Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 15.05.1990, Blaðsíða 46
Leiðréttingar:
í 4. tölublaði HJÚKRUNAR
1989 eru nokkrar villur, sem leið-
réttast hér með.
í grein Helgu Sigurðardóttur,
„Hjúkrunarstjórnendur og samfé-
lagið“, á bls. 16, stendur að 20% af
rekstrarkostnaði sjúkrahúsa sé
launakostnaður. Þar á að standa
70%.
í grein Sigurbjargar Björgvins-
dóttur og Stefaníu G. Snorradótt-
ur, „Hjúkrun og meðferð sjúklinga
með bráða kransæðastíflu“, á bls.
9-10 var „Vinstri hjartabilun og lost
(cardiogenic shock)“ birt í misgrip-
um undir kaflanum „Eftirmeðferð
eftir bráða kransæðastíflu" en til-
heyrir kaflanum „Fylgikvillar eftir
bráða kransæðastíflu og meðferð
þeirra“.
í viðtali við Ingibjörgu Árnadótt-
ur, fráfarandi ritstjóra, á bls. 83
misrituðust ártöl. Þar var verið að
ræða tilkomu námsbrautar í hjúkr-
unarfræði við Háskóla íslands. Þar
segir: „Fyrsta opinbera kynningin
hér heima var á félagsfundi HFI í
Domus Medica fundarsalnum. Frá
þeim fundi er skýrt í 4. tölublaði
HJÚKRUNAR 1983.“ Þarna á að
standa 1973. Á sömu síðu stendur:
„Einnig leysti Stefanía Sigurjóns-
dóttir mig af í níu mánuði, frá sept-
ember 1987 til maíloka 1989.“
Þarna á að standa til maíloka 1988.“
Nöfn þeirra Arndísar Finnsson og
Hrafnhildar Baldursdóttur féllu
niður í umfjöllun um ritstjórnarað-
ila.
í frásögn af 70 ára afmæli HFÍ, á
bls. 84, er sagt að forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, hafi veitt
viðtöku viðurkenningu fyrir störf
móður sinnar. í raun veitti hún við-
töku vinargjöf úr hendi formanns
fyrir hönd HFÍ og sömuleiðis fékk
heilbrigðisráðherra, Guðmundur
Bjarnason, vinargjöf en var ekki
heiðraður.
Nafnavíxl. Nöfn víxluðust undir
myndum í greininni „Fordómar í
garð geðsjúkra - getum við eytt
þeim?“ á bls. 51.
í miðopnu var leiðrétting frá
námsbraut í hjúkrunarfræði í Há-
skóla íslands vegna þess að María
Pétursdóttir hafði verið kölluð
fyrsti námsbrautarstjórinn, en
hefði átt að standa kennslustjóri. I
grein, sem Ingibjörg R. Magnús-
dóttir ritar í tímaritinu HJÚKR-
UN, 4. tbl. 1976 segir orðrétt:
„Með stjórninni starfar kennslu-
stjóri eða námsbrautarstjóri. Fyrsti
námsbrautarstjórinn var María
Pétursdóttir skólastjóri, en 1. mars
1976 tók Ingibjörg R. Magnúsdóttir
við því starfi.“
í 1. tölublaði Hjúkrunar 1990,
bar blaðið merki nokkurra byrj-
endaörðugleika bæði af hálfu nýrra
ritstjóra og af hálfu Fróða hf. sem
er nýtekinn við umsjón með útgáfu
blaðsins og biðjumst við velvirðing-
ar á því.
Við viljum þó leiðrétta nokkrar
misfellur.
Á bls. 2 stendur að Ásta St. Atla-
dóttir sé í ritstjórn. Þar á að standa
Ása....
Á bls. 3 í „Formannsþönkum“
var prentvillupúkinn einnig á ferð í
fyrstu setningu í hægra dálki. Setn-
ingin á að vera: „Nám er felur í sér
ákveðna viðbót eins og nám fyrir
hjúkrunarfræðinga til B.S. gráðu
gerir, en einnig framhaldsnám er
felur í sér...“
Ábls. 9er höfundur vísnanna um
„Sögu búningsins" Guðrún Guðna-
dóttir, en ekki Gunnarsdóttir. í
næstsíðustu vísu hennar féll niður
eitt orð. Síðasta ljóðlínan er því:
„veittu sjúkum hjúkrun og hugsaðu
ei um frí.“
Á bls. 20 í viðtali við Ingibjörgu
R. Magnúsdóttur stendur í dálki
lengst til hægri, þroskaþjálfara, en
á að standa þroskaþjálfa. Á bls. 30 í
formála að stjórnarkjöri er Hildi-
gunnur sögð Friðriksdóttir en hún
er Friðjónsdóttir.
Þau leiðu mistök urðu að nafn
Sigrúnar Magnúsdóttur, fyrrver-
andi forstöðukonu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, sem gerð var
Sigrún Magnúsdóttir.
að heiðursfélaga í tengslum við 70
ára afmæli HFÍ, féll niður. Sigrún
lést 9. nóvember sl. Hún var
brautryðjandi í íslenskum hjúkrun-
armálum og var fyrsta forstöðu-
kona Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur. Sigrún átti að baki
fjölþættan menntunar- og starfsfer-
il hér á landi og erlendis.
Ritstjórn biður lesendur blaðsins
velvirðingar á þessum mistökum og
hvetur þá til að færa þessar leiðrétt-
ingar inn í 4. tbl. 1989 og 1 tbl. 1990.
Lilja Óskarsdóttir,
Stefanía Sigurjónsdóttir.
Framhald af bls. 45.
ur. Þar þyrfti að verða bót á. Stund-
um kalla ég það „rússneska bónus-
inn“ þ.e. því meiri vinna, því meiri
mannaforráð og ábyrgð því minni
umbun í launakjörum. En starfs-
ánægja kemur af öðrum þáttum
líka, sérstaklega þegar vel hefur
tekist til í starfi og maður finnur að
maður veldur því sem fengist er
við.
Hjá mér er hægt að fá upplýsing-
ar um námið og til gamans má geta
að DSH stefnir í að bjóða upp á
Ph.D. nám í hjúkrun 1991 sem
framhald af S.D. og S.A. gráðum
við skólann.
Það var gott að koma heim aftur
og gekk vel fyrir fjölskylduna að
aðlagast. Námsárin eru eins og
draumur, sem maður sér í hilling-
um, og minningarnar eru ánægju-
legar.
46 HJÚKRUN 2/x>—66. árgangur