Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 13
Offjölgun ferðamanna er vel þekkt viðfangsefni víða um lönd. Úti í heimi er því til staðar dýrmæt reynsla af réttum og röngum viðbrögðum heimamanna við slíkri offjölgun. Frá Feneyjum … Byrjum í Feneyjum, einni sögu- frægustu og fegurstu borg Evrópu. Íbúafjöldi gömlu borgarinnar var á bilinu 100 til 150 þúsund frá miðri 16. öld til aldamótanna 1900, nálg- aðist síðan 200 þúsund manns um 1960 og er nú kominn niður í 50 til 55 þúsund. Íbúum Feneyja hefur sem sagt fækkað um tvo þriðju frá fyrri tíð. Fækkunin hefur einkum átt sér stað síðustu áratugi þar eð heimamenn hafa lagt á flótta undan ágangi ferðamanna. Fjöldi ferðafólks sem heimsækir borgina nú nemur um 25 til 30 milljónum á hverju ári. Ör fjölgun síðustu ára stafar m.a. af tíðum heimsóknum stórra skemmtiferðaskipa sem yfirvöldin leyfa sumum að leggjast að bryggju við Markúsartorgið í hjarta borgarinnar þar sem skipin gnæfa yfir miðaldaminjarnar. Svo rammt kveður að traðakinu og útlitsspjöllunum að Sameinuðu þjóðirnar segjast munu setja Feneyjar á lista yfir heimsminjar í útrýmingarhættu ef borgaryfirvöld taka sig ekki á. Vandi Feneyja er tvíþættur. Íbúarnir flýja og borgin drabb- ast niður. Hægt hefði verið að stemma stigu við áníðslunni með gjaldheimtu til að halda borginni í byggð og vernda minjarnar en borgaryfirvöldin brugðust ekki við ítrekuðum áskorunum í þá veru fyrr en 2011 með innheimtu lítils háttar gistináttagjalds. Gjaldið nær ekki til langstærsta hópsins, þeirra sem heimsækja borgina yfir daginn og skilja lítið sem ekkert eftir. Við eigum eftir að sjá hvort yfirvöldin bregðast við áskorun SÞ frá í fyrra. Framtíð Feneyja er ekki einkamál Feneyinga eða Ítala. … um Máritíus og Barbados … Eyjan fagra í Indlandshafi, Mári- tíus, er annar handleggur. Þar réðu tiltölulega fáir sykurekrueigendur lögum og lofum á fyrri tíð þar eð sykur var helzta útflutningsafurð eyjarskeggja. Þegar skemmtiferðir færðust í vöxt eftir 1960 og venju- legt fólk hafði loksins efni á utan- ferðum varð Máritíus smám saman vinsæll áfangastaður ferðafólks. Ferðaútvegurinn varð á skömmum tíma helzti útflutningsatvinnuvegur landsmanna. Þessum umskiptum fylgdi aukin valddreifing þar eð eignarhald fyrirtækja í ferðaútveg- inum er tiltölulega dreift í and- stöðumerkingu við samþjappað eignarhald á sykurekrunum. Lítil fjölskylduhótel og litlir veitinga- staðir kepptu við stór hótel og keðjur. Yfirgangur gömlu sykur- greifanna hreif ekki lengur. Þið sjáið hvert ég er að fara. Við bættist umhyggja stjórnvalda fyrir umhverfinu. Leiguflug til Mári- tíus var ekki leyft heldur aðeins áætlunarflug. Þetta var gert til að halda fjölda ferðamanna í skefjum. Skv. tölum Alþjóðabankans kom rösklega ein milljón ferðamanna til Máritíus 2014 sem er drjúg tvöföldun frá 1995. Íbúafjöldinn á Máritíus er 1,3 milljónir. Til samanburðar við aðra ferða paradís kom hálf milljón ferðamanna til Karíbahafseyjarinnar Barbados 2014 borið saman við 400 þúsund 1995, fimmtungsaukning sem sagt. Íbúafjöldi Barbados er innan við 300 þúsund. Bæði eyríkin leggja þunga áherzlu á umhverfisholla hágæðaþjónustu handa hóflegum fjölda ferðamanna til að treysta ferðaútveginn í sessi sem sjálfbæran og varanlegan máttarstólpa efna- hagslífsins. … til Íslands Hingað heim kom ein milljón ferðamanna 2014 skv. tölum Alþjóðabankans og Ferðamála- stofu borið saman við 200 þúsund 1995, fimmföldun sem sagt. Fjöldi ferðamanna var 1,8 milljónir í fyrra, 2016, og það gerir þá níföldun frá 1995. Vissulega hefur fjölgun ferða- manna örvað efnahagslífið eins og ráða má t.d. af iðandi mannlífi á götum Reykjavíkur sem áður voru fáfarnar. Á móti kemur ónæði af völdum ferðamanna, m.a. stóraukin umferð í borginni og úti á vegum. Hringveginum, sjálfri þjóðbraut- inni, hefur verið lýst sem hættu- legasta ferðamannastað landsins. Margt má hafa til marks um hömluleysið í ferðaútveginum og meðvirkni sinnulausra stjórnvalda sem hafa orðið uppvís að marg- faldri vanrækslu. Stjórnvöld hafa vanrækt uppbyggingu innviða til að hægt sé að taka sómasamlega á móti ferðamönnum. Þau hafa ekki svo vitað sé látið fara fram úttekt á umhverfisáhrifum ferðabyltingar- innar. Þau hafa líkt og borgaryfir- völd í Feneyjum gerðu lengi vel hunzað tillögur um gjaldheimtu, sama úrræði og hefði dugað bezt til að tryggja hagkvæma og réttláta fiskveiðistjórn og myndi nú duga til að tempra fjölgun ferðamanna; boðuð færsla ferðaþjónustu upp í efra þrep virðisaukaskatts er þó skref í rétta átt. Og þau sýna engin merki þess enn að þau hafi hug á að þiggja ráð frá þeim sem mestum árangri hafa náð í sjálfbærum ferðaútvegi, t.d. á Barbados og Máritíus. Lausaganga ferðafólks Þorvaldur Gylfason Í dag Ferðaútvegurinn varð á skömmum tíma helzti útflutningsatvinnuvegur landsmanna. Þessum um- skiptum fylgdi aukin vald- dreifing þar eð eignarhald fyrirtækja í ferðaútveg- inum er tiltölulega dreift í andstöðumerkingu við samþjappað eignarhald á sykurekrunum. Lítil fjöl- skylduhótel og litlir veitinga- staðir kepptu við stór hótel og keðjur. Yfirgangur gömlu sykurgreifanna hreif ekki lengur. Þið sjáið hvert ég er að fara. Gleðilega páska! – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ VERÐUR Í KOLAPORTINU Á SKÍRDAG - FIMMTUDAG 13. APRÍL OG Á LAUGARDAG 15. APRÍL FRÁ KL. 11-17 LOKAÐ ER FÖSTUDAGINN LANGA, PÁSKADAG OG ANNAN Í PÁSKUM. 2 0 1 7 K V IK A Krónan mælir með! 2999 kr.kg Lambalæri með Camembert- og döðlufyllingu S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F i M M T u d a g u R 1 3 . a p R Í L 2 0 1 7 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A 9 -2 7 6 8 1 C A 9 -2 6 2 C 1 C A 9 -2 4 F 0 1 C A 9 -2 3 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.