Fréttablaðið - 13.04.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.04.2017, Blaðsíða 22
Berglind stundar nám við Menntaskólann við Sund og lýkur stúdentsprófi í vor. Hún vinnur mikið með skólanum, m.a. í fataverslun í Kringlunni og í snyrti- vöruversluninni Fotia. Berglind hefur oft hugsað um að læra fata- hönnun en eins og stendur hefur hún meiri áhuga á innanhúss- hönnun og stefnir á að mennta sig í faginu í framtíðinni. Spáir þú mikið í tísku? „Já, svo sannarlega. Ég hef haft áhuga á tísku síðan ég byrjaði að kaupa mín eigin föt og það var þá sem peningaeyðslan byrjaði fyrir alvöru. Ég fylgist mikið með tískubloggurum alls staðar að í heiminum, en þá sérstaklega þeim skandinavísku. Ég hef alltaf haft gaman af því að gera mig fína og dressa mig upp fyrir hin ýmsu tilefni.“ Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? „Hann er mjög fjölbreytilegur og er eiginlega mismunandi á hverjum tíma. Ég á mikið af klass- ískum flíkum og þá eru átfittin einföld en stílhrein. Á hinn bóginn er ég einnig mjög mikið fyrir lit- ríkar og mynstraðar flíkur og mér finnst fátt skemmtilegra en að setja saman björt og sumarleg átfitt.“ Hvar kaupir þú fötin þín? „Ég á ótalmargar uppáhaldsbúðir og á mjög erfitt með að velja aðeins nokkrar, en þær sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér hér á landi eru Vero Moda, Topshop og Zara. Ég hef einnig pantað mikið á netinu og þá helst frá Asos og Nasty Gal. Báðar verslanirnar senda til Íslands. Annars er ekkert skilyrði að flíkurnar sem ég kaupi séu merkjavörur. Ég á mikið af fal- legum „second hand“ flíkum sem eru margar í uppáhaldi hjá mér.“ Eyðir þú miklu í föt? „Ef ég á að vera hreinskilin þá eyði ég líklega of miklum peningum í föt, að mati sumra að minnsta kosti. Ég á erfitt með að hemja mig þegar ég sé eitthvað sem mig virkilega langar í og oftast nær verslunareðlið yfir- höndinni. Mér til varnar er ég samt dugleg að kaupa ódýr föt, eins og í H&M, Primark eða í „second hand“ búðum, svo sem í Kolaportinu eða á fatamörkuðum.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín? „Ég á margar uppáhaldsflíkur en þær sem eru í algjöru uppáhaldi akkúrat núna eru líklega ljósbleika úlpan mín úr Topshop og Marc Jacobs taskan mín.“ Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? „Hversu lengi ég er að gera mig til og ákveða í hverju ég á að vera. Ég er oftast síðust út úr húsi og ég þarf að vera ánægð með átfittið áður en að ég fer út. Notar þú fylgihluti? „Ég á ótal töskur og klúta en þá fylgihluti held ég mest upp á. Ég nota ekki mikið skartgripi nema þegar ég fer eitthvað fínt eða er í stuði til þess. Hins vegar held ég mikið upp á snyrtivörur og fyrir mér er flott förðun lykillinn að flottu lúkki.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Ég held upp á Kenzu Zouiten, tískublogg- ara frá Svíþjóð, og hef fylgst lengi með því sem hún er að gera. Hún hannaði fatalínu fyrir nokkrum árum sem heitir Ivyrevel og ég held mikið upp á og skoða reglulega.“ Úlpa: Topshop í London, peysa: keypt notuð á fatamarkaði, buxur: Zara, skór: Kaupfélagið. MYND/STEFÁN Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Framhald af forsíðu ➛ Skyrta: Gyllti kötturinn, buxur: 5 units, Gallerí 17, skór: GS skór. MYND/STEFÁN Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Úrval af kjólum Kjóll kr. 5.990. str. S-XXL Kjólar í str. 36-56 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Nýjar vörur frá X-TWO Gleðilega Páska Fyrir þig í Lyfju lyfja.is Nú er tími fyrir fallega brúnku! BronzExpress brúnku vörurnar gefa þér fallegan lit sem endist! 25% Gildir út apríl 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . a p r Í l 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C A 9 -3 B 2 8 1 C A 9 -3 9 E C 1 C A 9 -3 8 B 0 1 C A 9 -3 7 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.