Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Síða 44
* nám erlendis
minni og vinnuveitanda fyrir að
gefa mér tækifæri til að sækja þetta
nám.
Við háskólann í Edinborg er
boðið upp á MSc gráðu í kennslu-
fræði, ennfremur eru sérstök nám-
skeið til MSc gráðu fyrir hjúkrunar-
fræðinga með kennarapróf (MSc in
Advanced Nursing Science). Það
má líka koma fram hér að háskólar
í Englandi eru að byrja með náms-
leiðir til MSc gráðu í klínískri
hjúkrun, sem væri mjög spennandi
fyrir áhugasama hjúkrunarfræð-
inga að kynna sér.
ANNA BIRNA
Hvernig datt þér í hug að fara í
nám erlendis?
Á námsárum mínum í Hjúkrun-
arskóla íslands 1978-1981 kom fljót-
lega fram hugmyndin um að stefna
að framhaldsnámi í hjúkrun. Lögð
var rík áhersla á gildi þekkingar hjá
kennurum skólans, nauðsyn þess
og skyldur hjúkrunarfræðinga að
ætíð þyrftu þeir að viðhalda þekk-
ingu sinni. Mér varð því snemma
ljóst að námið í HSI var undir-
stöðuþekking í hjúkrunarfræði og
til þess að geta unnið með hjúkrun-
arfræðina og geta haft áhrif á þróun
hennar, bæri að stefna á framhalds-
nám.
Var það ekki síst varðandi rann-
sóknarvinnu og stjórnun í hjúkrun
sem hugurinn stefndi. í kringum
1983-1984 er ég var búin að starfa
við hjúkrun frá útskrift var ljóst að
maðurinn minn þurfti að ljúka sínu
námi erlendis. Hófst þá leitin að
landi og skólum, sem henta myndi
okkur báðum. Rætt var um að
halda annað hvort vestur um haf, til
Evrópu eða Norðurlanda. Höfðum
við heyrt að vel væri búið að náms-
mönnum með fjölskyldu, en við
áttum tvo unga drengi, á Norður-
löndum, sérstaklega í Danmörku.
Sigurlín Gunnarsdóttir, þáverandi
hjúkrunarforstjóri Borgarspíta-
lans, hafði verið við nám við Dan-
marks Sygeplejerskehöjskolen ved
Aarhus Universitet í Árósum í
Danmörku. Leitaði ég til hennar
varðandi upplýsingar, sem lofuðu
spennandi námi. Eins þekktu fyrr-
verandi kennarar mínir úr HSI til
skólans og fór af honum gott orð. í
Árósum var einnig góður skóli fyrir
manninn minn, þannig að ákvörð-
unin um að stefna á Danmörku var
létt og hentaði okkur báðum vel.
Hafist var handa við að skrifa út og
afla upplýsinga allt að 2 árum áður
en námið hófst. Upplýsingar þurfti
um inntökuskilyrði, námslýsingar,
námslengd o.s.frv.
Jafnframt leituðum við upplýs-
inga um aðbúnað fyrir námsmenn
og börn þeirra, þ.e. upplýsinga um
húsnæði hjá námsmönnum sem
dvalið höfðu nýlega í Danmörku.
Fjölskyldan sá fram á skemmti-
legan tíma við undirbúning og
framkvæmd. Bréflega sóttum við
um íbúð hjá íbúðaleigufélagi með 1
og hálfs árs fyrirvara og fengum
góða 4 herbergja íbúð úthlutað
hálfu ári áður en við fluttum. Við
vorum því ekki á stúdentagörðum
eins og margir námsmenn, heldur á
almennum markaði. Einnig sóttum
við um barnaheimilispláss fyrir
börnin tvö en fengum ekki svar fyrr
en að við vorum flutt út og stóðum í
smá stappi fram á síðasta dag þegar
námið skyldi hefjast. En það fór vel
og börnin voru á góðu og velreknu
barnaheimili þau tæp tvö og hálft ár
sem við bjuggum í Árósum. Árið
áður en við fluttum fór fjölskyldan í
sumarleyfi til Danmerkur. Við ætl-
uðum að líta á aðstæður og fara yfir
til Jótlands en það varð nú reyndar
aldrei af því vegna hitabylgju á Sjá-
landi og flatmöguðum við á strönd-
inni allan tímann. Börnin áttu góð-
ar minningar úr þeirri ferð og því
full tilhlökkunar þegar kom að bú-
ferlaflutningi árið á eftir.
Inntökuskilyrði í DSH voru mis-
munandi eftir því hvaða línu maður
valdi. Eg valdi hjúkrunarstjórnun á
sjúkrahúsum og varð ég að uppfylla
eftirfarandi kröfur:
- Að vera handhafi dansks hjúkr-
unarleyfis sbr. lög um hjúkrunar-
fræðinga í Danmörku.
- Að hafa starfað við hjúkrun í
minnst 3 ár og hafa reynslu frá
minnst tveimur deildum.
- Að hafa reynslu innan ákveðins
sérsviðs og hafa verið í fullu starfi
a.m.k. 2 ár. Annað af þessum
tveimur árum varð að vera innan
síðustu 3ja ára.
- Hafa unnið innan sl. 3ja ára á
almennri sjúkradeild þar sem
möguleiki var að veita heildræna
hjúkrun í lengri tíma bæði sjúkling-
um og aðstandendum.
Ofangreint varð að vera vottfest
frá vinnuveitenda og varð að senda
skriflega með umsókninni. Til þess
að fá danskt hjúkrunarleyfi þurfti
að vottfesta góða þekkingu í
dönsku. Nægjanlegt var að hafa
stúdentspróf í dönsku og senda
vottorð um það. Það tók nokkra
mánuði að fá leyfið og fékk ég það
ekki fyrr en ég var skráð inn í landið
og komin með danskt heimilisfang.
Einnig voru sértæk skilyrði sem
litið væri á sem kost að hafa:
- Að hafa unnið á öllum vöktum.
- Að hafa unnið að ábyrgðar-
verkefnum, s.s samhæfingu,
kennslu, leiðbeiningu og verið hóp-
stjóri, aðstoðardeildarstjóri eða
deildarstjóri í a.m.k. 6 mánuði.
Góð enskukunnátta var einnig
áskilin.
Eg rétt marði að uppfylla ofan-
greindar kröfur vegna þess hve
stutt var síðan ég útskrifaðist og var
yngsti nemandinn í skólanum fyrsta
árið. Þegar ég fékk svarbréf um að
umsóknin mín hefði verið sam-
þykkt, fékk ég sendan lista yfir les-
efni, sem ég átti að vera búin að
kynna mér áður en nám hæfist. Þar
á meðal voru síðustu þrír árgangar
af danska hjúkrunartímaritinu
„Sygeplejersken“ sem er gefið út
vikulega. Ekki hafði ég nú lesið það
blað mikið, en var svo lánsöm að
44 HJÚKRUN 2/»—66. árgangur