Fréttablaðið - 13.04.2017, Side 18

Fréttablaðið - 13.04.2017, Side 18
1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r18 S p o r T ∙ F r É T T a B l a ð I ð sport Selfoss - Afturelding 31-33 Markahæstir: Einar Sverrisson 9, Teitur Örn Einarsson 8/5, Elvar Örn Jónsson 7, Hergeir Grímsson 5 - Ernir Hrafn Arnarson 13/3, Árni Bragi Eyjólfsson 4/1, Kristinn Hrannar Bjarkason 4, Mikk Pinnonen 4, Elvar Ásgeirsson 4. Afturelding vann einvígið 2-0 og er komin áfram í undanúrslit. Valur - ÍBV 31-27 Markahæstir: Vignir Stefánsson 8/1, Josip Juric Grgic 7/1, Ólafur Ægir Ólafsson 5, Atli Karl Bachmann 5, Orri Freyr Gíslason 3 - Sigurbergur Sveinsson 8, Róbert Aron Hos- tert 6, Theodór Sigurbjörnsson 6/4. Staðan í einvíginu er 1-1. Oddaleikur liðanna fer fram á laugardaginn. Olís-deild karla Átta liða úrslit, leikir 2 Bayern - Real Madrid 1-2 1-0 Arturo Vidal (25.), 1-1 Cristiano Ronaldo (47.), 1-2 Ronaldo (77.). Rautt spjald: Javi Martínez, Bayern (61.). Dortmund - Monaco 2-3 0-1 Kylian Mbappe (19.), 0-2 Sjálfsmark (35.), 1-2 Ousmane Dembélé (57.), 1-3 Mbappe (79.), 2-3 Shinji Kagawa (84.). Atl. Madrid - Leicester 1-0 1-0 Antoine Griezmann, víti (28.). Meistaradeildin í fótbolta Átta liða úrslit, fyrri leikir GolF Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir verða flottir fulltrúar íslenska golfsins á erlendri grundu um páskahelgina þegar þær verða báðar í eldlínunni á tveimur stærstu mótaröðum heims. Þetta verður í fyrsta sinn í sög- unni þar sem íslenskir kylfingar keppa á þessum virtustu móta- röðum kvennagolfsins á sama tíma. Ólafía Þórunn hefur þegar keppt á fjórum mótum á bandarísku mótaröðinni og komist tvisvar í gegnum niðurskurðinn. Valdís Þóra er á leiðinni á sitt annað mót á evrópsku mótaröðinni en Ólafía keppti ekki helgina þegar Valdís var á Oates Victorian Open í Ástr- alíu. Ólafía Þórunn er komin til Hawaii- eyja þar sem hún keppir á Lotte/Hershey-mótinu á LPGA mótaröðinni. Hún hóf keppni í nótt og löngu eftir að Fréttablaðið fór í prentun en klukkan á Hawaii er tíu tímum á eftir þeirri á Íslandi. Flestir af bestu kylfingum heims eru á meðal keppenda á Oahu-eyju. Fimmta LPGA-mótið Þetta er fimmta mótið hjá Ólafíu Þórunni á sterkustu atvinnumóta- röð heims. Hún komst í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum. Hún náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á síðustu tveimur mótum. Það munaði mjög litlu á þriðja mótinu í Phoenix en á síðasta móti í Kali- forníu spilaði hún í fyrsta sinn yfir pari á LPGA-mótaröðinni. Valdís Þóra Jónsdóttir er aftur á móti stödd í Marokkó þar sem hún svo eftirminnilega tryggði sér sæti á evrópsku mótaröðinni í desember síðastliðnum. Valdís var þar í öðru sæti sem er besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópu- mótaröðina. Mótið í Marokkó er haldið sam- hliða móti á Evrópumótaröðinni í karlaflokki. Þetta er annað mótið á þessu tímabili þar sem leikið er á LET-mótaröðinni samhliða atvinnu- móti í karlaflokki. Valdís lék einnig á slíku móti í Ástralíu á sínu fyrsta LET-móti á ferlinum en mótið í Marokkó er annað mót á þessu stigi. Valdís Þóra endaði í 51. sæti á Oates Victorian-mótinu í Ástralíu þar sem hún lék samtals á einu höggi undir pari. Hún náði ekki síðasta niður- skurðinum og spilaði því ekki loka- daginn. Ólík tölfræði hjá stelpunum Það er fróðlegt að bera saman tölur stelpnanna í þessum fyrstu mótum sem sýnir að vissu leyti hvað þær eru ólíkar. Það er reyndar aðeins eitt mót búið hjá Valdísi Þóru en samanburðurinn er engu að síður fróðlegur. Ólafía Þórunn kemur nefnilega mjög vel út í nákvæmni í