Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 11
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Mitsubishi Outlander PHEV hefur heldur betur slegið í gegn. Þessi fjórhjóladrifni gæðingur gengur bæði
fyrir rafmagni og bensíni, svo þú kemst allra þinna leiða með góðri samvisku. Komdu og prófaðu!
Mitsubishi Outlander PHEV
Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá:
4.990.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
MITSUBISHI OUTLANDER PHEV
5 ára ábyrgð
RAFMAGN EÐA BENSÍN?
ÞÚ VELUR.
Maður sér þá stundum í umferðinni og fyllist skelfingu, hægir á sér og reynir að láta lítið fyrir sér fara meðan þeir
æða framhjá gaurarnir sem eru í anda
staddir í Formúlu eitt-kappakstrinum
en ekki bara á Hafnarfjarðarveginum
eða Miklubrautinni eins og við hin.
Þeir eru í annarri vídd. Þeir fara um á
ofsahraða, hendast milli akreina með
rykkjum, skjótast inn í öll bil án þess að
gefa nokkru sinni stefnuljós, aka ofan
í næsta bíl á undan með ógnandi fasi,
virða engar reglur, líta aldrei í kringum
sig og maður andar léttar þegar maður
sér þá hverfa í átt að sjónarrönd og ekki
annað hægt en að biðja til almættisins
að grípa í taumana áður en eitthvað
hræðilegt gerist.
Erfitt er að vita hvað þessir menn eru
eiginlega að tjá með þessum látum, en
svona umferðarofstopi er í besta falli
ofbeldi gagnvart samborgurum, þetta
er andfélagsleg hegðun, eins og að
ganga um í mannfjölda og fara upp að
fólki og garga upp í það, steyta framan
í það hnefann, vingsa stórri sveðju
af gáleysi. Svona hegðun vitnar um
stórfelldan félagslegan vanþroska og
einstaklingshyggju sem stappar nærri
sturlun. Svona menn þarf að taka úr
umferð og kenna þeim á bíl – og sam-
félag.
Í Formúlu eitt á Reykjanesbraut
Nýlega staðfesti Hæstiréttur úrskurð
Héraðsdóms um að leggja hald á
Tesla-bifreið Magnúsar Ólafs Garðars-
sonar. Þann 20. desember síðastliðinn
var hann á ferð á Reykjanesbraut
í slæmu veðri og vondu skyggni, á
hálum og blautum veg. Samkvæmt
frétt RÚ mældist bifreið hans ítrekað
á yfir 160 kílómetra hraða og allt upp
í 183 kílómetra hraða á klst. Tilkynn-
ingar um ofsaakstur bílsins bárust til
neyðarlínunnar og svo fór að lokum að
hann rakst utan í annan bíl með þeim
afleiðingum að hinn ökumaðurinn var
fluttur með sjúkrabíl á spítala.
Magnús hefur krafist þess að fá
bílinn sinn aftur. Hann segir að hann
hafi misst stjórn á bílnum „vegna ytri
aðstæðna“. Hann talar líka um að lög-
reglan hafi farið fram úr valdheimildum
sínum við rannsókn málsins og „brotið
gegn friðhelgi einkalífsins“ með því að
skoða upplýsingar sem bíllinn geymir
um aksturinn.
Þetta er ekki eina dæmið um slíkan
akstur hjá Magnúsi – tíu hraðaksturs-
mál hafa komið upp hjá honum hér á
landi undanfarið og eitt í Danmörku.
Það er ágæt regla að sýna fólki tillits-
semi þegar það ratar í ógæfu eða verður
eitthvað á sem ámælisvert getur talist;
þá fer ekki vel á að hreykja sér eða
efna til fjöldafordæmingar, enda eiga
allir sér einhverjar málsbætur og rétt á
því að taka sig á í lífinu. Það á Magnús
vonandi eftir að gera og farnist honum
vel. Það er hins vegar freistandi að gera
þetta mál hans að umtalsefni vegna
þess að það er dæmigert fyrir ákveðið
hugarfar sem ríkt hefur hér á landi, og
ekki bara í umferðinni.
