Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Page 7
* félagsmál
Ekkert námskeið var haldið fyrir
trúnaðarmenn félagsins á árinu
1989.
menntunarmál
Nýi hjúkrunarskólinn lauk starfi
s>nu sem menntasetur fyrir fram-
halds- og sérfræðimenntun hjúkr-
unarfræðinga innan HFÍ nú um
áramótin. Skólinn starfaði í 17 ár.
Tveir nemendahópar áttu eftir
uð ljúka námi; - nemendur í skurð-
og svæfinganámi — og ljúka þeir
námi frá Háskóla íslands í vor.
24. maí 1989 auglýsti Mennta-
málaráðuneytið 2 af stöðum kenn-
ara við Nýja hjúkrunarskólann
lausar til umsóknar.
1. Stöðu lektors í hjúkrunar-
fræði. Undir starfið fellur skipu-
lagning á viðbótar- og endurmennt-
un hjúkrunarfræðinga.
2. Hálfa stöðu lektors í hjúkrun-
arfræði. Undir starfið fellur skipu-
lagning á námi hjúkrunarfræðinga
til BS prófs í hjúkrunarfræði.
3. Hálfa stöðu lektors í hjúkrun-
arfræði. Aðalkennslugrein: Hjúkr-
unarstjórnun.
Stöðurnar hlutu: Ragnheiður
Haraldsdóttir, Sigríður Halldórs-
dóttir og Birna Fljgenring.
Fyrir liönd HFI óska ég þeim til
hamingju og býð þær velkomnar til
starfa.
María Finnsdóttir, fræðslustjóri
HFI, mun gera framhalds- og end-
urmenntunarmálum okkar betri
skil í sinni skýrslu.
Ritun sögu Hjúkrunarskóla ís-
lands er að mestu lokið. Örn og
Orlygur munu að öllum líkindum
gefa bókina út, en ekki er ákveðið
hvenær það verður, en með næsta
fréttablaði HFÍ mun fylgja áskrift-
arseðill fyrir bókina og vil ég hvetja
alla hjúkrunarfræðinga til að kaupa
hana.
Afrit af prófskírteinum nemenda
HSÍ mun skrifstofa námsbrautar í
hjúkrunarfræði afgreiða í framtíð-
'uni. Ekki hefur endanlega verið
gengið frá því, en á meðan hefur
Þorbjörg Jónsdóttir, fyrrverandi
skólastjóri Hjúkrunarskóla ís-
lands, sinnt þessu.
FAGLEG MÁLEFNI
í síðustu ársskýrslu var ítarlega
greint frá gangi mála varðandi
frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr.58/1984 um sjúkraliða.
Frumvarpið varð að lögum 19. maí
1989 og jafnframt féll úr gildi 8.
grein hjúkrunarlaga frá 1974. Sjá 1.
grein laga um breytingu á lögum nr.
58/1984 um sjúkraliða og 8.gr.
hjúkrunarlaga).
í lögum um almannatryggingar
nr. 67/1971 43. gr. með breytingu
frá 1986 er eftirfarandi:
„Sjúkrasamlag skal veita þá
hjálp, sem hér er talin. Hjúkrun í
heimahúsum vegna alvarlegra og
langvinnra sjúkdóma og slysa sam-
kvæmt samningum sem Trygginga-
stofnun ríkisins gerir og reglum er
tryggingaráð setur.“
Hjúkrunarfélag íslands og Félag
háskólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga hafa gert samning við Trygg-
ingastofnun ríkisins á grundvelli
þessara laga. Samningurinn var
undirritaður þann 15. júní 1989 og
er sá fyrsti sinnar tegundar á ís-
landi.
Hér er um einskonar tilrauna-
samning að ræða og til eins ár.
Samkvæmt honum geta tíu
hjúkrunarfræðingar starfað sjálf-
stætt með eigin rekstur, svipað og
læknar og sjúkraþjáflarar. Fulltrúi
HFÍ í viðræðum var formaður
ásamt Öldu Halldórsdóttur, hjúkr-
unarráðgjafa á Landakoti. Full-
trúar FHH voru Laura Sch. Thor-
steinsson formaður, Jón Snorra-
son, deildarstjóri í Arnarholti.
Birgir Björn Sigurjónsson hagfræð-
ingur BHMR veitti nefndinni fag-
lega aðstoð.
Síðastliðið haust skipaði heil-
brigðisráðuneytið nefnd er skyldi
útbúa frumvarp um skilgreiningu á
dauða- og flutningi líffæra. For-
maður HFI sat í nefndinni. Aðrir
nefndarmenn voru Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri, sem var formaður
nefndarinnar, Þórður Harðarson,
* Lög um breytingu á lögum nr. 58/1984 um sjúkraliða.
5. gr. laganna orðast svo: ^
Sjúkraliði starfar á hjúkrunarsviði og vinnur undir stjórn þess
hjúkrunarfræðings sem fer með stjórn viðkomandi stofnunar,
deildar eða hjúkrunareiningar og ber ábyrgð á störfum sínum
gagnvart honum.
Þar sem hjúkrunarfræðingur hefur ekki fengist til starfa að
undangenginni auglýsingu getur sjúkraliði borið ábyrgð á störfum
sínum gagnvart þeim sérfræðingi sem hlotið hefur viðurkenningu
heilbrigðisráðuneytisins. Þó skal slík skipan háð samþykki
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og ekki standa lengur en
eitt ár í senn og er þá skylt að auglýsa á ný eftir hjúkrunarfræðingi.
Komi upp ágreiningur um ráðningu sjúkraliða samkvæmt 2. mgr.
skal ráðuneytið skera úr um þann ágreining. Ráðherra ákveður í
reglugerð um nám sjúkraliða og starfsemi Sjúkraliðaskóla íslands.
Hjúkrunarlög:
Heimilt er að þjálfa sjúkraliða til aðstoðar við hjúkrun og skal
nám þeirra, starfsréttindi og skyldur ákveðin í reglugerð.
Ákvæði 6. og 7. gr. gilda einnig um sjúkraliða eftir því sem við á.
HJÚKRUN 2/n—66. árgangur 7