Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Side 36
* fréttir
Ólafur Ólafsson, landlæknir:
Líknardauði/líknardráp
Nokkrar umrœður um
líknardauða/líknardráp hafa farið
fram að undanförnu trúlega vegna
þess að líffæraflutningar gerast nú
tíðari. Líkt og oft áður erum við
seinni til en nágrannaþjóðir okkar,
en þar hófst umrœða um þessi mál
fyrir 10-15 árum, trúlega vegna
betri tœknilegra möguleika til
líffœraflutninga.
í aldir hafa þessi mál verið rædd
meðal lækna. T.d. má minna á að í
herlæknisfræðinni var og er lækn-
um og hjúkrunarfólki kennt að í
fyrstu yfirferð á vígvellinum eftir
orrustu sé rétt að sinna frekar særð-
um hermönnum sem eiga sér lífs-
von en þeim sem eru helsærðir.
Þetta er einnig ríkjandi stefna í nú-
tíma stórslysalæknisfræði. Það hef-
ur tíðkast á sjúkrahúsum að hætta
meðferð eða jafnvel að hefja ekki
meðferð þegar engin von er um líf.
Dæmi: Alhliða næringarmeðferð
er hætt, sjúklingar teknir úr önd-
urnarvélum eða sjúklingur ekki
settur í nýrnasíu.
Þetta eru erfiðustu ákvarðanir
sem læknir tekur á lífsleiðinni enda
undantekningalaust teknar eftir ít-
arlega athugun og meðal annars hin
síðustu ár eftir nána athugun á
heilastarfsemi viðkomandi sjúkl-
ings. Nú er með fullri vissu unnt að
ganga úr skugga um hvort um heila-
dauða er að ræða eða ekki. Þar af
leiðandi er ekki réttmætt að kalla
þann verknað líknardráp, þó að
öndunarvél sé stöðvuð í þessu til-
felli.
Heiladauður maður er horfinn
héðan. Á íslenskum sjúkrahúsum
er ætíð leitast við að eiga náið sam-
ráð við nánustu ættingja um fram-
angreindar aðgerðir eða aðgerða-
leysi, en stundum er það ekki unnt,
t.d. ef sjúklingur er einstæðingur.
Jafnframt hafa læknar samráð sín á
milli svo og við hjúkrunarfólk. Ef
ljóst er að engin lífsvon er og með-
ferð er hætt eða ekki hafin deyr
sjúklingur líknardauða. Það er vei í
ætt við upprunalega þýðingu orðs-
ins Euthanasia eu= góður, hægur,
thanatos = dauði, þ.e. „hinn góði
dauði“. Aðrar þjóðir nefna þessa
aðgerð gjarnan dauðahjálp (t.d.
dödshjalp á sænsku). Samkvæmt
merkingu orðsins er læknum skylt
að sýna sjúklingi umhyggju, hlýju
og leitast við að lina þjáningar hans
eftir fremsta megni og gera honum
dauðastríðið sem léttbærast. Þessi
athöfn á því lítið skylt við dráp í
mínum huga, þó að sumir lögfræð-
ingar séu ekki sammála mér. Ég
trúi því að sú aðgerð, ef rétt er að
verki staðið, sé gerð með samþykki
almennings og að kristnir siðfræð-
ingar viðurkenni réttmæti hennar.
Á síðustu tímum hafa sumir vilj-
að leggja aðra merkingu í þetta orð,
þ.e. að lækni sé skylt og rétt að
stytta líf deyjandi manns sem þjáist
af kvalafullum sjúkdómi.
Ef læknar valda dauða sjúklings
með lyfjum eða aðgerð, þ.e. deyða
sjúkling í líknarskyni eða aðstoða
við sjálfsmorð, fellur sá verknaður
undir líknardráp, enda varðar það
við lög og er refsivert. Hugsanlega
má finna einhverjar málsbætur í því
tilviki, sbr. 213. gr. hegningarlaga.
Seint trúi ég að lög á Vesturlöndum
muni leyfa slíkan verknað. Eftir að
eyðnifarsóttin reið yfir hafa hol-
lenskir læknar gripið til þessa ráðs
fyrir þrábeiðni sumra sjúklinga.
Enn sem komið er hafa hollensk
heilbrigðisyfirvöld látið þessar að-
gerðir afskiptalausar en málið er í
athugun að sögn hollenska land-
læknisins.
I umræðu sem þessari koma upp
mörg tilvik sem e.t.v. geta flækt
málið. Sumir hafa jafnvel haldið
því fram að ef læknir getur ekki
útvegað sjúklingi með ónýtt lífs-
nauðsynlegt líffæri heilbrigt líffæri
jafngildi það líknardrápi! Vissulega
Framhald bls. 39
Fræðslustarf Hjúkrunarfélags íslands
Eftirfarandi námskeið verða haldin á vegum Hjúkrunarfélags ís-
lands á vetri komanda:
Haustönn 1990:
I. -12. október: Stjórnun II
22. október - 2. nóvember: Rannsóknaraðferðir
5. -16. nóvember: Hjúkrun aldraðra
19.-30. nóvember: Stjórnun I
Vorönn 1991:
21. janúar -1. febrúar: Handlæknis-, lyflæknis- og gjörgæsluhjúkrun
II. -22. febrúar: Kennslufræði
25. febrúar - 8. mars: Hjúkrun krabbameins- og alnæmissjúklinga
Stjórnun II11. - 22. mars.
8. -19. apríl: Samtalstækni og ráðgjöf
22. - 24. apríl: Almenn hjúkrunarfræði
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Hjúkrunarfélags íslands og eru
sendar þeim er þess óska.
Allir hjúkrunarfræðingar eru velkomnir á námskeiðin.
36 HJÚKRUN -/w—66. árgangur