Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —9 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 4 . a p r Í l 2 0 1 7
FrÍtt
VERTU LAUS VIÐ
LIÐVERKI
www.artasan.is
Er kominn
tími á ný
dekk?
Pantaðu
tíma fyrir
dekkjaskiptin
á N1.is
PRAG
27. apríl í 4 nætur
Stökktu
frá kr.
49.995
m/morgunmat
Flugsæti
frá kr.
39.900
m/sköttum
og tösku
sKOðun Oddný Harðardóttir
skrifar um „fráleita túlkun“ heil
brigðisráðherra. 10
spOrt Valsmenn í góðum
málum eftir átta marka sigur. 12
tÍMaMót Grótta fagnar 50 ára
afmæli sínu í dag. 16
lÍFið Aronmola
stendur að
samtökunum
Allir gráta
sem vinna að
því að opna
umræðuna um
þunglyndi og kvíða
á meðal barna og unglinga. 22
Fréttablaðið í dag
plús 2 sérblöð
l FólK l Fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
byggðaMál Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri telur ekki að milljarða
uppbygging hafnarmannvirkja
á Akranesi þýði að störf flytjist
frá HB Granda í Reykjavík upp
á Akranes. Forstjóri HB Granda
hefur útilokað að fyrirtækið haldi
áfram bolfiskvinnslu á báðum
stöðunum.
„Nei, ég óttast það ekki að HB
Grandi fari upp á Akranes. Það
er mjög mikilvægt að hafnsækin
starfsemi verði áfram í borginni,“
segir Dagur.
Faxaflóahafnir, Akranes og HB
Grandi eiga í viðræðum um upp
byggingu hafnarmannvirkja fyrir
á annan milljarð króna sem verður
alfarið greitt af Faxaflóahöfnum.
Reykvíkingar eiga um 75 prósent
í Faxaflóahöfnum.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, for
stjóri HB Granda, hefur sagt úti
lokað að fyrirtækið verði á báðum
stöðum með vinnslu. Það sé vegna
ytri þátta og hafnarframkvæmdir
skipti þannig engu máli.
„Áform um uppbyggingu hafn
armannvirkja á Akranesi eiga sér
langa sögu og þessar hugmyndir
eru ekki að verða til núna. Allt frá
árinu 2007 hefur verið markmið
að byggja upp hafnarmannvirki
á Akranesi fyrir hafnsækna starf
semi,“ segir Dagur sem er formað
ur stjórnar Faxaflóahafna.
Marta Guðjónsdóttir, borgar
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og stjórnarmaður í
Faxaflóahöfnum, segir af og frá
að uppbygging hafnarmannvirkja
á Akranesi feli í sér að HB Grandi
hverfi frá Reykjavík. Verkefnið sé
arðbært hvort sem HB Grandi ætli
sér að vera á Akranesi eða ekki.
„Ég horfi ekki þannig á verkefnið
og samþykkti uppbygginguna ekki
á þeim forsendum,“ segir Marta.
„Það er markmið Faxaflóahafna
að byggja upp alla okkar hafnar
aðstöðu. Við gætum séð ný fyrir
tæki nýta sér höfnina á Akranesi.
Ég legg mikla áherslu á að HB
Grandi verði enn með starfsemi
í Reykjavík,“ bætir Marta við. – sa
Óttast ekki að missa Granda á Akranes
Dagur B. Eggertsson, formaður Faxaflóahafna, sem ætla að byggja upp fyrir á annan milljarð fyrir HB Granda á Akranesi óttast ekki að
störf fyrirtækisins flytjist frá Reykjavík upp á Skaga. Forstjóri HB Granda hefur sagt engar líkur á að vinnsla verði á báðum stöðunum.
stjórnsýsla Illugi Gunnarsson,
fyrrverandi mennta og menn
ingarmálaráðherra, verður nýr
stjórnarformaður Byggðastofnunar
samkvæmt öruggum heimildum
Fréttablaðsins. Tekur hann við af
Herdísi Sæmundardóttur sem setið
hefur í stjórn síðustu tvö ár.
Ársfundur Byggðastofnunar verð
ur haldinn á morgun í Skagafirði.
Jón Gunnarsson samgönguráðherra
setur Illuga í embættið. – sa / sjá síðu 4
Illugi formaður
í Byggðastofnun
Illugi Gunnarsson
Mjótt á munum Emmanuel Macron og Marine Le Pen komust áfram í fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi í gær. Er tveir þriðju atkvæða voru taldir hafði Le Pen hlotið 23,42 pró-
sent atkvæða en Macron 22,93 prósent. Búist var við að Macron sigi fram úr er öll atkvæði úr í stórborgum væru talin. Macron er spáð sigri í seinni umferðinni. Sjá síðu 6 FréttablaðIð/EPa
2
4
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
B
2
-8
B
F
8
1
C
B
2
-8
A
B
C
1
C
B
2
-8
9
8
0
1
C
B
2
-8
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K