Fréttablaðið - 13.04.2017, Blaðsíða 13
Offjölgun ferðamanna er vel þekkt viðfangsefni víða um lönd. Úti í heimi er því til
staðar dýrmæt reynsla af réttum og
röngum viðbrögðum heimamanna
við slíkri offjölgun.
Frá Feneyjum …
Byrjum í Feneyjum, einni sögu-
frægustu og fegurstu borg Evrópu.
Íbúafjöldi gömlu borgarinnar var á
bilinu 100 til 150 þúsund frá miðri
16. öld til aldamótanna 1900, nálg-
aðist síðan 200 þúsund manns um
1960 og er nú kominn niður í 50 til
55 þúsund. Íbúum Feneyja hefur
sem sagt fækkað um tvo þriðju frá
fyrri tíð. Fækkunin hefur einkum
átt sér stað síðustu áratugi þar
eð heimamenn hafa lagt á flótta
undan ágangi ferðamanna. Fjöldi
ferðafólks sem heimsækir borgina
nú nemur um 25 til 30 milljónum
á hverju ári. Ör fjölgun síðustu ára
stafar m.a. af tíðum heimsóknum
stórra skemmtiferðaskipa sem
yfirvöldin leyfa sumum að leggjast
að bryggju við Markúsartorgið í
hjarta borgarinnar þar sem skipin
gnæfa yfir miðaldaminjarnar. Svo
rammt kveður að traðakinu og
útlitsspjöllunum að Sameinuðu
þjóðirnar segjast munu setja
Feneyjar á lista yfir heimsminjar í
útrýmingarhættu ef borgaryfirvöld
taka sig ekki á.
Vandi Feneyja er tvíþættur.
Íbúarnir flýja og borgin drabb-
ast niður. Hægt hefði verið að
stemma stigu við áníðslunni með
gjaldheimtu til að halda borginni
í byggð og vernda minjarnar en
borgaryfirvöldin brugðust ekki við
ítrekuðum áskorunum í þá veru
fyrr en 2011 með innheimtu lítils
háttar gistináttagjalds. Gjaldið
nær ekki til langstærsta hópsins,
þeirra sem heimsækja borgina yfir
daginn og skilja lítið sem ekkert
eftir. Við eigum eftir að sjá hvort
yfirvöldin bregðast við áskorun SÞ
frá í fyrra. Framtíð Feneyja er ekki
einkamál Feneyinga eða Ítala.
… um Máritíus og Barbados …
Eyjan fagra í Indlandshafi, Mári-
tíus, er annar handleggur. Þar réðu
tiltölulega fáir sykurekrueigendur
lögum og lofum á fyrri tíð þar eð
sykur var helzta útflutningsafurð
eyjarskeggja. Þegar skemmtiferðir
færðust í vöxt eftir 1960 og venju-
legt fólk hafði loksins efni á utan-
ferðum varð Máritíus smám saman
vinsæll áfangastaður ferðafólks.
Ferðaútvegurinn varð á skömmum
tíma helzti útflutningsatvinnuvegur
landsmanna. Þessum umskiptum
fylgdi aukin valddreifing þar eð
eignarhald fyrirtækja í ferðaútveg-
inum er tiltölulega dreift í and-
stöðumerkingu við samþjappað
eignarhald á sykurekrunum. Lítil
fjölskylduhótel og litlir veitinga-
staðir kepptu við stór hótel og
keðjur. Yfirgangur gömlu sykur-
greifanna hreif ekki lengur. Þið
sjáið hvert ég er að fara.
Við bættist umhyggja stjórnvalda
fyrir umhverfinu. Leiguflug til Mári-
tíus var ekki leyft heldur aðeins
áætlunarflug. Þetta var gert til að
halda fjölda ferðamanna í skefjum.
