Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Page 9
prófessor við læknadeild Háskóla
íslands, Ólafur Ólafsson landlækn-
ir, Páll Ásmundsson yfirlæknir og
Sigfinnur Þorleifsson, skjúkra-
húsprestur Borgarspítalans. Dögg
Pálsdóttir lögfræðingur í heilbrigð-
isráðuneytinu var ritari nefndar-
innar.
Nefndin lauk störfum í apríl 1989
°g lagði ráðherra frumvarpið fram
til kynningar á Alþingi.
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum nr. 59/1983 um heilbrigðis-
þjónustu var lagt fram á 112. lög-
gjafarþingi íslands 1989.
HFI fékk frumvarpið til umsagn-
ar og sendi þann 8. desember 1989
inn umsögn í samvinnu við FFH.
Nýmæli í frumvarpinu eru m.a.
þau að skipa skuli héraðshjúkrun-
arfræðing í Reykjavík, á Norður-
landi eystra og í Reykjaneshéraði
til 4 ára í senn. HFÍ hefur í mörg ár
barist fyrir slíkri skipan. Á afmælis-
ráðstefnu þann 4. nóvember 1989
tilkynnti heilbrigðisráðherra fyrst
opinberlega að hann myndi setja
þetta inn í frumvarpið. Mikil
ánægja er með slíka skipan mála hjá
hjúkrunarfræðingum og í umfjöllun
Þingsins um málið var það einnig
talið gott mál.
Annað nýtt atriði er það að rísi
UPP ágreiningur um valdsvið sér-
menntaðs starfsliðs á heilbrigðis-
stofnunum, skeri stjórn úr, en hægt
sé að áfrýja úrskurði stjórnar til
fáðherra.
I greinargerð með frumvarpinu
segir m.a. orðrétt:
„Ágreiningur hefur verið vax-
andi vandamál á undanförnum ár-
um ekki síst milli lækna annars veg-
ar og hjúkrunarfræðinga hins veg-
ar.“
Pá er lagt til að 17. grein laganna
falli niður þar sem kveðið er á um
Það að hjúkrunarfræðingar, ljós-
mæður og sjúkraþjálfarar skuli
starfa við heilsugæslustöðvar. I
stað þess ráði stjórnir stöðvanna
starfsfólk.
í:‘ félagsmál
HFÍ og FHH áttu fund með
Læknafélagi íslands út af frum-
varpinu. Þar kynntu félögin þær
umsagnir er gefnar yrðu um það.
Félögin áttu einnig saman fund
vegna þeirra fullyrðinga er fram
koma í frumvarpinu um vaxandi
ágreining stéttanna. Fulltrúi land-
læknisembættisins, Vilborg Ing-
ólfsdóttir, sat einnig fundinn. Þar
kom fram að ágreiningsefni milli
þessara tveggja stétta væru oftast af
persónulegum toga spunnin, en
ekki faglegum, og ágreiningsmálin
væru fá miðað við þau miklu sam-
skipti sem læknar og hjúkrunar-
fræðingar hefðu. Ákveðið var að
boða fulltrúa læknadeildar í Há-
skóla íslands og námsbrautar í
hjúkrunarfræði á næsta fund.
Vegna mikillar óánægju með
úrskurðarvald ráðherra í ágrein-
ingsmálum heilbrigðisstétta kom
ný tillaga fram um það að yfirlæknir
yrði úrskurðaraðili. Þannig fór
málið til efri deildar Alþingis.
Hjúkrunarfélögin höfðu með sinni
umsögn óskað eftir fundi með
nefndinni. Þann 24. apríl 1990 fóru
formenn félaganna, Sigþrúður
Ingimundardóttir og Ásta Möller,
á fund nefndarinnar og lögðu fram
bréf þess efnis að greinin yrði felld
út.
Frumvarpið var samþykkt sem
lög frá Alþingi þann 4. maí 1990 og
var þá búið að fella út áðurnefnda
grein.
HFÍ og FHH sendu frá sér í ann-
að sinn umsögn um íslenska heil-
brigðisáætlun. Þar kemur skýrt
fram stefna félaganna varðandi
markmið Alþjóða heilbrigðismála-
stofnunarinnar, Heilbrigði fyrir
alla árið 2000.
Þann 10. ágúst 1989 barst HFÍ
bréf frá landlækni, Ólafi Ólafssyni.
Þar kemur fram að vaxandi þörf sé
á heilbrigðisstarfsfólki, sérstaklega
á heilsugæslustöðvunum, og að
ástæðurnar séu aðallega stóraukin
verkefni á sviði heilsugæslu, ásamt
minnkandi aðsókn, og útskrift
fólks úr skólum heilbrigðisstétta.
Meðfylgjandi eru síðan drög að
starfslýsingu fyrir nýja stétt á
heilsugæslustöðvum, „heilsuliða",
samin af Stefáni Þórarinssyni, hér-
aðslækni Austurlands.
Svar HFÍ var sent 29. ágúst 1989.
Þar kemur fram að ekki sé talið rétt
að fara að búa til nýja stétt heil-
brigðisstarfsmanna. Réttara væri
að nýta þær starfsstéttir sem fyrir
væru.
Umsögn varðandi reglugerð um
meðferð og meðhöndlun frumu-
eyðandi lyfja þann 15. september
1989 gaf félagið til Lyfjaeftirlits rík-
isins.
Félaginu berast ávallt til umsagn-
ar hin margvíslegustu mál er tengj-
ast heilbrigðisþjónustu, en ég læt
hér staðar numið.
AFMÆLIHFÍ
70 ára afmælis HFÍ var veglega
minnst þann 3. nóvember 1989 með
ráðstefnu er bar yfirskriftina
„Hjúkrun - félagslegt afl“. Rúm-
lega 300 hjúkrunarfræðingar sóttu
ráðstefnuna er tókst vel. Um
kvöldið var svo fjörugt afmælishóf
að Hótel Islandi. í tilefni afmælis-
ins var einnig móttaka fyrir vini og
velunnara félagsins þann 22. des-
ember 1989.
1. tölublað HJÚKRUNAR 1990
er sannkallað afmælisblað en þar er
afmælisins minnst á verðugan hátt.
FUNDIR OG
RÁÐSTEFNUR
Samstarfshópur hjúkrunarfræð-
inga í heilsugæslu um hjúkrunar-
greiningar er starfandi á vegum
landlæknisembættisins. Kristín
Pálsdóttir, hjúkrunarforstjóri
heilsugæslustöðvarinnar Sólvangs í
Hafnarfirði, er fulltrúi félagsins.
Hún er einnig fulltrúi félagsins í
hóp um sama efni er hjúkrunar-
fræðslustjórar hafa myndað.
HJÚKRUN %o—66. árgangur 9