Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Qupperneq 13
* félagsmál
samninganefnd ríkisins vera tilbúin
til að semja við okkur um bókun
með öðru orðalagi en við höfðum
lagt fram varðandi launaþróun,
þ-e.a.s. ef launaþróun annarra yrði
önnur en samningur okkar segði til
um. Skrifað var undir nýjan kjara-
samning 7. maí. Verður hann
kynntur mjög fljótlega og atkvæða-
greiðsla varðandi hann fer fram í
framhaldi af því.
Pórdís Sigurðardóttir,
formaður kjararáðs.
ÁRSSKÝRSLA
fræðslustjóra
Námskeið: Veturinn 1989-1990
voru haldin 12 námskeið, 10 tveggja
vikna námskeið og tvö námskeið í
hagnýtri tölvufræði, 30 kennslu-
stundir hvort. Barnahjúkrun og
hjúkrun krabbameins- og alnæmis-
sjúklinga, ásamt töluvnámskeiðun-
um eru nýmæli. Námskeið í geð-
hjúkrun og rannsóknaraðferðum
féllu aftur á móti niður vegna lítillar
þátttöku. Þessi tíu hálfsmánaðar
námskeið taka alls yfir 5 mánuði.
Alls sóttu 212 hjúkrunarfræðingar
af öllu landinu námskeiðin.
Erlend viðskipti: Erlendir hjúkr-
unarfræðingar sækjast talsvert eftir
því að starfa hérlendis. Þrettán
hjúkrunarfræðingar komu og fóru á
síðastliðnu ári og þar að auki voru
þrir búnir að vera hérlendis í 1-2 ár.
I árslok 1989 voru 24 erlendir hjúkr-
unarfræðingar starfandi hérlendis.
~i sænskir, 5 danskir, 5 þýskir, 3
belgískir, 3 bandarískir og einn frá
Hollandi, Noregi og Ástralíu. Auk
þess eru hér starfandi erlendir
hjúkrunarfræðingar, sem fengið
hafa hjúkrunarleyfi og eru ekki
taldir með hér.
Þrír íslenskir hjúkrunarfræðing-
ar fóru til starfa í Danmörku á ár-
>nu. Önnur erlend hjúkrunarfélög
greiða ekki fyrir hjúkrunarfræðing-
um að fá starf.
Menntanefnd Hjúkrunarfélags
íslands: Þann 18. janúar var stofn-
uð menntanefnd félagsins. Hjúkr-
unarfræðingar, sem eru í BS námi
við námsbraut í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands, hafa lagt tals-
verða vinnu í að taka saman upplýs-
ingar um námsmat það sem gildir
fyrir hjúkrunarfræðinga inn í náms-
brautina. Hefur það mat vægast
sagt verið tilviljunarkennt. Fundur
var haldinn í janúar þar sem full-
trúar þessa hóps voru mættir með
formanni, fræðslustjóra og fleirum,
sem fjallað hafa um þessi mál.
Ákveðið var að endurvekja
menntanefnd félagsins. í henni
eiga sæti: Árný Helgadóttir, Fann-
ey Friðbjörnsdóttir, Hildigunnur
Friðjónsdóttir, Margrét Tómas-
dóttir, María Finnsdóttir sem er
formaður nefndarinnar, Sólfríður
Guðmundsdóttir og Stefanía Sigur-
jónsdóttir. Nefndin hefur þegar
haldið 8 fundi. Aðalviðfangsefnið
hefur verið að ræða niðurfellingu
námsmats inn í námsbrautina og
gera tillögur um hvaða viðbótarfög
væri eðlilegt að taka inn í námið.
Þær viðræður eru ennþá í gangi.
í öðru lagi hefur verið umræða
um uppbyggingu og skipulag fram-
halds- og endurmenntunardeildar-
innar. Hjúkrunarfélagið leggur
áherslu á að deildin verði stjórnun-
arlega, faglega og fjárhagslega
sjálfstæð með tengsl við náms-
brautarstjórn til BS náms. Einnig
að deildin hafi ákveðið húsnæði til
afnota. Hér er um mikilvægan þátt
að ræða „því lengi býr að fyrstu
gerð“. Við vonum að Hjúkrunarfé-
lagi íslands takist að beina fram-
halds- og endurmenntunardeild
hjúkrunarfræðinga inn á þá braut
sem leiði til heilla fyrir alla hjúkr-
unarfræðinga í framtíðinni.
María Finnsdóttir.
HJÚKR UN - TÍMARIT HFÍ
Útgáfustarfsemi ársins 1989 hófst í
janúar með útkomu FRÉTTA-
BLAÐS 44.
HJÚKRUN 1. tölublað kom út í
mars sl.
FRÉTTABLAÐ 45 kom út í júní.
HJÚKRUN 2.-3. tölublað sá dags-
ins ljós í september og 4. tölublað
HJUKRUNAR kom út í desem-
ber.
Síðasta blað ársins var stærra í
sniðum en önnur blöð. Til þess lágu
margar ástæður og eindregnar ósk-
ir um efni til birtingar.
Ritstjórn skipuðu: Ása St. Atla-
dóttir,
Sigríður Skúladóttir og
Rannveig Sigurbjörnsdóttir.
Mér hefur veist sú ánægja að rit-
stýra þessu blaði í 20 ár. Á þessum
tímamótum er mér efst í huga
þakklæti fyrir gefandi og ánægju-
legt starf.
Ingibjörg Árnadóttir.
SKRIFSTOFA HFÍ
Á skrifstofu félagsins starfar for-
maður, skrifstofustjóri og fræðslu-
stjóri í fullu starfi, skrifstofumaður
í 80% starfi og tveir ritstjórar sem
skipta með sér 80% starfi og vinna
hvor um sig 40% starf fyrir
HJÚKRUN, tímarit HFÍ. Ritstjór-
arnir, Stefanía Sigurjónsdóttir og
Lilja Una Óskarsdóttir, voru ráðn-
ar til starfa frá 15. janúar 1990 en
Ingibjörg Árnadóttir, fyrrverandi
ritstjóri, lét af störfum samkvæmt
eigin ósk í árslok 1989.
Skrifstofustörfin taka ekki mikl-
um stökkbreytingum frá ári til árs.
Þar er um að ræða fyrirgreiðslu við
félagsmenn, upplýsingaþjónustu
og almenn skrifstofustörf, bók-
hald, vélritun og skjalavörslu. Um-
sjón er með fundarsal, kaffistofu og
vinna í sambandi við sumarhús fé-
lagsins og orlofsíbúðina hér í hús-
inu er mjög mikil, þótt vinna við
sumarhúsin sé vitanlega árstíða-
bundin og sé mest á vorin.
Margur dagurinn hefst við sím-
ann og lýkur þar, en bunkinn sem
átti að vinna við yfir daginn, fer
HJÚKRUN Vío—66. árgangur 13