Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Blaðsíða 26
UPPLÝSINGAR UM LÁNVEITING-
AR ÚR LÍFEYRISSJÓÐI HJÚKRUN-
ARKVENNA
A-lán (langtímalán)
Hverjir eiga rétt á A-láni?
Greiöandi sjóösfélagar eiga rétt á A-láni úr
lífeyrissjóðnum, er þeir hafa greitt iögjöld til
sjóðsins í tvö og hálft ár, miðað við fullt starf
eftir að námi lýkur. Jafnframt er metinn sá tími,
sem greitt hefur verið í Lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins.
Hver sjóðsfélagi, sem greitt hefur í Lífeyris-
sjóð hjúkrunarkvennaaf fullu starfi Í10ár, hefur
lánsrétt þó að hann sé ekki lengur greiðandi í
sjóðinn.
Lífeyrisþegar njóta sama lánsréttar og aðrir
sjóðsfélagar.
Hver sá sjóðsfélagi, sem greitt hefur upp
eldra lífeyrissjóðslán sitt, á rétt á fullu láni að
nýju, þegar liðin eru tvö og hálft ár frá upp-
greiðslu, hafi hann greitt iðgjöld til sjóðsins á
sama tíma eða hafi tíu ára iðgjaldagreiðslu að
baki.
Lánsupphæð og lánskjör
Hámark lánsfjárhæðar er nú kr.
1.000.000,00. Lánin eru veitt til 25 ára og eru
vextir af nýjum lánum nú 5,5% á ári. Lánin eru
með fullri verðtryggingu skv. lánskjaravísitölu
og heimild til breytinga á vöxtum á lánstímabil-
inu.
Nýjung - B-lán (skammtímalán)
Hverjir eiga rétt á B-láni?
Greiðandi sjóðsfélagar eiga rétt á B-láni hafi
þeir greitt iðgjöld til sjóðsins í 8 ár eða lengur.
Hafi umsækjandi greitt iðgjöld í aðra lífeyris-
sjóði, er sá ekki metinn til lánsréttar þegar um
B-lán er að ræða.
Hver sjóðsfélagi, sem greitt hefur í Lífeyris-
sjóð hjúkrunarkvenna af fullu starfi í 10 ár, hefur
lánsrétt þó að hann sé ekki lengur greiðandi í
sjóðinn.
Lífeyrisþegar njóta sama lánsréttar og aðrir
sjóðsfélagar.
Lánsupphæð og lánskjör
Hámark lánsfjárhæðar er nú kr. 500.000,00.
Lánin eru veitt til 5 ára og miðast vextir við
vegið meðaltal vaxta lánastofnana skv. auglýs-
ingu Seðlabankans hverju sinni. Lánin eru með
fullri verðtryggingu skv. lánskjaravísitölu.
A-Ián og B-Ián
Veðtrygging
Lán eru veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði.
Leyfð eru önnur lán á undan láni frá Lífeyris-
sjóðnum, en hvorki fjárnám né lögtak. Þó mega
önnur lán og lán frá Lífeyrissjóðnum samanlagt
aldreifarafram úr70% af fasteignamati eignar-
innar né 65% af brunabótamati.
Hús í smíðum telst veðhæft sé lagt fram fok-
heldisvottorð og brunatryggingarvottorð, sem
ber með sér hvert sannvirði hússins sé, enda
sé það staðfest með sérstakri áritun. Að öðrum
kosti má láta framkvæma sérstakt mat á eign-
inni. Sjóðstjórn má hverju sinni láta matsmann
sinn meta fasteign, telji hún sérstaka ástæðu til
þess. Ef stjórnin telur þörf á frekari upplýsing-
um um fasteign, er henni jafnframt heimilt að
krefjast fyllri gagna, áður en til lánveitingar
kemur.
Lánsumsókn og afgreiðsluháttur
Lánsumsókn skal vera skrifleg. Um það bil
hálfum mánuði áður en lánið er afgreitt skal
umsækjandi skila veðbókarvottorði um þá
eign, sem veðsetja skal. Jafnframt skal fylgja
vottorð um fasteignamat og brunabótamat, sé
eign ekki metin sérstaklega.
Umsækjandi skal upplýsa hverjar séu eftir-
stöðvar veðlána, ef slík lán eru áhvílandi á
eigninni. í því sambandi nægir t.d. að sýna
nýjustu afborgunarkvittanir eða greiðslutil-
kynningar frá viðkomandi stofnun.
Afgreiðslufrestur lífeyrissjóðslána er þrír
mánuðir frá því að umsókn berst til sjóðsins.
Mikilvægt er að lánsumsóknir séu skýrar og
greinagóðar og veiti fullnægjandi upplýsingar
um umsækjanda, svo sem fullt nafn, heimilis-
fang, nafnnúmer og kennitölu.
Uppgreiðsla
Lánþegi má greiða lán sitt upp hvenær sem
er á lánstímabilinu, ef hann óskar þess.
AÐSETURSSKIPTI
Félagsmenn og áskrifendur „Hjúkrunar"
vinsamlegast tilkynnið aðsetursskipti til Hjúkr-
unarfélags íslands, Suðurlandsbraut 22, 108
Reykjavík, sími 68 75 75.
KVENNABREKKA
Kvennabrekka, orlofshús HFÍ í Mosfellsbæ,
verður leigt í vetur til lengri eða skemmri tíma í
senn.
Skrifstofa HFÍ, sími 68 75 75.
26 HJÚKRUN 3Aj—66. árgangur