upphafs- höggum (84 prósent – 21. sæti) og fáum púttum (29,0 – 27. sæti) en ekki eins vel í því að hitta flatir í áætl- uðum höggfjölda (66 prósent – 117. sæti) eða að bjarga sér upp úr sand- gryfjum (32 prósent – 129. sæti). Valdís Þóra er aftur á móti best í því að bjarga sér upp úr sand- gryfjum (100 prósent – 1. sæti) og að hitta flatir í áætluðum högg- fjölda (78 prósent – 9. sæti) en hefur gengið verr í nákvæmni sinni í upphafshöggum (64 prósent – 77. sæti) og að pútta (32,0 – 69. sæti). Þær geta vonandi bætt þessar tölur um helgina. Bæði mótin á Golfstöðinni Íslenskir golfáhugamenn ættu að geta eytt páskahelginni í að fylgjast með íslensku stelpunum. Lotte/ Hershey-mót Ólafíu Þórunnar verður í beinni á Golfstöðinni alla dagana og þá verða tveir síðustu dagarnir á móti Valdísar Þóru í Mar- okkó einnig sýndir á Golfstöðinni á laugardag og sunnudag. Nú er bara að vona að það verði nóg af íslenskum páskafuglum hjá okkar konum og að þær nái báðar niðurskurðinum, sem verður eftir leik í nótt hjá Ólafíu en eftir leik á morgun hjá Valdísi Þóru. ooj@frettabladid.is Vonir um íslenska páskafugla Páskahelgin er söguleg fyrir, því í fyrsta sinn á Ísland keppendur á bandarísku og evrópsku mótaröðinni á sama tíma. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir á LPGA á Hawaii og Valdís Þóra Jónsdóttir á LET í Marokkó. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Valdís Þóra Jónsdóttir. 14.00 KR - FH Sport 19.00 Ajax - Schalke Sport 2 19.45 Anderlecht - Man. Utd Sport 19.00 Lyon - Besiktas Sport 3 19.00 RBC Heritage Golfstöðin 19.05 Keflavík - Skallagrím. Sport 4 23.00 Lotte á LGPA Golfstöðin Í dag Valsmenn tryggðu sér sæti í Domino’s-deild karla í gærkvöldi Fögnuður á Hlíðarenda Valur tryggði sér sæti í Domino’s-deild karla með risasigri á Hamri, 109-62, í oddaleik í umspili í gærkvöldi. Ótrúlegur 47 stiga sigur Valsmanna sem lentu 2-1 undir í einvíginu. Tímabilið hefur verið mikið ævintýri fyrir Valsmenn sem fóru einnig í undanúrslit í Malt- bikarnum. Valur lék síðast í efstu deild tímabilið 2013-14. Þá unnu Valsmenn aðeins tvo leiki og féllu niður í 1. deild. FRéttABLAðið/AntOn BRinK Valdís Þóra varð í 2. sæti á lokaúrtökumótinu í desember sem fór líka fram í Marokkó. Ólafía Þórunn hefur spilað tólf fyrstu hringina sína á LpGA á -5. 15.50 Wolves - Brighton Sport 18.35 newcastle - Leeds Sport 19.00 RBC Heritage Golfstöðin 23.00 Lotte á LGPA Golfstöðin Á morgun OddALEiKJArEyNsLubOLTAr Keflavík og skallagrímur spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeist- aratitilinn. sigurvegarinn í kvöld mætir Íslandsmeisturum þriggja síðustu ára í snæfelli í lokaúrslit- unum sem hefjast á mánudag. Það er mikill munur á reynslu leikmanna liðanna af oddaleikjum í úrslitakeppni. Tveir leikmenn skallagríms, þær sigrún sjöfn Ámundadóttir og Kristrún sigur- jónsdóttir, munu setja nýtt met í kvöld með því að spila báðar sinn níunda oddaleik á ferlinum. Kristrún hefur nú spilað oddaleik í sjö seríum í röð í úrslitakeppni. sigrún er í oddaleik í undanúr- slitum annað árið í röð en hún tapaði með Grindavík við sömu kringumstæður í fyrra. Liðsfélagi þeirra, Jóhanna björk sveinsdóttir, spilaði tvo oddaleiki með Haukum í úrslitakeppninni í fyrra. Eini Keflvíkingurinn sem hefur tekið þátt í oddaleik er fyrir- liðinn Erna Hákonar- dóttir og það bara einu sinni. Erna kom hins vegar ekki inn á þegar snæfell vann Hauka í úrslitaleik um titilinn í fyrra. 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 9 -5 3 D 8 1 C A 9 -5 2 9 C 1 C A 9 -5 1 6 0 1 C A 9 -5 0 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.