Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Blaðsíða 23
Ásta Thoroddsen, Björg Guðmundsdóttir, Elín J. G. Hafsteinsdóttir, Laura Sch. Thorsteinsson, Margrét Björnsdóttir,
Vilborg Ingólfsdóttir og Þórunn Ólafsdóttir
Könnun á gæðaverkefnum tengdum hjúkrun
/febrúar 1996 gerði gœðastjórnunarnefnd Félags
(slenskra hjúkrunarfrœðinga könnun á gœða- og þróunar-
verkefnum tengdum hjúkrun á öllum sjúkrahúsum,
heilsugœslustöðvum og hjúkrunarheimilum í landinu.
Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um
þau verkefni, sem unnið hafði verið að, með það fyrir
augum að auka gæði hjúkrunar á árinu 1995 og íjanúar
og febrúar 1996. Niðurstöður skyldu kynntar öðrum
hjúkrunarfrœðingum til að miðla upplýsingum um ný
gœðaverkefni og hvetja þá til frekara starfs á sviði gœða-
stjórnunar í hjúkrun, í samræmi við hlutverk nefndarinnar.
Aðferð
Mælitæki könnunarinnar var spurningalisti sem
saminn var af nefndarmönnum. Spumingarnar í
spumingalistanum vom bæði opnar og lokaðar. í mæli-
tækinu var spurt um ýmsa þætti tengda gæðastjómun í
hjúkmn, s.s. stefnumótun, umbótahópa, þróunarstarf,
klínísk verkefni, staðla, gæðakannanir o.fl.
Spurningalistinn, ásamt fylgibréfi, var sendur út í
byrjun febrúar til allra hjúkmnarforstjóra á sjúkrahúsum,
heilsugæslustöðvum og hjúkmnarheimilum í landinu.
Jafnframt fengu hjúkrunarframkvæmdastjórar á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur og Landspítala sendan spurninga-
listann. Sendir vom út 122 spurningalistar.
Niðurstöður
í þessari grein em birtar helstu niðurstöður könnunar-
innar, en þær vom jafnframt kynntar á málþingi um gæða-
stjómun í hjúkmn sem haldið var 25. mars 1996.
Niðurstöður könnunarinnar vom flokkaðar í fjóra flokka
eftir sjúkrastofnunum, þ.e. heilsugæslustöðvar, sjúkrahús utan
Reykjavíkur, sjúkrahús í Reykjavík og hjúkmnarheimili. í
niðurstöðum er svarprósenta reiknuð út sem hlutfall af þeim
sem svömðu spurningalistanum í hveijum flokki. Eins og
komið hefur fram voru hjúkmnarframkvæmdastjómm á
sjúkrahúsunum í Reykjavík sendir spurningalistar auk
hjúkmnarforstjóra spítalanna. Niðurstöður frá sjúkrahúsunum í
Reykjavík byggjast þvf alls á 16 svömm hjúkmnarfram-
kvæmdastjóra og hjúkmnarforstjóra.
Svör bámst frá 56 % (31) heilsugæslustöðva, 60 % (12)
sjúkrahúsa utan Reykjavíkur, 76 % (16) sjúkrahúsa í Reykja-
vík og sviðum þeirra og 46 % (12) hjúkrunarheimila. Svarhlut-
fall var því 58% (71).
í fyrstu röð í töflu 1 má sjá hversu algengt er að starfandi
séu gæðastjómunarnefndir, gæðastjómunarhópar eða umbóta-
hópar sem hjúkmnarfræðingar em aðilar að. Á bilinu 32-75 %
aðila svömðu þeirri spurningu játandi. Einnig má sjá í annarri
röð sömu töflu að víða hefur verið farin sú leið að fela ákveðn-
um aðila að vinna sérstaklega að gæða- og þróunarverkefnum
innan hjúkmnar. Algengast var að stoðhjúkmnarfræðingi hefði
verið falið það verkefni.
Tafla 1 Viuna að gæða- og þróunarverkefnum - sainantekt
Heilsugæsla Sjúkrahús í Reykjavík Sjúkrahús utan Reykjavíkur Hjúkrunar- heimili
Já (n) Nei (n) Já (n) Nei (n) Já (n) Nei (n) Já (n) Nei (n)
Eru gæðastjómunamefndir, gæðastjórnunarhópar eða umbótahópar sem hjúkrunarfræðingar eru aðilar að starfandi við stofnunina? 32% (10) 61 % (19) 69 % (11) 13% (2) 25 % (3) 75% (9) 33 % (4) 67% (8)
Hefur ákveðnum aðila innan stofnunarinnar verið falið að vinna sérstaklega að gæða- og þróunarverkefnum innan hjúkrunar? 26 % (8) 65 % (20) 75 % (12) 13 % (2) 42% (5) 50% (6) 50% (6) 42% (5)
Hefur verið unnið að þróunarstarfí tengdu gæðamálum í hjúkrun á stofnuninni á ámnum 1995 og 1996? 65 % (20) 29% (9) 100% (16) 0% (0) 100% (12) 0% (0) 83 % (10) 17% (2)
Hefur verið unnið að klínískum verkefnum, sem tengjast umbótastarfi/gæðastarfi ? 77% (24) 13% (4) 81 % (13) 0% (0) 75 % (9) 25% (3) 33 % (4) 58% (7)
Hafa verið útbúnir staðlar í hjúkrun, sem unnið er eftir á stofnuninni? 45 % (14) 48% (15) 75 % (12) 19% (3) 50% (6) 50% (6) 33 % (4) 67% (8)
Hafa verið gerðar kannanir tengdar hjúkrun á stofnuninni, þar sem fyrirhugað er að nýta niðurstöður til það auka gæði? 23 % (7) 55% (17) 69% (11) 6% (1) 25 % (3) 75% (9) 42% (5) 50% (6)
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA I. tbl. 73. árg. 1997