Fréttablaðið - 13.04.2017, Blaðsíða 24
„Blái leðurjakkinn minn er líklega uppáhaldsflíkin mín núna, hann er svo skemmtilega „eitís“, segir Ögmundur Kára-
son. Jakkann keypti hann notaðan á um 6.000 kr. á fatamarkaði við Hlemm. MYND/EYÞÓR
Hljómsveitin Phlegm lenti óvænt í öðru sæti Músíktil-rauna í upphafi mánaðarins.
Sveitin, sem var stofnuð einungis
viku fyrir keppnina, er skipuð
þeim Flemming Viðari Valmunds-
syni bassaleikara og Ögmundi
Kárasyni trommuleikara en báðir
sjá þeir um sönginn. Ögmundur
er tvítugur strákur af Seltjarnar-
nesi og skipar tónlistin stóran sess
í lífi hans. „Ég spila reglulega með
ýmsum hljómsveitum og vona að
ég geti unnið við og lifað á tónlist í
framtíðinni. Einnig hlusta ég mikið
á tónlist, grandskoða hana og pæli
mikið í henni. Ég er hægt og rólega
að stækka safnið mitt, bæði af
geisladiskum og plötum, og meira
að segja kasettum.“
Phlegm spilar einhvers konar
blöndu af hardcore- og noise-rokki
og segir Ögmundur Músíktilraunir
hafa verið mjög skemmtilega upp-
lifun. „Þetta var rosalega gaman
allt saman, að spila og líka bara að
kynnast öllu þessu fólki. Ég verð
að segja að árangurinn kom mér
mjög á óvart, mér brá eiginlega
þegar Phlegm var lesið upp. Svo
varð ég mjög hissa að vinna verð-
launin trommuleikari ársins vegna
þess að það voru aðrir mjög góðir
trommuleikarar að keppa líka.“
Ögmundur lýsir fatastíl sínum
sem frekar einföldum. „Hversdags-
lega er ég yfirleitt bara í gallabux-
um og ýmist í skyrtu eða bol, og þá
oft tónlistarbol, og svo kannski í
peysu. Ég klára svo heildarmynd-
ina oft með einhverjum skemmti-
legum jakka yfir.“
Hvenær fékkstu áhuga á tísku?
„Ég hef ekki beint áhuga á tísku,
frekar bara áhuga á fötum. Áhug-
inn kviknaði í menntaskóla þar
sem fatasmekkur minn þróaðist
hægt og rólega. Gallabuxurnar
hafa þrengst aðeins í gegnum
tíðina og tónlistarbolum hefur
fjölgað. Ég hef líka verið að safna
í smá slaufusafn.“ Hvað einkennir
klæðnað karla í dag? „Tíska karl-
manna virðist vera skemmtileg
blanda af götuklæðnaði og smá
dassi af íþróttavörum, þá aðallega
skóm. Föt með pínu fínum blæ sem
finnast t.d. í búðum eins og Húrra
Reykjavík.“
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
„Ég er eiginlega bara svolítill flakk-
ari og fer á milli búða og vonast
eftir því að finna mér eitthvað flott.
Það eru margar mjög fínar versl-
anir bæði hér heima og erlendis en
engin sérstök í uppáhaldi. Annars
finnst mér mjög gaman að fara á
fatamarkaði og skoða meðal ann-
ars notuð föt.“
Hverjir eru uppáhaldshönnuð-
irnir? „Ég fylgist ekki svo mikið
með hönnuðum en mér hefur
alltaf fundist Coco Chanel mjög
einkennilegt og skemmtilegt nafn.
Mér fannst reyndar líka Kanye
West ansi brattur þegar hann
skellti sér í tískuna. Þetta sýnir bara
hversu lítið ég fylgist með. Aftur
á móti þá þekki ég einn íslenskan
hönnuð ágætlega persónulega.
Hann heitir Jón Gunnar Zoëga og
hefur verið að gera nokkuð góða
hluti með merkinu sínu Modern
Day Slaves. Ég hlakka til að sjá
hvað hann gerir í framtíðinni.“
Áttu uppáhaldsflík? „Jakkafötin
sem ég klæddist við útskriftina úr
menntaskóla eru í miklu uppá-
haldi hjá mér en þau eru spari.
Blái leðurjakkinn minn er líklega
uppáhaldsflíkin mín núna, hann
er svo skemmtilega „eitís“. Ég
keypti hann notaðan á um 6.000
kr. á fatamarkaði við Hlemm. Ég
hef fengið að heyra að hann minni
meðal annars á Michael Jackson,
með smá svona „thriller vibe“ og á
Julian Casablancas úr The Strokes.“
Bestu og verstu kaupin? „Blái
jakkinn er klárlega ein bestu kaup
sem ég mun nokkurn tíman gera.
Annars get ég líka nefnt ponsjó
sem ég keypti á Hróarskeldu, mér
varð hvorki of kalt né of heitt.
Verstu kaupin væru mögulega
flestar buxur sem ég hef keypt í
H&M því að þær rifna svo auðveld-
lega í klofinu.“
Næstu tónleikar hjá sveitinni
verða á sumardaginn fyrsta þar
sem hún kemur fram á Bar Ananas
ásamt félögum í Captain Syrup og
CeaseTone. „Svo munum við líka
spila á Iceland Airwaves í haust en
utan þess er lítið annað planað.“
Áhugasamir geta fylgst með
þeim félögum á Facebook
(Phlegm) og hlustað á tvö lög
sveitarinnar á síðu Músiktilrauna á
Soundcloud.com (musiktilraunir).
Blái jakkinn í
miklu uppáhaldi
Leðurjakki Ögmundar Kárasonar úr hljóm-
sveitinni Phlegm minnir marga á Michael
Jackson og Casablancas úr The Strokes.
Múmínbolli ársins 2017 er að
mörgu leyti sérstakur. Á hann er
þrykkt mynd sem höfundurinn
Tove Jansson teiknaði sjálf í sög-
unni Pípuhattur galdra-
karlsins en hún kom
fyrst úr árið 1948.
Múmínbollarnir
frá Arabia eru
óhemju vinsælir
og margir safna
þeim. Á hverju
ári kemur ný
útgáfa af boll-
anum í takmörk-
uðu upplagi.
Bollarnir geta því
orðið verðmætir
eftir því sem þeir
eldast. Í fyrra seldist
Múmínbolli á rúmlega
991 þúsund krónur í Sví-
þjóð eða 79.000 sænskar krónur.
Hann var úr Fazer-seríunni og var
einungis gerður í 400 eintökum
árið 2004. Aðeins 380 bollar fóru í
verslanir.
Nýi bollinn sem
kemur út í maí er
gerður til heiðurs
Tove Jansson
og verkum
hennar um
Múmínálf-
ana. Jafn-
framt fagnar
Finnland 100
ára sjálfstæði
á þessu ári og
verður mikið
um dýrðir af því
tilefni.
Fágætur og fínn
nýr Múmínbolli
Múmínbolli ársins 2017.
Áhuginn kviknaði í
menntaskóla þar
sem fatasmekkur minn
þróaðist hægt og rólega.
Gallabuxurnar hafa
þrengst aðeins í gegnum
tíðina og tónlistarbolum
hefur fjölgað. Ég hef líka
verið að safna í smá
slaufusafn.
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Gleðilega páska
CREENSTONE KÁPURNAR KOMNAR
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . a P r í L 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
A
9
-2
7
6
8
1
C
A
9
-2
6
2
C
1
C
A
9
-2
4
F
0
1
C
A
9
-2
3
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K