Fréttablaðið - 13.04.2017, Síða 22
Berglind stundar nám við Menntaskólann við Sund og lýkur stúdentsprófi í vor. Hún
vinnur mikið með skólanum, m.a. í
fataverslun í Kringlunni og í snyrti-
vöruversluninni Fotia. Berglind
hefur oft hugsað um að læra fata-
hönnun en eins og stendur hefur
hún meiri áhuga á innanhúss-
hönnun og stefnir á að mennta sig
í faginu í framtíðinni.
Spáir þú mikið í tísku? „Já, svo
sannarlega. Ég hef haft áhuga á
tísku síðan ég byrjaði að kaupa
mín eigin föt og það var þá sem
peningaeyðslan byrjaði fyrir
alvöru. Ég fylgist mikið með
tískubloggurum alls staðar að í
heiminum, en þá sérstaklega þeim
skandinavísku. Ég hef alltaf haft
gaman af því að gera mig fína og
dressa mig upp fyrir hin ýmsu
tilefni.“
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? „Hann er mjög fjölbreytilegur
og er eiginlega mismunandi á
hverjum tíma. Ég á mikið af klass-
ískum flíkum og þá eru átfittin
einföld en stílhrein. Á hinn bóginn
er ég einnig mjög mikið fyrir lit-
ríkar og mynstraðar flíkur og mér
finnst fátt skemmtilegra en að setja
saman björt og sumarleg átfitt.“
Hvar kaupir þú fötin þín? „Ég á
ótalmargar uppáhaldsbúðir og
á mjög erfitt með að velja aðeins
nokkrar, en þær sem eru í algjöru
uppáhaldi hjá mér hér á landi eru
Vero Moda, Topshop og Zara. Ég
hef einnig pantað mikið á netinu
og þá helst frá Asos og Nasty
Gal. Báðar verslanirnar senda til
Íslands. Annars er ekkert skilyrði
að flíkurnar sem ég kaupi séu
merkjavörur. Ég á mikið af fal-
legum „second hand“ flíkum sem
eru margar í uppáhaldi hjá mér.“
Eyðir þú miklu í föt? „Ef ég á að
vera hreinskilin þá eyði ég líklega
of miklum peningum í föt, að mati
sumra að minnsta kosti. Ég á erfitt
með að hemja mig þegar ég sé
eitthvað sem mig virkilega langar
í og oftast nær verslunareðlið yfir-
höndinni. Mér til varnar er ég samt
dugleg að kaupa ódýr föt, eins og í
H&M, Primark eða í „second hand“
búðum, svo sem í Kolaportinu eða
á fatamörkuðum.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
„Ég á margar uppáhaldsflíkur en
þær sem eru í algjöru uppáhaldi
akkúrat núna eru líklega ljósbleika
úlpan mín úr Topshop og Marc
Jacobs taskan mín.“
Hver er helsti veikleiki þinn
þegar kemur að tísku og útliti?
„Hversu lengi ég er að gera mig til
og ákveða í hverju ég á að vera. Ég
er oftast síðust út úr húsi og ég þarf
að vera ánægð með átfittið áður en
að ég fer út.
Notar þú fylgihluti? „Ég á ótal
töskur og klúta en þá fylgihluti
held ég mest upp á. Ég nota ekki
mikið skartgripi nema þegar ég
fer eitthvað fínt eða er í stuði til
þess. Hins vegar held ég mikið upp
á snyrtivörur og fyrir mér er flott
förðun lykillinn að flottu lúkki.“
Áttu þér tískufyrirmynd? „Ég held
upp á Kenzu Zouiten, tískublogg-
ara frá Svíþjóð, og hef fylgst lengi
með því sem hún er að gera. Hún
hannaði fatalínu fyrir nokkrum
árum sem heitir Ivyrevel og ég held
mikið upp á og skoða reglulega.“
Úlpa: Topshop í London, peysa: keypt notuð á fatamarkaði, buxur: Zara, skór: Kaupfélagið. MYND/STEFÁN
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Framhald af forsíðu ➛
Skyrta: Gyllti
kötturinn,
buxur: 5 units,
Gallerí 17, skór:
GS skór.
MYND/STEFÁN
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Úrval af kjólum
Kjóll kr. 5.990.
str. S-XXL
Kjólar í str. 36-56
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar vörur frá X-TWO
Gleðilega Páska
Fyrir þig
í Lyfju
lyfja.is
Nú er tími
fyrir fallega
brúnku!
BronzExpress brúnku
vörurnar gefa þér
fallegan lit sem endist!
25%
Gildir út apríl
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . a p r Í l 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
9
-3
B
2
8
1
C
A
9
-3
9
E
C
1
C
A
9
-3
8
B
0
1
C
A
9
-3
7
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K