Fréttablaðið - 24.04.2017, Page 11

Fréttablaðið - 24.04.2017, Page 11
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Mitsubishi Outlander PHEV hefur heldur betur slegið í gegn. Þessi fjórhjóladrifni gæðingur gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni, svo þú kemst allra þinna leiða með góðri samvisku. Komdu og prófaðu! Mitsubishi Outlander PHEV Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá: 4.990.000 kr. FYRIR HUGSANDI FÓLK MITSUBISHI OUTLANDER PHEV 5 ára ábyrgð RAFMAGN EÐA BENSÍN? ÞÚ VELUR. Maður sér þá stundum í umferðinni og fyllist skelfingu, hægir á sér og reynir að láta lítið fyrir sér fara meðan þeir æða framhjá gaurarnir sem eru í anda staddir í Formúlu eitt-kappakstrinum en ekki bara á Hafnarfjarðarveginum eða Miklubrautinni eins og við hin. Þeir eru í annarri vídd. Þeir fara um á ofsahraða, hendast milli akreina með rykkjum, skjótast inn í öll bil án þess að gefa nokkru sinni stefnuljós, aka ofan í næsta bíl á undan með ógnandi fasi, virða engar reglur, líta aldrei í kringum sig og maður andar léttar þegar maður sér þá hverfa í átt að sjónarrönd og ekki annað hægt en að biðja til almættisins að grípa í taumana áður en eitthvað hræðilegt gerist. Erfitt er að vita hvað þessir menn eru eiginlega að tjá með þessum látum, en svona umferðarofstopi er í besta falli ofbeldi gagnvart samborgurum, þetta er andfélagsleg hegðun, eins og að ganga um í mannfjölda og fara upp að fólki og garga upp í það, steyta framan í það hnefann, vingsa stórri sveðju af gáleysi. Svona hegðun vitnar um stórfelldan félagslegan vanþroska og einstaklingshyggju sem stappar nærri sturlun. Svona menn þarf að taka úr umferð og kenna þeim á bíl – og sam- félag. Í Formúlu eitt á Reykjanesbraut Nýlega staðfesti Hæstiréttur úrskurð Héraðsdóms um að leggja hald á Tesla-bifreið Magnúsar Ólafs Garðars- sonar. Þann 20. desember síðastliðinn var hann á ferð á Reykjanesbraut í slæmu veðri og vondu skyggni, á hálum og blautum veg. Samkvæmt frétt RÚ mældist bifreið hans ítrekað á yfir 160 kílómetra hraða og allt upp í 183 kílómetra hraða á klst. Tilkynn- ingar um ofsaakstur bílsins bárust til neyðarlínunnar og svo fór að lokum að hann rakst utan í annan bíl með þeim afleiðingum að hinn ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á spítala. Magnús hefur krafist þess að fá bílinn sinn aftur. Hann segir að hann hafi misst stjórn á bílnum „vegna ytri aðstæðna“. Hann talar líka um að lög- reglan hafi farið fram úr valdheimildum sínum við rannsókn málsins og „brotið gegn friðhelgi einkalífsins“ með því að skoða upplýsingar sem bíllinn geymir um aksturinn. Þetta er ekki eina dæmið um slíkan akstur hjá Magnúsi – tíu hraðaksturs- mál hafa komið upp hjá honum hér á landi undanfarið og eitt í Danmörku. Það er ágæt regla að sýna fólki tillits- semi þegar það ratar í ógæfu eða verður eitthvað á sem ámælisvert getur talist; þá fer ekki vel á að hreykja sér eða efna til fjöldafordæmingar, enda eiga allir sér einhverjar málsbætur og rétt á því að taka sig á í lífinu. Það á Magnús vonandi eftir að gera og farnist honum vel. Það er hins vegar freistandi að gera þetta mál hans að umtalsefni vegna þess að það er dæmigert fyrir ákveðið hugarfar sem ríkt hefur hér á landi, og ekki bara í umferðinni. Magnús Ólafur stendur sem sé í þeirri meiningu að hann sé undanþeginn reglum um hámarkshraða. Uppbygging á undanþágu Hann er nefnilega vanur undan- þágunum. Magnús er einn stofnenda United Silicon og var til skamms tíma forstjóri þess fyrirtækis, hafði væntan- lega veg og vanda af þeirri uppbygg- ingu sem skilar fyrirtækinu nú nærri vikulegum hneykslisfréttum vegna mengunar sem enginn virðist almenni- lega vita hversu mikil er, skulda við verktaka og málaferla kringum það, slysa og verkamanna sem látnir eru vinna án réttinda á vandasöm tæki og við vondar aðstæður. Allt vitnar um það hvernig ætt hefur verið áfram við uppbyggingu fyrirtækisins í þeirri vissu að undanþágur verði veittar frá reglum. Nú bregður hins vegar svo við að umhverfisráðherra Björt Ólafsdóttir hefur farið sköruglega fram í málefnum fyrirtækisins og komið þeim skila- boðum rækilega á framfæri að við þetta fúsk verði ekki unað og að það sé liðin tíð að horft sé í gegnum fingur sér með ólöglega mengun eins og löngum hefur tíðkast hér á landi. Reglan hér á landi hefur verið þessi: þegar spurt er um hagsmuni náttúru og hagsmuni stóriðju skal stóriðjan njóta vafans, undantekningarlaust; þegar spurt er um heilsu almennings og hags- muni stóriðju skal stóriðja njóta vafans, ævinlega. Stóriðja, verksmiðjurekstur, er nefnilega „atvinnusköpun“. Og „atvinnusköpun“ er íslenska orðið yfir „nirvana“; hið endanlega alsæluástand sem allt miðar að. Afleiðingin er sú að uppbyggingu stóriðju hér á landi má líkja við ofsa- akstur í umferðinni og eru þar dæmin mýmörg, það nýjasta brjálæðisleg áform um sjókvíaeldi á laxi. Forljótum verksmiðjum hefur verið dritað niður þar sem hentar framkvæmdaaðilum sem fá allar þær ívilnanir sem hugsast geta, skattahagræði, gjafverð á orku, frámunaleg framlög úr lífeyrissjóðum, að drasla að vild ... Málsvörn Magnúsar er líka kunnug- leg þeim sem fylgst hefur með málsvörn bankstera og útrásarvíkinga í markaðs- misnotkunarmálum. Talað er um „ytri aðstæður“, rétt eins og hrunverjar gera alltaf og fjasað um „friðhelgi einkalífs“. Vantar bara að hann fari að reyna að ryðja dóminn með vanhæfiskröfum á þeim forsendum að dómarar séu and- vígir ofsaakstri. Mengunin getur birst á margs konar hátt; meðal annars í hugarfari. En það er kominn tími til þess að sveitarstjórnarmenn og kjördæmaþing- menn átti sig á því að það sem er undan þágu er ekki í þágu annarra, heldur bara í eigin þágu. Ofsi á undanþágu Í dag Guðmundur Andri Thorsson Talað er um „ytri aðstæður“, rétt eins og hrunverjar gera alltaf og fjasað um „friðhelgi einka- lífs“. Vantar bara að hann fari að reyna að ryðja dóminn með vanhæfiskröfum á þeim for- sendum að dómarar séu andvígir ofsaakstri. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 4 . a p R Í L 2 0 1 7 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C B 2 -9 5 D 8 1 C B 2 -9 4 9 C 1 C B 2 -9 3 6 0 1 C B 2 -9 2 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.