Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 31
Tottenham á enn eftir að stíga stærstu skrefin Tottenham er eitt mest spennandi lið Evrópu en heldur áfram að falla á stærstu prófunum. Liðið er í stöðugri framför en þarf að læra að sýna miskunnarleysi á ögurstundu. Eins og Kane segir er erfitt að setja fingur á það hvað vantar hjá Totten- ham. Liðið er vel mannað í öllum stöðum, í frábæru formi og með góða blöndu flinkra og líkamlega sterkra leikmanna. Og Pochettino virðist vita nákvæmlega hvað hann er að gera og hvert hann stefnir með þetta lið. Kannski þarf Spurs bara tíma. Liðið er ungt en aðeins þrír í leik- mannahópnum eru eldri en þrítug- ir, þar af tveir markverðir. Ef til vill eru þessi sáru töp í stórleikjunum eðlilegir vaxtarverkir hjá liðinu. Tottenham þarf bara að læra að sýna miskunnarleysi, eins og Chelsea sýndi á laugardaginn. „Við vorum sterkari aðilinn í leiknum en þeir voru beittari en við,“ sagði Pochettino eftir leikinn. „Við erum að reyna að bæta okkur. Það er rétt að 4-2 lítur vel út fyrir Chelsea en ég er stoltur af mínum mönnum. Þeir gáfu allt í þetta.“ Einn stærsti lærdómurinn sem Tottenham getur dregið af þessu tímabili er að kaupa betur inn næsta sumar. Leikmannakaupin síðasta sumar voru hálf misheppn- uð en Victor Wanyama er sá eini af nýju mönnunum sem hefur skilað sínu. Moussa Sissoko hefur reynst 30 milljóna punda flopp, Vincent Janssen hefur gengið bölvanlega að skora og Georges-Kévin N’Koudou hefur ekki enn byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham má ekki gera sömu mistök næsta sumar. Þetta tímabil er nú þegar orðið það besta hjá Tottenham, hvað stigasöfnun varðar, síðan 1987. Tott- enham er með eitt mest spennandi lið í Evrópu og það er allt til alls til að búa til sigurlið á White Hart Lane en Spurs þarf að læra að komast yfir endalínuna. Annars verður það þekkt sem „næstum því“ lið sem er einkunn sem enginn vill fá. ingvithor@365.is Við vorum sterkari aðilinn í leiknum en þeir voru beittari. Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham Tottenham hefur tapað í sjö síðustu skipti sem liðið hefur komist í undanúrslit ensku bikarkeppninnar. Harry Kane gengur niðurlútur af velli eftir 4-2 tap Tottenham fyrir Chelsea í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á laugardaginn. Kane skoraði laglegt skallamark í leiknum en það dugði ekki til. nordiCpHoTos/geTTy Í dag 18.30 Kr - grindavík Sport 19.15 FH - Valur Sport 2 21.00 Körfuboltakvöld Sport 21.00 Messan Sport 2 Í apríl mánuði renna 100 krónur af hverri seldri Curcumin dós til stuðnings Bláa naglans Curcumin „Gullkryddið“ er margfalt áhrifameira en Túrmerik! HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ CURCUMIN? Gullkryddið sem hefur reynst þúsundum landsmanna vel. Bætiefnin innihalda hvorki rotvarnarefni né fylliefni og eru án allra aukaefna. „Ég mæli tvímæla- laust með vörunum frá Natural Health Labs.