Skv. tölum Alþjóðabankans kom
rösklega ein milljón ferðamanna
til Máritíus 2014 sem er drjúg
tvöföldun frá 1995. Íbúafjöldinn
á Máritíus er 1,3 milljónir. Til
samanburðar við aðra ferða paradís
kom hálf milljón ferðamanna til
Karíbahafseyjarinnar Barbados
2014 borið saman við 400 þúsund
1995, fimmtungsaukning sem sagt.
Íbúafjöldi Barbados er innan við
300 þúsund. Bæði eyríkin leggja
þunga áherzlu á umhverfisholla
hágæðaþjónustu handa hóflegum
fjölda ferðamanna til að treysta
ferðaútveginn í sessi sem sjálfbæran
og varanlegan máttarstólpa efna-
hagslífsins.
… til Íslands
Hingað heim kom ein milljón
ferðamanna 2014 skv. tölum
Alþjóðabankans og Ferðamála-
stofu borið saman við 200 þúsund
1995, fimmföldun sem sagt. Fjöldi
ferðamanna var 1,8 milljónir í fyrra,
2016, og það gerir þá níföldun frá
1995. Vissulega hefur fjölgun ferða-
manna örvað efnahagslífið eins og
ráða má t.d. af iðandi mannlífi á
götum Reykjavíkur sem áður voru
fáfarnar. Á móti kemur ónæði af
völdum ferðamanna, m.a. stóraukin
umferð í borginni og úti á vegum.
Hringveginum, sjálfri þjóðbraut-
inni, hefur verið lýst sem hættu-
legasta ferðamannastað landsins.
Margt má hafa til marks um
hömluleysið í ferðaútveginum og
meðvirkni sinnulausra stjórnvalda
sem hafa orðið uppvís að marg-
faldri vanrækslu. Stjórnvöld hafa
vanrækt uppbyggingu innviða til
að hægt sé að taka sómasamlega á
móti ferðamönnum. Þau hafa ekki
svo vitað sé látið fara fram úttekt á
umhverfisáhrifum ferðabyltingar-
innar. Þau hafa líkt og borgaryfir-
völd í Feneyjum gerðu lengi vel
hunzað tillögur um gjaldheimtu,
sama úrræði og hefði dugað bezt
til að tryggja hagkvæma og réttláta
fiskveiðistjórn og myndi nú duga
til að tempra fjölgun ferðamanna;
boðuð færsla ferðaþjónustu upp
í efra þrep virðisaukaskatts er þó
skref í rétta átt. Og þau sýna engin
merki þess enn að þau hafi hug á
að þiggja ráð frá þeim sem mestum
árangri hafa náð í sjálfbærum
ferðaútvegi, t.d. á Barbados og
Máritíus.
Lausaganga ferðafólks
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Ferðaútvegurinn varð á
skömmum tíma helzti
útflutningsatvinnuvegur
landsmanna. Þessum um-
skiptum fylgdi aukin vald-
dreifing þar eð eignarhald
fyrirtækja í ferðaútveg-
inum er tiltölulega dreift
í andstöðumerkingu við
samþjappað eignarhald á
sykurekrunum. Lítil fjöl-
skylduhótel og litlir veitinga-
staðir kepptu við stór hótel
og keðjur. Yfirgangur gömlu
sykurgreifanna hreif ekki
lengur. Þið sjáið hvert ég er
að fara.
Gleðilega páska!
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ VERÐUR Í KOLAPORTINU
Á SKÍRDAG - FIMMTUDAG 13. APRÍL
OG Á LAUGARDAG 15. APRÍL
FRÁ KL. 11-17
LOKAÐ ER FÖSTUDAGINN LANGA,
PÁSKADAG OG ANNAN Í PÁSKUM.
2 0 1 7
K
V
IK
A
Krónan
mælir með!
2999 kr.kg
Lambalæri með Camembert- og döðlufyllingu
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F i M M T u d a g u R 1 3 . a p R Í L 2 0 1 7
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
9
-2
7
6
8
1
C
A
9
-2
6
2
C
1
C
A
9
-2
4
F
0
1
C
A
9
-2
3
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K