Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Qupperneq 43
byggt upp af þrem bóklegum önn-
um, haustönn, vorönn og sumar-
önn. Fyrstu tvær annirnar voru
kenndar fjórar meginnámsgreinar
en á vorönn tvær. Eftir haustönn
var tveggja vikna verklegt tímabil,
þá var farið í heimsókn í eitthvert af
13 heilbrigðisumdæmum Skotlands
°g fylgst með störfum stjórnenda í
hjúkrun. Þá áttum við að greina
vandamál sem upp komu hjá
stjórnendunum og meta hvort okk-
ur þætti rétt unnið úr þeim. Nem-
endur fengu að velja sér umdæmi.
Mig langaði að fara út fyrir Edin-
borg 0g dvaldi því á vesturströnd
Skotlands. Annað verklegt tímabil
var eftir sumarönn. Þá áttum við að
kynna okkur fjárhagsrekstur í
skoska heilbrigðiskerfinu. Ég
samdi við námsstjórann minn um
uö fá að breyta út af vananum og
kynna mér stjórnun starfsmanna-
^uála og hann fékk námspláss fyrir
uug í Englandi. Milli vor- og sumar-
unnar var 4 vikna kennslufrí, sem
notað var til ritstarfa og til að undir-
búa vorprófin. Vorpróf voru úr öll-
um námsgreinum nema einni sem
Prófað var úr eftir jól. Mastersrit-
gerðin var skrifuð á sumarmánuð-
Unum fjórum. Ekki voru gerðar
kröfur um að nemendur gerðu
rannsókn. Ritgerðina áttu nem-
endur að byggja á umfjöllun um
beimildir um ákveðið efni sem val-
'ö var í samráði við námsstjórann.
Hluti af ritgerðinni var einnig rann-
sóknaráætlun.
Hvaða fög voru kennd?
Námið skiptist í fjórar megin-
námsgreinar; stjórnun heilbrigðis-
^ála, stjórnun starfsmannamála,
rannsóknir og heilbrigðisfræðslu
eða hjúkrun og félagslegar breyt-
'ugar. En val var milli þessara
tVeggja námsgreina og valdi ég þá
síðarnefndu. Innan hverrar megin
uamsgreinar voru mismunandi
^urgar aðrar námsgreinar. í stjórn-
Un heilbrigðismála voru t.d. náms-
§reinar eins og heilsuhagfræði,
a‘etlanagerð, stjórnun heilbrigðis-
s:' nám erlendis
mála, sem var lang viðamesta
námsgreinin, og þróun hjúkrunar. í
stjórnun starfsmannamála voru
kenndar námsgreinar eins og at-
vinnusálarfræði, starfsmanna-
stjórnun og þróun verkalýðsmála,
en samskipti við verkalýðsfélög er
stór þáttur í starfi stjórnenda innan
breska heilbrigðiskerfisins. Nú, í
rannsóknum var farið í rannsókna-
aðferðir og tölfræði og í hjúkrun og
félagslegum breytingum var fjallað
um áhrif félagsfræðinnar á hjúkr-
un, félagsfræðilegar kenningar
voru skoðaðar og hvernig mætti
nota þær til að koma á breytingum
innan hjúkrunar.
Hvernig fór námsmat fram?
Námsmat var í formi verkefna
sem voru nær eingöngu einstakl-
ingsverkefni, ritgerðir, framsögur
og umræðufundir. Eina hópverk-
efnið var smá könnun í rannsóknar-
kúrsinum. Próf voru í lok hverrar
annar og svo lokapróf í maí. Ann-
arpróf giltu ekki til lokaeinkunnar,
en verkefni námu 30% af lokaeink-
unn. Eftir lokapróf var þeim nem-
endum, er náðu 6 í heildareinkunn,
boðið að skrifa mastersritgerð.
Mikil spenna ríkti innan hópsins
þá viku, sem leið frá síðasta prófi,
þar til einkunnir voru kynntar.
Einn nemandi náði ekki tilskilinni
einkunn og fékk prófgráðuna Di-
ploma í hjúkrunarstjórnun. Aðrir
nemendur fengu kærkomið bréf frá
forseta félagsvísindadeildar.
Fannst þér námið erfítt?
Já, mér fannst námið erfitt.
Kennsla á haust- og vorönn var
mjög stíf og mér fannst aldrei næg-
ur tími til að sinna lestri. Ennfrem-
ur voru verkefni mjög veigamikil
og tíð sérlega á vorönn, mér fannst
ég lítið annað gera á þeirri önn en
vinna að þeim. Námsstjórinn gerði
okkur mjög snemma grein fyrir því
að ef við ætluðum að ná árangri þá
dygði ekkert annað en að vinna.
Hann hafði fyrst nokkrar áhyggj-
ur af mér vegna skyldna minna við
fjölskylduna. En það sýndi sig að
fjölskyldan bjargaði mér alveg, t.d.
tölvusetti sonur minn margar rit-
gerðirnar mínar og aðrir fjölskyldu-
meðlimir hugsuðu um heimilið. Án
þeirra hefði þetta verið óyfirstígan-
legt.
Hvaða prófgráðu fékkst þú að
námi loknu?
Ég fékk Msc gráðu í hjúkrunar-
stjórnun.
Breytti námið faglegri sjálfs-
mynd þinni?
Já, ég tel að svo hafi verið. Það er
mjög þroskandi að stunda nám á
æðra skólastigi. Maður þarf að geta
fært rök fyrir máli sínu og skoðun-
um það eykur sjálfstæði manns.
Þarna var hjúkrun hafin til virð-
ingar.
Við fengum mikla hvatningu í
náminu til að hefja hjúkrunarstarf-
ið til vegs, lögð var áhersla á já-
kvæða umræðu um hjúkrun, nem-
endur voru hvattir til að taka fag-
lega á ágreiningsmálum, sem upp
kynnu að koma í starfi, og mikil-
vægi stjórnunarþáttarins innan
hjúkrunar var mjög haldið á lofti.
Ennfremur hvatti námsstjórinn
okkur mjög til að gæta þess að
staðna ekki heldur halda áfram fag-
legri þróun alla tíð.
Nýtist námið þér í starfí þínu
núna?
Já, tvímælalaust. Námið nýtist
mér mjög vel í því starfi sem ég
stunda nú, t.d. vaknaði mikill áhugi
hjá mér á starfsmannastjórnun.
Hefur þessi menntun (prófgráða)
haft áhrif á launin?
Já, hún hefur tveggja launa-
flokka hækkun í för með sér.
Hvernig fannst fjölskyldunni að
koma heim aftur?
Fjölskylda mín var mjög ánægð
að koma aftur heim. Aftur á móti
átti ég sjálf í ákveðnum erfiðleik-
um. Það voru talsverð viðbrigði að
koma úr hinu akademíska um-
hverfi í gamla starfið sitt og senni-
lega hafa væntingar mínar til starfs-
ins ekki verið alveg raunhæfar.
Ég er sérlega þakklát fjölskyldu
HJÚKRUN 66. árgangur 43