Fréttablaðið - 13.04.2017, Síða 36
KviKmyndir
Snjór og Salóme
HHHHH
Leikstjóri: Sigurður Anton
Framleiðendur: Magnús Thorodd-
sen Ívarsson, Sigurður Anton
Handrit: Sigurður Anton
Kvikmyndataka: Aron Bragi
Baldursson
Aðalhlutverk: Anna Hafþórsdóttir,
Telma Huld Jóhannesdóttir, Vigfús
Þormar Gunnarsson
Við kynnumst hinni ungu og við-
kunnanlegu Salóme. Hún vinnur á
útvarpsstöð og býr með fyrrverandi
kærasta sínum, Hrafni, sem hún
heldur góðu sambandi við. Lífið
virðist vera nokkuð venjulegt og
átakalaust þangað til að Hrafn byrj-
ar að hitta nýja stelpu – og barnar
hana fljótlega. Eins og sannur herra-
maður ákveður hann auðvitað að
það sé fín hugmynd að leyfa barns-
móðurinni, henni Ríkeyju, sem ber
tvíbura undir belti, að flytja inn
með þeim. Skiljanlega setur þetta
veröld Salóme á hliðina, en stóra
spurningin reynist vera hvort þetta
sé upphafið að algjörri martröð eða
einhverju töluvert ljúfara.
Íslenskar kvikmyndir um ungt
fólk eru ekki á hverju strái og hingað
til hefur hin svokallaða aldamóta-
kynslóð aðallega fengið að halda sér
í vissum „indí“ (jaðrandi við „míkró-
budget“) geira. Tilbreytingin er
ávallt góð og í stað þess að hæla Snjó
og Salóme fyrir það hvað hún hefur,
þá liggur við að sé meira jákvætt að
finna í því sem hún hefur ekki; hér
er enginn sveitabær í forgrunni,
litlar sem engar fjölskyldu-
deilur, enginn drykkjuvandi
eða linnulaus eymd.
Snjór og Salóme hefur
vissan ferskleika sér til
vopns og er í eðli sínu
jákvæð og hjartahlý. En
góður ásetningur og sterk-
ur áhugi aðstandenda getur
bara flutt eina kvikmynd
ákveðið langt. Restin hvílir
náttúrulega á sjarmanum,
almennri úrvinnslu og
ekki síður tæknivinnslu.
Mikill sjarmi getur létti-
lega breitt yfir viðvanings-
legt útlit en snyrtilegur
stíll getur aftur á móti
sjaldnast bætt upp fyrir
sjarmaleysi. Þessi mynd
líður fyrir að klikka á
hvoru tveggja. Það er
ódýr bragur á henni, oftar
en ekki tilgerð í dramanu
og, það sem verra er,
einn af hverjum tuttugu
bröndurum hittir í mark.
Myndin kemur frá
sömu aðstandendum og gáfu út
greddukómedíuna Webcam fyrir
nokkrum árum, sem betur mátti
líkja við krúttlega tilraun frekar en
kvikmynd, af stílbrögðum, hljóð-
vinnslu og frásögn að dæma.
Leikstjóri og handritshöfundur
beggja mynda, Sigurður Anton,
hefur greinilega ómældan áhuga á
léttgeggjuðum persónum, eðlilega
óeðlilegum samböndum þeirra og
mikilli spunagleði en þarf betur að
vanda sig í listinni að púsla slíkum
þáttum saman í ásættanlegan
heildar pakka.
Snjór og Salóme er annars vegar
metnaðarfyllri og einlægari saga
heldur en Webcam. Í myndinni er
fiktað við þemu um vináttu og erfið-
ið við það að horfa fram á við í lífinu
en það verður þó fljótlega áberandi
að leikstjórinn er ekki viss um það
hvernig mynd þetta á að vera (Web-
cam átti við sams konar vandamál
að stríða), eða hvað það er sem hún
ætlar sér að segja. Eina stundina er
stuðst við aðstæðubundna kómík,
eins og óbeint sé kallað eftir dósa-
hlátri, en svo er reynt að kreista
út einlægu drama inn á milli í tog-
streitu titilpersónunnar.
Í hlutverki Salóme sýnir Anna
Hafþórsdóttir hvað hún er efnileg
leikkona, sem gæðir Salóme miklu
meira lífi heldur en pappírinn
hefur boðið upp á. Telma Huld
Jóhannesdóttir hefur sömuleiðis
mikla útgeislun og er sannfærandi
að flestu leyti, þrátt fyrir að Ríkey
sé líkari ýktri skopmynd þegar hún
er kynnt til sögunnar áður en hún
þróast hægt og rólega í bitastæðari
karakter.
Húmorinn í myndinni er kannski
að megninu til pínlegur en þegar
reynt er að hamra á alvarlegri
dýnamík á milli Salóme og Ríkeyjar
laumast eitthvað trúverðugra í gegn.
Því miður er þó langt á milli slíkra
augnablika, en þessar tvær draga
myndina þangað sem hún kemst
og gera það með aðdáunarverðum
sóma.
Vigfús Þormar Gunnarsson er
ekki upp á marga fiska í hlutverki
Hrafns, heldur bara einkennilega
flatur. Maður skilur varla hvers
vegna stelpurnar eru báðar svona
helteknar af manninum, en hann
er hvort sem er illa skrifuð persóna
sem gefst lítið tækifæri til að þróa og
hann hverfur reglulega úr myndinni
eftir þörfum handritsins.
Það kemur reglulega fyrir að
tvívíðar og skrípalegar persónur
skjóti upp kollinum, yfirleitt til
þess að fylla upp í tímarammann,
þótt það verði að segjast að þau
Ólafía Hrönn, Júlí Heiðar, Ævar Már
Ágústsson og ástralski grínarinn
Jonathan Duffy bæti miklu við með
hressleika sínum.
Það eru ýmsir sögupunktar sem
eru ekki nægilega vel þróaðir, til
dæmis skandall sem kemur upp hjá
samstarfsmanni Salóme, leikinn af
furðulega vannýttum Góa. Handrit-
ið hefði almennt þurft að fínpússa
og samantektin hefði líklega skilað
einhverju ef afgangurinn drægist
ekki svona á langinn á röngum stöð-
um – oftast á tímapunktum þar sem
lopi brandaranna er teygður upp að
slitmörkum.
Ég er viss um að það sé einhvers
staðar hress, mannleg og eflaust
hugguleg mynd til hjá Sigurði Ant-
oni. En þetta er ekki hún.
Tómas Valgeirsson
niðurStaða: Það hjakkar ekki
mikið í klisjum og }myndin hefur
gott hjarta ásamt góðum samleik
frá leikkonunum tveimur, en hand-
ritsgerð og tæknivinnsla er viðvan-
ingsleg og tónninn í algeru tjóni.
Ástarþríhyrningur, ýktar
skopmyndir og gervidramatík
Anna Hafþórsdóttir sýnir og sannar hversu efnileg leikkona hún er í hlutverki
sínu sem Salóme. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNINGAKEPPNI
FJÖLMIÐLANNA
LOGI BERGMANN SPYR ELDKLÁRT FJÖLMIÐLAFÓLK
SKÍRDAG KL. 16:00 - 18:30
léttöl
1 3 . a p r í l 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r28 m e n n i n G ∙ F r É t t a B l a ð i ð
Bíó
1
3
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
A
9
-2
7
6
8
1
C
A
9
-2
6
2
C
1
C
A
9
-2
4
F
0
1
C
A
9
-2
3
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K