Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 13.04.2017, Qupperneq 36
KviKmyndir Snjór og Salóme HHHHH Leikstjóri: Sigurður Anton Framleiðendur: Magnús Thorodd- sen Ívarsson, Sigurður Anton Handrit: Sigurður Anton Kvikmyndataka: Aron Bragi Baldursson Aðalhlutverk: Anna Hafþórsdóttir, Telma Huld Jóhannesdóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson Við kynnumst hinni ungu og við- kunnanlegu Salóme. Hún vinnur á útvarpsstöð og býr með fyrrverandi kærasta sínum, Hrafni, sem hún heldur góðu sambandi við. Lífið virðist vera nokkuð venjulegt og átakalaust þangað til að Hrafn byrj- ar að hitta nýja stelpu – og barnar hana fljótlega. Eins og sannur herra- maður ákveður hann auðvitað að það sé fín hugmynd að leyfa barns- móðurinni, henni Ríkeyju, sem ber tvíbura undir belti, að flytja inn með þeim. Skiljanlega setur þetta veröld Salóme á hliðina, en stóra spurningin reynist vera hvort þetta sé upphafið að algjörri martröð eða einhverju töluvert ljúfara. Íslenskar kvikmyndir um ungt fólk eru ekki á hverju strái og hingað til hefur hin svokallaða aldamóta- kynslóð aðallega fengið að halda sér í vissum „indí“ (jaðrandi við „míkró- budget“) geira. Tilbreytingin er ávallt góð og í stað þess að hæla Snjó og Salóme fyrir það hvað hún hefur, þá liggur við að sé meira jákvætt að finna í því sem hún hefur ekki; hér er enginn sveitabær í forgrunni, litlar sem engar fjölskyldu- deilur, enginn drykkjuvandi eða linnulaus eymd. Snjór og Salóme hefur vissan ferskleika sér til vopns og er í eðli sínu jákvæð og hjartahlý. En góður ásetningur og sterk- ur áhugi aðstandenda getur bara flutt eina kvikmynd ákveðið langt. Restin hvílir náttúrulega á sjarmanum, almennri úrvinnslu og ekki síður tæknivinnslu. Mikill sjarmi getur létti- lega breitt yfir viðvanings- legt útlit en snyrtilegur stíll getur aftur á móti sjaldnast bætt upp fyrir sjarmaleysi. Þessi mynd líður fyrir að klikka á hvoru tveggja. Það er ódýr bragur á henni, oftar en ekki tilgerð í dramanu og, það sem verra er, einn af hverjum tuttugu bröndurum hittir í mark. Myndin kemur frá sömu aðstandendum og gáfu út greddukómedíuna Webcam fyrir nokkrum árum, sem betur mátti líkja við krúttlega tilraun frekar en kvikmynd, af stílbrögðum, hljóð- vinnslu og frásögn að dæma. Leikstjóri og handritshöfundur beggja mynda, Sigurður Anton, hefur greinilega ómældan áhuga á léttgeggjuðum persónum, eðlilega óeðlilegum samböndum þeirra og mikilli spunagleði en þarf betur að vanda sig í listinni að púsla slíkum þáttum saman í ásættanlegan heildar pakka. Snjór og Salóme er annars vegar metnaðarfyllri og einlægari saga heldur en Webcam. Í myndinni er fiktað við þemu um vináttu og erfið- ið við það að horfa fram á við í lífinu en það verður þó fljótlega áberandi að leikstjórinn er ekki viss um það hvernig mynd þetta á að vera (Web- cam átti við sams konar vandamál að stríða), eða hvað það er sem hún ætlar sér að segja. Eina stundina er stuðst við aðstæðubundna kómík, eins og óbeint sé kallað eftir dósa- hlátri, en svo er reynt að kreista út einlægu drama inn á milli í tog- streitu titilpersónunnar. Í hlutverki Salóme sýnir Anna Hafþórsdóttir hvað hún er efnileg leikkona, sem gæðir Salóme miklu meira lífi heldur en pappírinn hefur boðið upp á. Telma Huld Jóhannesdóttir hefur sömuleiðis mikla útgeislun og er sannfærandi að flestu leyti, þrátt fyrir að Ríkey sé líkari ýktri skopmynd þegar hún er kynnt til sögunnar áður en hún þróast hægt og rólega í bitastæðari karakter. Húmorinn í myndinni er kannski að megninu til pínlegur en þegar reynt er að hamra á alvarlegri dýnamík á milli Salóme og Ríkeyjar laumast eitthvað trúverðugra í gegn. Því miður er þó langt á milli slíkra augnablika, en þessar tvær draga myndina þangað sem hún kemst og gera það með aðdáunarverðum sóma. Vigfús Þormar Gunnarsson er ekki upp á marga fiska í hlutverki Hrafns, heldur bara einkennilega flatur. Maður skilur varla hvers vegna stelpurnar eru báðar svona helteknar af manninum, en hann er hvort sem er illa skrifuð persóna sem gefst lítið tækifæri til að þróa og hann hverfur reglulega úr myndinni eftir þörfum handritsins. Það kemur reglulega fyrir að tvívíðar og skrípalegar persónur skjóti upp kollinum, yfirleitt til þess að fylla upp í tímarammann, þótt það verði að segjast að þau Ólafía Hrönn, Júlí Heiðar, Ævar Már Ágústsson og ástralski grínarinn Jonathan Duffy bæti miklu við með hressleika sínum. Það eru ýmsir sögupunktar sem eru ekki nægilega vel þróaðir, til dæmis skandall sem kemur upp hjá samstarfsmanni Salóme, leikinn af furðulega vannýttum Góa. Handrit- ið hefði almennt þurft að fínpússa og samantektin hefði líklega skilað einhverju ef afgangurinn drægist ekki svona á langinn á röngum stöð- um – oftast á tímapunktum þar sem lopi brandaranna er teygður upp að slitmörkum. Ég er viss um að það sé einhvers staðar hress, mannleg og eflaust hugguleg mynd til hjá Sigurði Ant- oni. En þetta er ekki hún. Tómas Valgeirsson niðurStaða: Það hjakkar ekki mikið í klisjum og }myndin hefur gott hjarta ásamt góðum samleik frá leikkonunum tveimur, en hand- ritsgerð og tæknivinnsla er viðvan- ingsleg og tónninn í algeru tjóni. Ástarþríhyrningur, ýktar skopmyndir og gervidramatík Anna Hafþórsdóttir sýnir og sannar hversu efnileg leikkona hún er í hlutverki sínu sem Salóme. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNINGAKEPPNI FJÖLMIÐLANNA LOGI BERGMANN SPYR ELDKLÁRT FJÖLMIÐLAFÓLK SKÍRDAG KL. 16:00 - 18:30 léttöl 1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r28 m e n n i n G ∙ F r É t t a B l a ð i ð Bíó 1 3 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C A 9 -2 7 6 8 1 C A 9 -2 6 2 C 1 C A 9 -2 4 F 0 1 C A 9 -2 3 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.