíkurflugvelli en árin fyrir hrun. – shá Styttra til Asíu Með millilendingu í Finnlandi kemstu til peking á 13 klukkutímum. Nordicphotos/AFp viðskipti Íslenska svefnrannsókna­ fyrirtækið Nox Medical er á lista Financial Times yfir þau fyrirtæki í Evrópu sem hafa vaxið hvað hraðast á milli áranna 2012 til 2015. Af fyrirtækjunum þúsund er Nox Medical í 482. sæti listans. Sé ein­ ungis litið til heilsugeirans og þeirra fyrirtækja sem hafa náð meira en 10 milljónum evra í ársveltu hefur ekk­ ert fyrirtæki vaxið hraðar en Nox Medical, samkvæmt Finincal Times. „Við erum afskaplega stolt af þessum árangri,“ segir Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical. „Starfsfólk okkar, eig­ endur og samstarfsaðilar eiga allan heiðurinn af þessu enda hafa þau lagt mikið á sig.“ – shá Nox Medical vex hraðast árétting Vegna fréttar Fréttablaðsins í gær, 12. apríl, undir fyrirsögninni „Loforð um aukið fé til lyfjakaupa ekki efnt“ vill Guðrún Gylfadóttir, formaður lyfjagreiðslunefndar, árétta að heilbrigðisráðherra er með fullan vilja til að efna loforð sitt um aukið fjármagn til nýrra krabbameinslyfja. Málið sé í góðum farvegi og lyfjagreiðslunefnd sé nú þegar farin að samþykkja ný lyf. 1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F i m m t u D a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 9 -4 9 F 8 1 C A 9 -4 8 B C 1 C A 9 -4 7 8 0 1 C A 9 -4 6 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.