Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Page 3
vmct
FORSÍÐUMYND:
Áhugi fólks á umhverfisvernd
og óspilltri náttúru fer vaxandi
og er fjallaö um þaö mál í
ritstjóraspjalli blaösins.
Myndina tók Kristján
Einarsson.
2. tölublað, maí 1990
66. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRAR OG ÁBYRGÐARMENN:
Lilja U. Óskarsdóttir og Stefanía V. Sigurjónsdóttir
RITSTJÓRN:
ÁSA ST. ATLADÓTTIR, SlMI 51126
SIGRI'ÐUR SKÚLADÓTTIR, SÍMI 43908
RANNVEIG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 40187
AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING:
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 687575.
BLAÐIÐ KEMUR ÚTÁRSFJÓRÐUNGSLEGA
endurprentun bönnuð án leyfis ritstjóra.
ÁSKRIFTARGJALD ER KR. 1.000,00
EFNISYFIRLIT
Arsskýrsla stjórnar til fulltrúafundar ................ bls. 4
Er handþvottur metinn sem skyldi? ..................... bls. 16
Handklæðaböðun ........................................ bls. 15
Ótroðnar slóðir........................................ bls. 19
Geðþóttalyf............................................ bls. 28
Líkamsklukkan - hvað er það? ......................... bls 32
Eréttir................................................ bls. 35
Smitgát og sýkingavarnir............................... bls. 37
Rriður er okkar fag.................................... bls. 38
Rramhaldsnám erlendis.................................. bls. 40
'SSN 0250-4731
ÚMSJÓN MEÐ ÚTGÁFU BLAÐSINS: FRÓÐI HF„ ÁRMÚLA 18,
SÍMl 82300.
PRENTVINNSLA: G. BEN. PRENTSTOFA HF.
Ritstjóra-
spjall
I ár er meiri umrœða um umhverfið, umhverfisvernd og
samspil manns og umhverfis en endranœr.
Það leiðir hugann að áhrifum umhverfis á heilsu fólks,
bœði til góðs og ills.
Mörg heilbrigðisvandamál, sem við glímum við í dag, eiga
rœtur sínar að rekja til umhverfis og lífsstíls, sem við höfum
sjálf skapað.
Ofarlega í huga eru sjúkdómar af völdum mengunar og
aukaefna afýmsu tagi, t. d. í andrúmslofti, vatni og matvœl-
um, umferðarslys, slys í heimahúsum og slys í atvinnulífinu,
svo eitthvað sé nefnt.
Hvert er hlutverk okkar hjúkrunarfrœðinga í sambandi
við verndun umhverfis mannsins ogfyrirbyggingu sjúkdóma
afvöldum umhverfisins eins og það er í dag?
Einstaklingurinn liefur bœði réttindi og skyldur þegar um
heilbrigði er að rœða.
Sérhver einstaklingurhefurmikla ábyrgð varðandiþað að
vernda umhverfið og bæta það, en það getur skipt sköpum
fyrir afkomu mannsins og vellíðan íframtíðinni hvernig til
tekst.
Sérhver hjúkrunarfrœðingur hefur enn meiri ábyrgð, þar
sem hann býr yfir þekkingu um manninn og um mikilvœgi
þess að samspil manns og umhverfis sé í jafnvœgi, effyrir-
byggja á ýmis heilbrigðisvandamál.
Hlutverk hjúkrunarfrœðings tel ég margþœtt.
Þaðfelst m.a. íþví
— að afla sér frekari þekkingar, t.d. úr rannsóknum,
— að vera þátttakandi í rannsóknum, sem gefa upplýsing-
ar um umhverfisþœtti sem ógna kunna heilbrigði,
— að greina áhrif umhverfisins á heilbrigði,
— að hafa markmið og tímamörk að leiðarljósi, t.d.
markmið WHO „Heilbrigði fyrir alla árið 2000“, en það
næst aðeins með virkri þátttöku okkar allra og í samvinnu
við aðra,
— að miðla daglega þekkingu til einstaklinga, fjölskyldna
og samfélags um leiðir til að viðhalda heilbrigði, auka vellíð-
an og fyrirbyggja áhrif heilsuspillandi umhverfisþátta,
— að vinna með heilbrigðisyfirvöldum og standa vörð um
réttþegnanna íþjóðfélaginu til heilsusamlegs umhverfis.
Hjúkrunarfrœðingar geta með þekkingu sinni Itaft áhrifá
viðhorf og lífsstíl fólksins í landinu.
Ekki má gleyma því að sífellt stærri hópur fólks er orðinn
mjög meðvitaður um mikilvœgi heilbrigðis og leiðir til að
viðhalda heilbrigði. Því ber að fagna.
Hjúkrunarfrœðingum ber skylda til að bœta við þekkingu
fólks, að hvetja það og styðja á leið sinni til heilsusamlegri
lifnaðarhátta. Þannig getum við fjárfest á arðbæran hátt í
framtíðinni í formi bœttrar heilsu og vellíðunar þegnanna í
þjóðfélaginu.
Sumarkveðja.
Lilja Óskarsdóttir.
HJÚKRUN 7*—66. árgangur 3