Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 32
Orlofsstyrkir '97 Stjórn orlofssjóðsins uuglýsir eftir umsóknum um orlofsstyrki fyrir tímabilið 1.5 - 30.9 1997. Um er að rœða 140 styrki að upphæð 20.000 kr. liver sem greiddir verða gegn framvísun kvittana fyrir útlögðum kostnaði vegna sumarleyfisferða. Staðfestingin verður að vera vegna kaupa á farmiða eða gistingu innanlands eða utan. Ekki er liægt að fá úthlutað bæði sumarhúsi og styrk á sama tíma. Orlofsstyrkirnir eru greiddir út á tímabilinu 1.5 - 30.9 1997. Ef þeirra er ekki vitjað innan þess tíma falla þeir niður. Orlofshús Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tekið á leigu neðanskráð orlofshús fyrir félagsmenn sína páskavikuna. 25.3 - 1.4 og sumarið 1997. Vakin er athygli á því að orlofshús í eigu félagsins eru til útleigu alla daga ársins, ekki bara um helgar að vetrinum. Þetta eru liúsin Bláskógar við Úlfljóts- vatn, Birkilundur 20 og 24 í Húsafelli, Kvennabrekka við Reykjalund og orlofsíbúðin að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík. Auk þessa leigir sjóðurinn sumar- hús víðs vegar um landið yfir sumarið og páskana og endurleigir félagsmönnum sem greiða u.þ.b. 1/3 af raunverulegu leiguverði húsanna. Leigutími kernur fram í meðfylgjandi töflu. Húsin eru leigð viku í senn. Skiptidagar eru föstudagar. Hús og húsbúnaður Öll húsin eru nýleg eða nýuppgerð með rafmagni og heitu vatni. I þeint er sturta, ísskápur, eldavél, borðbúnaður og allt til ræstinga, sængur og koddar a.m.k. fyrir hvert rúm í húsinu, nema annað sé tekið fram. I sumum húsum eru einnig aukaním eða dýnur. Gæludýr eru ekki leyfð í húsunum. Húsafell í Borgarfirði, Birkilundur 24 Húsið er 34 fm, 1 svefnherbergi og svefnloft. Rúm fyrir 2 í aðalbústaðnum og 3 í viðbyggingu. Á svefnlofti eru 3 dýnur. Hægt að leigja sængurfatnað fyrir 500 kr. settið. Sjónvarp og útigrill. Leiga: 13.000 kr. á viku. t Húsafell í Borgarfirði, Birkilundur 20 Húsið er 40 fm, 2 svefnherbergi og svefnloft. Rúm fyrir 8 og hægt að leigja sængurfatnað fyrir 500 kr. settið. Sjónvarp, útigrill og heitur pottur. Leiga: 13.000 kr. á viku. Glaðheimar við Blönduós Húsið er 45 fm, 3 svefnherbergi. Rúm fyrir 6. Sjónvarp, útvarp, heitur pottur og gufubað. í nágrenninu er 9 holu golfvöllur og hægt að kaupa veiðileyfi í nærliggjandi ám og vötnum. Leiga: 13.000 kr á viku. Syðra Lógafell í Miklaholtshreppi Gamalt, uppgert íbúðarhús með 3 svefnherbergjum, stórri, vinalegri baðstofu, stórri stofu og borðstofu sem rúmar 12-14 manns. Upplagt fyrir 2-3 fjölskyldur eða minni ættarmót. Rúm fyrir a.m.k. 8 manns og fjölmargar aukadýnur. Sjónvarp, útvarp og kolagrill. Staðsetningin gefur möguleika á mismunandi dagsferðum um Snæfellsnes og léttum gönguferðum um nágrennið. Tuttugu mínútna akstur á næstu sundstaði sem eru á Lýsuhóli og Kolviðarnesi. Möguleiki er á veiðileyfi í nærliggjandi vötnum. Leiga: 10.000 kr. á viku. Bakki í Vatnsdal Húsið er 50 fm, 2 svelnherbergi. Rúm fyrir 6. Sjónvarp, útvarp og kolagtill. Möguleiki er á silungsveiði í nærliggjandi vötnum og börnin geta fengið að fylgjast með bústörfum. Næsti golfvöllur er í 26 km fjarlægð og sundlaug er á Blönduósi og Húnavöllum. Leiga: 10.000 kr. á viku. Kotabyggð í Vaðlaheiði gegnt Akureyri Húsið er 30 fm, 1 svefnherbergi og svefnloft. Rúm fyrir 6, sjónvarp, útvarp og kolagrill. Leiga: 10.000 kr. á viku. Eyjólfsstaðarskógur, hús nr. 8., Vallahreppi 11 km frá Egilsstöðum. Húsið er 50 fm, 2 svefnherbergi og lokað svefnloft. Rúm, sængurfatnaður og handklæði fyrir 8. Diskaþurrkur, tuskur, sjónvaip, myndsegulbandstæki, útvarp og gasgrill. Leiga: 13.000 kr. á viku. Lindarbakki, Hornafirði Húsið er 54 fm, 2 svefnherbergi, svefnloft með 4 rúmum. Rúm fyrir 8. Sjónvarp og kolagrill. I nágrenninu eru skemmtilegar gönguleiðir og einnig skipulagðar ferðir. Upplýsingar veitir Skarphéðinn Larsen, s. 478 2555. Leiga: 13.000 kr. á viku. 32 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.