Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Page 20
um er kunnugt hefur dr. Anna Ed-
ström kennt hér á þjálfunarnám-
skeiðum Aromatherapy, þ.e. með-
ferð með ýmsum ilmolíum, sem
unnar eru úr jurtum, og Reflex
Therapy sem kallað hefur verið
þrýstinudd.
Mér til mikillar undrunar og
gleði var mér boðið að fylgjast með
því sem þar fór fram. Námskeiðin
þóttu dýr og því miður bar lítið á
fulltrúum úr heibrigðisstéttum.
Dr. Anna Edström er ein þeirra
15 lánsömu sem fá inngöngu í þessa
nýju háskólanámsbraut. Eg spurði
hana hvers vegna hún vildi fara í
þetta nám, þar sem hún hefði mikla
þekkingu og kunnáttu á þessu sviði
og væri auk þess með doktorsgráðu
frá háskólanum í Uppsölum. Hún
svaraði því til að hún væri með
gráðu í lífefnafræði en hefði áhuga
á að læra meira í þessum fræðum,
sem ganga í háskólanum þar undir
nafninu Complementary Medicine
(viðbótarlæknisfræði).
Ég met mikils að hafa komist í
kynni við þessa mikilhæfu og hríf-
andi konu og að fræðast af henni er
í senn áhugavert og skemmtilegt.
Enda skil ég mætavel að áhugasam-
ir umsækjendur skuli vera mýmarg-
ir í þetta nýja háskólanám. Vildi
raunar að mér hefði staðið til boða
að læra þessa fræðigrein á nemaár-
unum. Nú læt ég mér nægja drauma
um að aðrir fái svona kennsluefni í
sínu hjúkrunarnámi eða ef þess ger-
ist ekki kostur þá í endurmennt-
unarnámi fyrir hjúkrunarfræðinga.
En hér eru flestir á varðbergi
gegn hugsanlegum blekkingum,
bera fullt traust til okkar ágætu
lækna, hjúkraunarfræðinga og ann-
arra aðila í heilbrigðisþjónustunni
og láta sér það nægja. Énglending-
ar o.fl. eru síður gagnrýnir á þessar
aðferðir og vita að þær geta oft og
tíðum stuðlað að betri líðan heil-
brigðra og sjúkra og eru ekki var-
hugaverðar séu þær í höndum trú-
verðugra kunnáttumanna.
í bókinni Aromatherapy for
Everyone eftir Rober Tisserand
segir að þess konar nudd sé notað á
sumum spítölum í Englandi að
nokkru leyti í stað svefnlyfja, til að
Dr. Anna Edström.
draga úr vöðvaspennu jafnvel
verkjum, lækka háan blóðþrýsting
og betrumbæta líðan. Á Compton
sjúkrahúsinu í Wolverhampton fá
krabbameinssjúklingar nudd með
ilmolíum. Hjúkrunarforstjórinn
kveður þetta mjúklega nudd hjálpa
sjúklingum til að ná betri slökun og
dregur það úr andlegri og líkam-
legri vanlíðan. Tengslin við hjúkr-
unarfræðingana verða nánari og þá
eiga skjólstæðingarnir auðveldara
með að segja hug sinn. Sjúklingar
með bein- eða vöðvaverki hafa að
sögn haft mjög gott af þessari nudd-
meðferð, sem auðveldar þeim
hreyfingar. Dr. Peter Nixon,
hjartasérfræðingur á Charing Cross
sjúkrahúsinu, hefur innleitt þetta
sérstæða nudd sem þátt í meðferð á
hjartasjúklingum til að draga úr
streitu. í Frakklandi eru a.m.k.
fjórar stofnanir þar sem læknar
geta lært aromatherapy og árið
1988 voru læknarnir um 1500 sem
skrifuðu líka jurtailmolíur á lyf-
seðla.
Við St. Thomas sjúkrahúsið í
London stóð til boða í september
1989 námskeið fyrir 16 hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraliða starfandi á
þremur bráðadeildum aldraðra, á
vegum London College of Massage
and Shiatsu (nudd með þrýsting á
orkustöðvum). Hjúkrunarfræðing-
ar víða á Englandi hafa sýnt fram á
hvað svona nudd er mikils virði
fyrir sjúklingana, segir í tímaritinu
Nursing Times. En á námskeiðum
hefur komið í ljós að margir hjúkr-
20 HJÚKRUN 2/m—66. árgangur