Magnús Ólafur stendur sem sé í þeirri
meiningu að hann sé undanþeginn
reglum um hámarkshraða.
Uppbygging á undanþágu
Hann er nefnilega vanur undan-
þágunum. Magnús er einn stofnenda
United Silicon og var til skamms tíma
forstjóri þess fyrirtækis, hafði væntan-
lega veg og vanda af þeirri uppbygg-
ingu sem skilar fyrirtækinu nú nærri
vikulegum hneykslisfréttum vegna
mengunar sem enginn virðist almenni-
lega vita hversu mikil er, skulda við
verktaka og málaferla kringum það,
slysa og verkamanna sem látnir eru
vinna án réttinda á vandasöm tæki
og við vondar aðstæður. Allt vitnar
um það hvernig ætt hefur verið áfram
við uppbyggingu fyrirtækisins í þeirri
vissu að undanþágur verði veittar frá
reglum. Nú bregður hins vegar svo við
að umhverfisráðherra Björt Ólafsdóttir
hefur farið sköruglega fram í málefnum
fyrirtækisins og komið þeim skila-
boðum rækilega á framfæri að við þetta
fúsk verði ekki unað og að það sé liðin
tíð að horft sé í gegnum fingur sér með
ólöglega mengun eins og löngum hefur
tíðkast hér á landi.
Reglan hér á landi hefur verið þessi:
þegar spurt er um hagsmuni náttúru og
hagsmuni stóriðju skal stóriðjan njóta
vafans, undantekningarlaust; þegar
spurt er um heilsu almennings og hags-
muni stóriðju skal stóriðja njóta vafans,
ævinlega. Stóriðja, verksmiðjurekstur,
er nefnilega „atvinnusköpun“. Og
„atvinnusköpun“ er íslenska orðið yfir
„nirvana“; hið endanlega alsæluástand
sem allt miðar að.
Afleiðingin er sú að uppbyggingu
stóriðju hér á landi má líkja við ofsa-
akstur í umferðinni og eru þar dæmin
mýmörg, það nýjasta brjálæðisleg
áform um sjókvíaeldi á laxi. Forljótum
verksmiðjum hefur verið dritað niður
þar sem hentar framkvæmdaaðilum
sem fá allar þær ívilnanir sem hugsast
geta, skattahagræði, gjafverð á orku,
frámunaleg framlög úr lífeyrissjóðum,
að drasla að vild ...
Málsvörn Magnúsar er líka kunnug-
leg þeim sem fylgst hefur með málsvörn
bankstera og útrásarvíkinga í markaðs-
misnotkunarmálum. Talað er um „ytri
aðstæður“, rétt eins og hrunverjar gera
alltaf og fjasað um „friðhelgi einkalífs“.
Vantar bara að hann fari að reyna að
ryðja dóminn með vanhæfiskröfum á
þeim forsendum að dómarar séu and-
vígir ofsaakstri. Mengunin getur birst
á margs konar hátt; meðal annars í
hugarfari.
En það er kominn tími til þess að
sveitarstjórnarmenn og kjördæmaþing-
menn átti sig á því að það sem er undan
þágu er ekki í þágu annarra, heldur
bara í eigin þágu.
Ofsi á undanþágu
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Talað er um „ytri aðstæður“, rétt
eins og hrunverjar gera alltaf
og fjasað um „friðhelgi einka-
lífs“. Vantar bara að hann fari
að reyna að ryðja dóminn með
vanhæfiskröfum á þeim for-
sendum að dómarar séu andvígir
ofsaakstri.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 4 . a p R Í L 2 0 1 7
2
4
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
B
2
-9
5
D
8
1
C
B
2
-9
4
9
C
1
C
B
2
-9
3
6
0
1
C
B
2
-9
2
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K