Fréttablaðið - 24.04.2017, Blaðsíða 2
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
Reiðmaður á Sprengisandi
Guðmundur Einarsson er einn sárafárra hestamanna sem halda hesta á gamla Sprengisandi við Bústaðaveg. Hefur þrengt að möguleikum þeirra til
útreiða síðustu árin. Guðmundur segir þó Elliðaárdalinn algjöra perlu til útreiða. „Maður finnur ánægju þeirra sem ganga hér framhjá að vita enn af
okkur hestamönnum á svæðinu. Allir sem maður mætir segjast ánægðir með fjölbreytnina,“ segir Guðmundur. Fréttablaðið/Ernir
Veður
Hvöss norðanátt og él austast
á landinu í fyrstu, annars mun
hægari vindur og víða léttskýjað í
dag. sjá síðu 18
íþróttir „Ég fer út 29. apríl, tíma-
bilið byrjaði reyndar um miðjan
mánuðinn en það þurfti að finna
starfsmann í staðinn fyrir mig í
Laugarnesskóla þar sem ég vinn
sem stuðningsfulltrúi og skólaliði
þannig að ég frestaði brottförinni,“
segir hinn 22 ára gamli Nikulás Snær
Magnússon sem hefur samið við sig-
ursælasta lið Svíþjóðar í amerískum
fótbolta, Stockholm Mean Machines.
Nikulás hefur æft amerískan fót-
bolta með Einherjum síðan 2014 en
fylgst með síðan hann var um fimm
ára aldurinn.
„Pabbi horfði á NFL og ég var
meira að kasta amerískum fótbolta
en að sparka í venjulegan fótbolta.
Við fylgjumst vel með Denver Bron-
cos, það er okkar lið. Ég hef verið
mikill aðdáandi síðan ég fékk fyrstu
treyjuna mína af John Elway, leik-
stjórnanda Broncos, 1998.“
Nokkrir liðsfélagar hans hafa farið
út til Noregs að æfa en Nikulás vildi
meira. Hann skoðaði því félög í Evr-
ópu þar sem amerískur fótbolti er
töluvert vinsæll. Eftir að hafa lesið
sér til um Mean Machines liðið fór
hann til reynslu í mars. Vildu þeir
ólmir semja við hann í kjölfarið.
„Ég spila svokallaðan „lineback er“.
Það er varnarmaðurinn fyrir aftan
varnarlínuna og er stundum kall-
aður leikstjórnandinn í vörninni,“
segir Nikulás. „Mér líst mjög vel á
þetta ævintýri og vonandi er þetta
bara byrjunin á einhverju stærra.“
Nikulás hefur grunn úr knatt-
spyrnu en hann stóð í marki með
Blikum og Val í yngri flokkum og
spilaði með Hamri í 2 ár í meistara-
flokki. Hann segir að það sé fátt
betra en að verja víti en amerískur
fótbolti reyni meira á.
„Ég hef spilað fótbolta síðan ég var
sex ára og ég mun alltaf halda áfram
í boltanum á meðan það er pása hjá
Einherjum. Þegar maður ver víti,
það er geggjuð tilfinning, en þetta
er líkamlega erfiðara,“ segir Nikulás
sem kveður draum vera að rætast
með því að semja við stórliðið frá
Stokkhólmi.
„Það er einn annar úr Einherjum
að fara líka út í sumar en þetta er
algjör draumur – og búinn að vera
mjög lengi.“
benediktboas@frettabladid.is
Amerískur fótbolti með
stórveldi í Stokkhólmi
Nikulás Snær Magnússon heldur til Svíþjóðar í lok mánaðarins þar sem hann
mun spila amerískan fótbolta með sigursælasta liði landsins, Stockholm Mean
Machines. Nikulási mun ætlað að vera leikstjórnandi í vörn sænska stórliðsins.
nikulás Snær spilar númer 58 því að uppáhaldsleikmaðurinn hans í Denver
broncos, Von Miller, leikur í treyju með því númeri. Fréttablaðið/Ernir
Stockholm Mean
Machines
Liðið er elsta og sigursælasta lið í
ameríska fótboltanum í Svíþjóð.
Félagið var stofnað árið 1982 og
hefur unnið sænska titilinn 11
sinnum. Félagið er einnig með
yngriflokkastarf og kvennalið
sem hefur ekki tapað leik frá
stofnun þess fyrir þremur árum.
Bretland Ofnotkun foreldra á
farsímum hefur slæm áhrif á fjöl-
skyldulífið, samkvæmt nýrri könn-
un meðal unglinga í Bretlandi.
BBC segir yfir þriðjung 11 til 18
ára ungmenna hafa þurft að biðja
foreldra sína að leggja símann frá sér.
Um 14 prósent sögðu að foreldrar
þeirra væru í símanum á matmáls-
tímum en 95 prósent þeirra foreldra
sem tóku þátt í könnuninni sögðust
ekki gera það.
Um 82 prósent ungmenna
töldu að matmálstímar ættu að
vera snjalltækjalausir. 22 prósent
sögðu að sökum farsímanotkunar
gæti fjölskyldan ekki notið tímans
saman. Um 44 prósent foreldra sem
voru beðnir að leggja símann frá
sér urðu að sögn barnanna reið eða
komust í uppnám.
Einungis 10 prósent foreldra
töldu að farsímanotkun þeirra ylli
börnum þeirra áhyggjum. – sg
Biðja foreldra að
hætta símaglápi
Mannshvarf Engar nýjar upplýs-
ingar hafa borist lögreglu um hvarf
Arturs Jarmoszko, 26 ára Pólverja,
sem hvarf sporlaust í byrjun mars.
Lögregla og björgunarsveitir leituðu
Arturs án árangurs. Formlegri leit
lauk 20. mars.
Fjölskylda Arturs er ósátt við störf
lögreglu í málinu og hefur ráðið
einkaspæjara til að rannsaka hvarf
hans. Þau telja miklar líkur á því að
honum hafi verið unnið mein.
Einkaspæjarinn er ókominn til
landsins en fjölskylda Arturs telur
líklegt að hann komi á næstu vikum
og hefji störf. – sa
Einkaspæjari
enn ókominn
sjávarútvegur Sjómannasamband
Íslands leggst gegn lengra strand-
veiðitímabili og auknum heimildum
strandveiðibáta.
Þetta kemur fram í umsögn við
frumvarp Gunnars Guðmundssonar
Pírata um auknar strandveiðar til
heilla fyrir smærri byggðir.
„Með því að auka aflahlutdeild
þessara einyrkja er verið að taka hlut-
deild af okkar mönnum sem stunda
sjómennsku sem aðalatvinnu,“ segir
Valmundur Valmundsson, formaður
Sjómannasambandsins. „Því höfum
við alltaf lagst alfarið gegn breytingum
sem þessum.“
Markmið lagafrumvarpsins er að
bæta aðstæður til strandveiða, fjölga
strandveiðimánuðum úr fjórum í átta
og auka einnig aflaheimildir. – sa
Gegn auknum
strandveiðum
Valmundur Val-
mundsson
artur Jarmoszko
2 4 . a p r í l 2 0 1 7 M á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-9
0
E
8
1
C
B
2
-8
F
A
C
1
C
B
2
-8
E
7
0
1
C
B
2
-8
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K