Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Síða 35
* fréttir
Geðdeild Landspítalans
Fyrirhugað er að starfsþjálfun
fyrir hjúkrunarfræðinga hefjist
næsta haust
Markmiðið með starfsþjálfun er
að laða hjúkrunarfræðinga til starfa
og auka starfsánægju. Lengd þjálf-
unarinnar er áætluð 12 mánuðir.
Akveðið hefur verið að hver
hjúkrunarfræðingur fái ráðgjöf
reyndra hjúkrunarfræðinga allt
tímabilið, jafnframt einn lesdag í
viku sem verður skipulagður þann-
ig:
Nýr hjúkrunarforstjóri
Landakotsspítala
Þann 1. maí síðastliðinn tók
Þakel Valdimarsdóttir við stöðu
kjú krunarfo rstj ó ra
kandakotsspítala af Guðrúnu
Marteinsson. í starfsmannablaði
Landakots segir hún m.a.:
„Eg lít björtum augum til sam-
starfs og samvinnu við alla sem
iongjast starfi sjúkrahússins. Vegna
skorts á fjármagni erum við knúin
hl að auka enn hagkvæmni í rekstri,
er> á sama tíma er okkur skylt að
halda uppi góðri þjónustu í sam-
ræmi við kröfur nútímaþjóðfélags.
Stöðug endurskoðun og endur-
skipulagning á starfsemi innan
deilda sem utan er nauðsynleg.
Einnig er þörf á að bæta aðbúnað
starfsfólks, svo sem uppbyggingu
fræðilegra þátta, starfsaðstöðu og
húningsaðstöðu.
Þekking og umhyggja verður að
Vera til staðar í því umhverfi sem
v'ð vinnum í. Ef starfsfólki sjúkra-
hússins líður vel í starfi og fær að
þróa og nýta þekkingu sína, má
ætla að það leiði til betri þjónustu
v'ð viðskiptavini sjúkrahússins,
þ-e- sjúklingana. Þjónusta við
sJúklinga er og verður okkar aðal-
v>ðfangsefni.“
Rakel Valdimarsdóttir.
í hjúkrunarstjórn Landakotsspít-
ala hafa nýlega verið ráðnir hjúkr-
unarframkvæmdastjórar sem eru:
Auður Ragnarsdóttir, 30% barna-
deild; Björg Snorradóttir, 80%
handlækningadeild og móttöku-
deild; Edda Hjaltested, 80%
skurðstofa, svæfing, speglunar-
deild/meðferð krabbameinssjúkl-
inga og Hafnarbúðir; Sigríður Ól-
afsdóttir, 80% lyflækningadeild,
gjörgæsludeild og hjartalínuriti og
Sigurborg Sigurjónsdóttir, 30%
augndeild og augnskoðun.
2 kennslustundir fyrirlestrar,
2 kennslustundir umræður og
ráðgjöf,
4 kennslustundir lestími.
Áætlað er að starfsmat verði í
gangi allt starfsþjálfunartímabilið.
Einnig er ætlast til þess að hjúkrun-
arfræðingar skili sérstakri greinar-
gerð eftir dvöl sína á hverri deild.
Þjálfunin hefst með fræðslu í eina
til tvær vikur þar sem m.a. stofnun-
in verður kynnt, skipulag hennar
og starfsemi. Meðal kennsluþátta,
sem ákveðnir hafa verið, eru:
1. Saga geðhjúkrunar
a) geðvernd.
2. Innlögn á stofnun.
3. Sjúklingur og samfélagið (rétt-
ur og réttarstaða).
4. Sjúklingurinn og fjölskyldan.
5. Geðsjúkdómar.
6. Hjúkrunargreiningar, með-
ferðaráætlanir og endurhæf-
ing.
7. Samstarf og tengslamyndun.
8. Starf hjúkrunarfræðinga utan
sjúkrahúsa.
9. Geðhjúkrun (nýjar stefnur).
10. Gæðaeftirlit.
11. Hjúkrunarrannsóknir.
12. Ýmis námskeið
a) Boðleiðagreining
b) Hópefli "
c) Samskipti barna og fullorð-
inna
d) Fjölskyldumeðferð.
Nánari upplýsingar gefa:
Hjúkrunarforstjóri og hjúkrunar-
fræðslustjóri.
HJÚKRUN Vk—66. árgangur 35