Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 6
Beltone Legend™ Enn snjallara heyrnartæki Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.Bel to ne L eg en d ge ng ur m eð iP ho ne 6 s og e ld ri ge rð um , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er . A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Frakkland Fyrri umferð í söguleg- um forsetakosningum í Frakklandi fór fram í gær og ríkti mikil spenna í landinu. Um er að ræða óljósustu kosningar í nokkrar kynslóðir. Útlit var fyrir að sigurvegarar fyrstu umferðarinnar væru þau Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóð- fylkingarinnar, og miðjumaðurinn Emmanuel Macron þegar Frétta- blaðið fór í prentun í gær. Þegar tveir þriðju atkvæða höfðu verið taldir hafði Le Pen fengið 23,42 prósent atkvæða en Macron 22,93 prósent. Samkvæmt frönskum lögum fer fram önnur umferð for- setakosninga ef enginn frambjóð- andi hlýtur yfir 50 prósent atkvæða. Því mun seinni umferðin fara fram 7. maí næstkomandi. Þetta er í fyrsta skipti frá 6. áratug síðustu aldar sem frambjóðendur Repúblikana og Sósíalista hljóta ekki nægt fylgi til þess að komast áfram í aðalumferðina. Í kjölfar kosninganna lýsti Benoit Hamon, frambjóðandi Sósíalista, yfir stuðningi við Macron. Ellefu voru í framboði til forseta en fjórir voru taldir hafa möguleika á að ná kjöri í aðdraganda fyrri umferðarinnar. Auk Le Pen og Macron voru það Repúblikaninn Francois Fillon og frambjóðandi vinstrihreyfingarinnar La France Insoumise Jean-Luc Mélen- chon. The Guardian greinir frá því að þetta sé í fyrsta skipti frá seinni heimsstyrjöld sem sitjandi forseti býður sig ekki fram aftur. Frambjóðendurnir tveir sem halda áfram gætu ekki verið ólíkari, en Macron hefur talað fyrir frjálslyndri efnahagsstefnu, opnu Frakklandi og er hliðhollur Evrópusambandinu, á meðan Le Pen hefur talað gegn sam- bandinu, gegn innflytjendum og fyrir efnahagslegri verndarstefnu. Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í gærkvöldi, eða klukkan sex að íslenskum tíma. Áætluð kosningaþátttaka var um 80 prósent, svipað og árið 2012. Um 47 milljónir manna voru með atkvæðisrétt í kosningunum. Mikil öryggisgæsla var að þessu sinni á kjörstöðum, en um 50 þúsund lög- reglumenn og 7.000 hermenn voru á vakt í um landið. Lögregluþjónar voru sérstaklega viðbúnir mót- mælum við Bastillu-torg í París. Mikið er talið í húfi í forseta- kosningunum en Marine Le Pen gæti að mati sérfræðinga beitt sér fyrir því að Frakkar, líkt og Bretar, yfirgefi Evrópusam- bandið og hætti að nota evru. Margir telja að það að Le Pen hafi komist upp úr fyrri umferð sé í raun sigur fyrir öfga- hægrihreyfinguna sem hefur verið áberandi í heimspólitík undan- farið ár, þegar Bret- ar kusu Brexit og þegar Bandaríkja- menn kusu Donald Trump sem forseta. BBC greindi frá því í gær að gríðarlegur fjöldi franskra ríkis- borgara í London hefði kosið þar, en um 120 þúsund íbúa London eru með atkvæðisrétt. Dæmi voru um að fólk hefði beðið í þrjá til fjóra tíma til að kjósa. Haft var eftir einum þessara kjósenda að hann hefði ekki upplifað slíka bið- röð í sín 25 ár sem franskur ríkis- borgari í London. Á Íslandi kusu 216 franskir ríkis- borgarar í franska sendiráðinu. Að sögn Gaelle Hourriez-Bolatre sendiráðunautar er það 67,9 pró- sent þeirra Frakka sem búa hér á landi og eru með atkvæðisrétt. Atkvæðin voru talin í sendi- ráðinu og niðurstöðurnar sendar til Frakklands yfir netið. saeunn@frettabladid.is Macron og Le Pen mætast í einvígi í maí Fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi fór fram í gær. Útlit er fyrir að Macron og Le Pen mætist í seinni umferðinni 7. maí næst- komandi. Le Pen er talin líkleg til að leiða Frakkland út úr Evrópusambandinu nái hún kjöri sem flest bendir þó til að sé ólíklegt. Niðurstöður fyrri umferðar verða staðfestar í dag en ef fer sem horfir, að Macron og Le Pen mætist, er því spáð að Macron muni sigra í seinni umferðinni. Skoðanakönnun sem birtist í gærkvöldi spáði Macron 62 prósenta fylgi gegn 38 prósenta fylgi Le Pen. Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttakona Stöðvar 2, er stödd í París og segist skynja það að Frakkar muni kjósa Macron sem forseta. „Allir sem ég hef talað við hafa sagt að fylgj- endur allra annarra en Le Pen muni flykkjast á bak við Macron. Það virðist vera markmið að halda henni frá. Skoðanakannanir hafa sýnt það líka. Það er markmið allra nema hennar stuðningsmanna að koma henni frá. Mér heyrðist fólk í gær vera að kjósa eftir hjartanu, en allir sem við töluðum við ætluðu að kjósa strategískt í annarri um- ferð til að koma henni frá.“ Þórhildur segir að stemningin í gær hafi verið mjög góð, mikil spenna og stress hafi þó líka verið í loftinu. „Stemningin þegar út- gönguspár lágu fyrir var svolítið sérstök, sums staðar var fólk að klappa saman lófum og var mjög ánægt, en við löbbuðum líka framhjá nokkrum nokkuð stórum mótmælagöngum. Það var mikill viðbúnaður og lokaði lögreglan mörgum götum.“ Macron spáð sigri 80% kjörsókn var áætluð í fyrri umferðinni. 7. maí mætast Macron og Le Pen og Frakkar kjósa forseta. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Spáð er að fylgj- endur annarra flokka muni færa fylgi sitt til Macron en ekki Le Pen. 2 4 . a p r í l 2 0 1 7 M Á n U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 2 -B 8 6 8 1 C B 2 -B 7 2 C 1 C B 2 -B 5 F 0 1 C B 2 -B 4 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.