Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Síða 11
* félagsmál
úar 1990. Einnig var ákveðið að
stjórnir beggja félaganna gerðu
könnun á vilja félagsmanna til sam-
einingar. Könnunin var send út
þann 20. apríl og niðurstöður hjá
HFÍ voru þær að af 1953 félögum
greiddu 1218 atkvæði eða 62,36%.
Þar af sagði 1191 já eða 97,78%. 21
sagði nei eða 1,72%. Auðir og
ógildir seðlar voru 6 eða 0,50%.
bsrb málefni
Formannafundur BSRB var
haldinn þann 5. október 1989. Fyrir
fundinum lágu margvísleg mál m.a.
húsnæðismál, dagvistunarmál,
skattamál, Evrópubandalagið o.fl.
Fulltrúar framkvæmdastjórnar og
kjarmálanefndar sóttu fundinn.
Aðalfundur fulltrúaráðs orlofs-
heimila BSRB var haldinn 20. mars
1990. Formaður sat fundinn.
Fulltrúi HFÍ í stjórn BSRB er
Hólmfríður Geirdal, sem starfar á
Geðdeild Landspítalans.
lífeyrissjóður
hjúkrunarkvenna
Stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunar-
kvenna hélt 4 fundi á árinu að
venju. Um áramótin 1989-1990
voru 149 hjúkrunarfræðingar á eft-
irlaunum og 9 nutu örorkubóta.
Á árinu 1989 voru veitt íbúðalán
Ú1 80 sjóðsfélaga að upphæð 65
milljónir og 590 þúsund krónur.
Frumlán úr sjóðnum til íbúða-
kaupa er ein milljón krónur eftir
tveggja og hálfs árs starf. Endurlán
eru einnig ein milljón og er biðtími
eftir láni tvö og hálft ár frá því að
frumlán var greitt upp.
Viðbótarlán eru 500 þúsund
krónur til 5 ára með meðalvöxtum
óanka. Viðbótarlán eru óháð frum-
jánum. Réttur til þeirra skapast eft-
lr 8 ára greiðslu í sjóðinn.
Skuldabréfakaup af Húsnæðis-
tnálastjórn og fjárfestingarsjóðum
n'kissjóðs voru samtals 130 milljónir
króna árið 1989. Lífeyrissjóði
hjúkrunarkvenna ber að kaupa
skuldabréf Húsnæðismálstjórnar
fyrir 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins,
sem gefur félagsmönnum rétt til að
sækja um lán frá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins. Sjóðurinn hefur
raunar keypt skuldabréf Húsnæðis-
málastjórnar fyrir mun hærri upp-
hæð. Fjárahagsstaða sjóðsins 3.
apríl 1990 var 38.280.222 krónur.
Stjórn sjóðsins er þannig skipuð:
Formaður HFÍ Sigþrúður Ingi-
mundardóttir, Ólafur Ólafsson
landlæknir og Lárus Ögmundsson,
lögfræðingur Ríkisendurskoðunar,
sem jafnframt er formaður sjóð-
stjórnar.
SSN ~
Formaður og varaformaður hafa
sótt stjórnarfundi SSN, sem haldnir
eru í janúar og apríl ár hvert og í
tengslum við fulltrúafund samtak-
anna.
Fulltrúafundur Samvinnu nor-
rænna hjúkrunarfræðinga, SSN,
var haldinn að Vilvorde, ráðstefn-
ustað danska hjúkrunarfélagsins,
dagana 20.-22. september 1989.
Fundarefnið var „Upplýsingatækni
í hjúkrun - verkfæri - hvatning -
ógn“.
Fundinn sátu ásamt formanni
þær Pálína Sigurjónsdóttir varafor-
maður, Hólmfríður Geirdal, Þóra
Sigurðardóttir, Erla Björk Sverris-
dóttir, Kristín Ólafsdóttir, hjúkr-
unarnemi frá Akureyri, og Ingi-
björg Elíasdóttir en hún flutti er-
indi fyrir íslands hönd um sérstöðu
íslands og íslenskra hjúkrunarfræð-
inga við beitingu tölvutækni í litlu
og fámennu landi.
Fundinum voru gerð skil í 4. tbl.
HJÚKRUNAR 1989.
Félagsgjald HFÍ til SSN eru 6
danskar krónur fyrir hvern starf-
andi félagsmann. Það var á árinu
1989 kr. 61.401.00.
ICN ~
19. alþjóðaþing ICN var haldið í
Seoul í Suður-Kóreu dagana 28.
maí - 2. júní 1989. Yfirskrift þings-
ins var „Hjúkrun framtíðinnar“.
Formaður og varaformaður sátu
þingið og formannafund ICN sem
haldinn var í tengslum við þingið.
Þinginu voru gerð ítarleg skil í 4.
tbl. HJÚKRUNAR 1989.
Vinnuhópur evrópskra hjúkrun-
arfræðinga, sem stunda hjúkrunar-
rannsóknir W E N R, samanstend-
ur af fulltrúum allra hjúkrunarfé-
laga í Evrópu sem eru aðilar að
ICN.
Fulltrúi HFI er Anna Birna Jens-
dóttir og sótti hún fund vinnuhóps-
ins á síðasta ári sem, ásamt opinni
ráðstefnu í hjúkrunarrannsóknum,
var haldinn þann 7.-8. september
1989 í Franfurt am Main í Þýska-
landi.
ÝMIS MÁL
Nefnd á vegum HFÍ um hagræð-
ingu í heilbrigðisþjónustunni hefur
starfað milli fulltrúafunda. Nefndin
hefur átt viðræður við fulltrúa Heil-
brigðis- og Fjármálaráðuneytisins.
Ákveðið hefur verið að standa að
sameiginlegri ráðstefnu um málið
næsta haust. Formaður nefndar-
innar er Sigrún Gerða Gísladóttir,
formaður Vestfjarðadeildar HFI.
Félagstjórn réði Lilju Óskars-
dóttur og Stefaníu Sigurjónsdóttur
til starfa frá 1. október til 15. des-
ember 1989 til að safna inn heimild-
um varðandi hjúkrun, en erfiðlega
hafði gengið að fá inn upplýsingar.
Nokkuð vel gekk með verkið og
ómetanlegt er að fá frá fyrstu hendi
upplýsingar um þann tíma er hjúkr-
un var að stíga sín fyrstu spor sem
starfssétt hér á íslandi.
Ingibjörg Árnadóttir lét af störf-
um um áramótin 1989-1990 sem rit-
stjóri HJÚKRUNAR, tímarits
HFÍ, eftir 20 ára farsælt starf. Lilja
Óskarsdóttir og Stefanía Sigurjóns-
dóttir hjúkrunarkennarar voru
ráðnar í stöðu ritstjóra frá og með
15. janúar 1990. Þær skipta stöð-
HJÚKRUN %o—66. árgangur 11