“ Helga Lind – Pilateskennari og einkaþjálfari Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórverslana. Kynntu þér málið á www.balsam.is Fæst í FK og Hagkaup Frábært bragð JÓLAGJÖFIN í ár? við kynnum arc-tic Retro með keðju Fyrir DÖMUR og HERRA VERÐ AÐEINS: 34.900,- VERÐ FRá: 29.900,- FERMINGARGJÖFIN í ár? arc-tic Retro snæfell - Keflavík 68-60 snæfell: Aaryn Ellenberg 33/11 fráköst/7 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12/4 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 9/9 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9/4 frá- köst, Rebekka Rán Karlsdóttir 5, Andrea Björt Ólafsdóttir 0/6 fráköst. Keflavík: Ariana Moorer 17/20 fráköst/5 stolnir, Thelma Dís Ágústsdóttir 14/6 fráköst/6 stoðsendingar, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9/4 fráköst, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 6/9 fráköst/3 varin skot, Erna Hákonardóttir 6, Birna Valgerður Benón- ýsdóttir 6, Þóranna Kika Hodge-Carr 2. Staðan í einvíginu er 2-1, Snæfelli í vil. Nýjast domino’s-deild kvenna Lokaúrslit, 3. leikur grótta - stjarnan 22-25 grótta: Unnur Ómarsdóttir 6, Sunna María Einarsdóttir 4/3, Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir 4, Lovísa Thompson 3, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 3, Emma Havin Sardarsdóttir 1, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 1. stjarnan: Helena Rut Örvarsdóttir 8, Rakel Dögg Bragadóttir 6, Sólveig Lára Kjærnes- ted 3, Hanna G. Stefánsdóttir 2/2, Esther Ragnarsdóttir 2, Brynhildur Kjartansdóttir 2, Elena Elísabet Birgisdóttir 1, Stefanía Theodórsdóttir 1. Staðan í einvíginu er 1-1. Haukar - Fram 19-20 Haukar: Ramune Pekarskyte 7/3, Maria Ines Da Silva Pereira 5, Sigrún Jóhannsdóttir 4, Erla Eiríksdóttir 2, María Karlsdóttir 1. Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 8, Hildur Þorgeirsdóttir 4/1, Guðrún Þóra Hálfdánar- dóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2, Marthe Sördal 2, Hafdís Shizuka Iura 1, Rebekka Rut Skúladóttir 1. Staðan í einvíginu er 2-0, Fram í vil. olís-deild kvenna Undanúrslit, 2. leikur Afturelding - FH 25-28 Afturelding: Mikk Pinnonen 8, Elvar Ásgeirsson 5, Ernir Hrafn Arnarson 4/1, Jón Heiðar Gunnarsson 2, Þrándur Gíslason 2, Gestur Ólafur Ingvarsson 1, Hrafn Ing- varsson 1, Jóhann Jóhannsson 1, Árni Bragi Eyjólfsson 1. FH: Ásbjörn Friðriksson 7/1, Jóhann Karl Reynisson 6, Einar Rafn Eiðsson 5/1, Gísli Þorgeir Kristjánsson 4, Óðinn Þór Rík- harðsson 3, Halldór Ingi Jónasson 1, Ágúst Birgisson 1. Staðan í einvíginu er 2-0, FH í vil. olís-deild karla Undanúrslit, 2. leikur 4+1 rEGLAN áfrAM Við Lýði Tillaga um að taka aftur upp 3+2 regluna svokölluðu í körfuboltanum á Íslandi var felld á jöfnu á ársþingi KKÍ á laugardaginn. Lið mega því bara vera með einn erlendan leikmann inni á vellinum í einu og eins og síðustu ár. Kosningin var eins jöfn og hægt er en 51 kaus að samþykkja breytingu yfir í 3+2 en 51 hafnaði því. Hannes S. Jónsson var sjálf- kjörinn formaður KKÍ. KLárAði á TVEiMur yfir PAri Valdís Þóra Jónsdóttir lauk leik á Estrella Damm Mediterrean Ladies Open mótinu í golfi á tveimur höggum yfir pari. Mótið er hluti af Evrópu- mótaröðinni í golfi. Valdís Þóra komst auðveld- lega í gegnum niðurskurðinn. Hún náði sér hins vegar ekki alveg jafn vel á strik um helgina. Valdís Þóra endaði í 53.-60. sæti. S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðM Á N U D A G U r 2 4 . A p r í L 2 0 1 7 2 4 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 2 -9 F B 8 1 C B 2 -9 E 7 C 1 C B 2 -9 D 4 0 1 C B 2 -9 C 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.